Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005 33
Hommar, frík og feitar konur
Aðstandendur þessarar sýningar
hvetja væntanlega áhorfendur sína til
að leggja tepruskapnum, drífa sig út úr
skápnum og skemmta sér í leikhúsinu.
Það er hægt að fallast á þá skilmála.
Auðvitað á að skemmta sér í leikhús-
inu og þetta leikrit er ekki fyrir teprur
en ef það er tepruskapur að láta sér
mislíka það þegar kynmök við barn-
unga drengi eru höfð í flimtingum þá
hlýtur undirritaður að vera tepra og í
ljósi þess hefði ég þá átt að sleppa
þessari leikhúsferð. Ég þekki ekki
bandaríska leikskáldið Daniel Guyton
og mér er alveg sama hvað hann hef-
ur hlotið mörg verðlaun – það þarf
ekki að þýða að hann sé leikskáld.
Hann er í mesta lagi þokkalega penna-
fær ,,sketsaskríbent“ svo maður sletti
nú svolítið og því miður var á köflum
allt of mikið af vondu ,,þýðingarmáli“ á
ferðinni (sbr. að gera hluti saman:
doing things together og fleira af því
tagi). Verk þetta ber öll merki þess að
vera bandarískt. Það sprettur úr
bandarískum veruleika eða ættum við
að segja úr veröld homma í New York
borg. Það er auðvitað í fullu samræmi
við þá bandarísku afþreyingarhefð
sem troðið er upp á okkur af öllu afli
þessa dagana að leikhúsmenn láta sér
detta í hug að sviðsetja þetta verk með
svona bráðsmellnum titli sem er vís
með að selja. En af hverju eru menn
að rembast við að staðfæra þennan
bandaríska veruleika upp á Ísland? All-
ir tilburðir í þá veruna falla dauðir til
jarðar. Verkið er saman sett úr misvel
skrifuðum sketsum þar sem hnyttin til-
svör og sniðugir rassa- og typpabrand-
arar fjúka sviðsvængjanna á milli og
sannarlega er hægt að skella upp úr
og það meira að segja oft og mörgum
sinnum. Einkum fram að hléi. Það var
hrein unun að horfa á Gunnar Helga-
son fara á kostum hvort heldur hann
var að leika hinn ferkantaða Garðar
inni í harðlæstum skápnum eða yfir-
hommann Jörgen. Enda væri þessi
sýning ekki neitt, neitt, ef ekki kæmi til
þessi snilldarleikur hjá Gunnari. Sam-
leikur hans og Friðriks í uppgjörsþætt-
inum var hreint út sagt frábær. Ég hef
ekki áður séð téðan Höskuld Sæ-
mundsson leika en hann gerði margt
ágætlega. Hefur djúpa og fallega
barítónrödd en þyrfti að vinna svolítið
betur með framsögnina. Það kemur.
Sömuleiðis átti Friðrik sína góðu
spretti nema hvað hlutverkið hans
bauð ekki upp á mikil tilþrif frá hendi
höfundar. En seinni hluti verksins olli
vonbrigðum, því miður – og allt end-
aði í einhverju farsakenndu uppgjörs-
sulli og áðurnefndri senu með unga
altarisdrengnum sem presturinn var
að misnota. Ég hefði í sporum leik-
stjórans sleppt þessari senu eða látið
nægja að gefa í skyn í stað þess að
sýna þetta svona blákalt. Á stundum
fannst mér húmorinn á því plani sem
unglingspiltar á gelgjuskeiði fara gjarn-
an á og sumir þeirra komast jafnvel
aldrei upp á hærra plan þótt þeir eld-
ist og fullorðnist en ég vona svo sann-
arlega að Guðmundur Ingi Þorvalds-
son komist upp á hærra plan í leik-
stjórn því hann hefur alla burði til þess
en ég segi enn og aftur: Það má vera
að það þurfi kjark til að tefla djarft sem
leikstjóri þegar maður stendur frammi
fyrir því að taka ákvarðanir og velja á
milli hugmynda, en stundum þarf
meiri kjark til að láta hugmyndir fjúka,
jafnvel þótt einhverjum kunni að finn-
ast þær vera tær snilld.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Ég er ekki hommi
Fimbulvetur í Loftkastalanum
Höfundur: Daniel Guyton / Þýðing: Þór-
dís Elva Þorvaldsdóttir Bachman/ Leik-
stjóri: Guðmundur Ingi Þorvaldsson/
Leikarar: Gunnar Helgason, Friðrik Frið-
riksson og Höskuldur Sæmundsson /
Leikmynd og lýsing: Sigurður Kaiser /
Tónlistarstjórn: Ásmundur Angantýsson
/ Hár og förðun: Kristín Thors / Leik-
gervi: Helga Lúðvíksdóttir
Niðurstaða: Verkið er saman sett úr mis-
vel skrifuðum sketsum þar sem hnyttin
tilsvör og sniðugir rassa- og typpabrand-
arar fjúka sviðsvængjanna á milli
27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53
Laugardaginn 29. janúar kl.20:00
Borgarleikhúsið
Verð 2100 kr.
Midasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
UPPSELT laugardag!
AUKASÝNING sunnudag kl. 14.00
KRINGLUKRÁIN UM HELGINA
• Fjölbreyttur sérréttamatseðill
öll kvöld vikunnar
• Tilboðsmatseðill
fyrir Leikhúsgesti
• Hópamatseðill
• Sérsalur fyrir hópa
Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is
Hljómsveitin
Í GEGNUM
TÍÐINA
um helgina
■ TÓNLEIKAR
Á fæðingardegi Mozarts
Undanfarin ár hefur hópur tón-
listarmanna haft það fyrir sið að
minnast fæðingardags Wolfgangs
Amadeusar Mozart með tónleika-
haldi á Kjarvalsstöðum.
Í ár verður fluttur þar píanó-
kvartett í Es-dúr og aríur, tríó og
kvintett úr óperunum Brúðkaupi
Fígarós, Cosi fan tutte og
Töfraflautunni.
Flytjendur eru Valgerður
Andrésdóttir píanóleikari, Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari, Þór-
unn Ósk Marínósdóttir víóluleik-
ari og Sigurður Bjarki Gunnars-
son sellóleikari ásamt nemendum
við Söngskólann í Reykjavík.
Þorsteinn Gylfason heimspek-
ingur mun einnig spjalla um tón-
skáldið og verkin sem flutt verða.
Tónleikarnir hefjast klukkan
18 í dag. ■
WOLFGANG AMADEUS MOZART
Tónlist hans hljómar á Kjarvalsstöðum í til-
efni af fæðingardegi tónskáldsins.
ÉG ER EKKI HOMMI Af hverju eru menn
að rembast við að staðfæra þennan
bandaríska veruleika upp á Ísland? Allir til-
burðir í þá veruna falla dauðir til jarðar.