Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 30
Seint að kvöldi miðvikudagsins 10. des- ember árið 2003 lögðu þingmenn úr öllum þingflokkum fram lagafrumvarp þar sem gert var ráð fyrir að lífeyrisrétt- indi og laun forystumanna flokkanna yrðu hækkuð verulega. Stríðshanskan- um í einu umdeildasta pólitíska máli síðari ára var kastað. Enn sér ekki fyrir endann á því þar sem í ljós hefur komið að vegna frumvarpsins hafa fyrrverandi ráðherrar fengið greiddar sautján millj- ónir króna í eftirlaun þrátt fyrir að vera enn í vel launuðum störfum á vegum ríkisins. Frumvarpið virtist koma flestum þingmönnum í opna skjöldu þegar það var lagt fram og margir reyndust tvístíg- andi í málinu. Verkalýðsfélögin öskureið Verkalýðsforystan var hins vegar ekki lengi að bregðast við og forsvarsmenn Alþýðusambandsins komu saman til fundar strax sama kvöld. Grétar Þor- steinsson, formaður sambandsins, sagði daginn eftir að verkalýðsforustan væri öskureið, enda hefðu laun æðstu ráða- manna hækkað um fimmtíu prósent kjörtímabilið á undan á sama tíma og samið var um sérstakar þrjátíu prósenta launahækkanir fyrir þá lægst launuðu. Á hinum enda vinnumarkaðarins voru viðbrögðin litlu skárri. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, sagði ljóst að frumvarpið hefði haft verulega truflandi áhrif á kjaraviðræður, enda frestuðu Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið kjaraviðræðum vegna þess. Blaðamenn sem fylgdust með fundum verkalýðsforustunnar sögðu loftið rafmagnað í húsakynnum Alþýðusambandsins og símar í húsinu voru rauðglóandi vegna þess að félags- menn hringdu inn yfir sig hneykslaðir. Reiðialda ruddist yfir þjóðfélagið og skall á Austurvelli, þar sem verkalýðs- hreyfingin efndi til útifundar daginn eftir að frumvarpið var lagt fram. Bent var á að aukin útgjöld sem fylgdu frum- varpinu gengju þvert á sparnaðar- aðgerðir ríkisstjórnarinnar fram að því, meðal annars með lækkun vaxtabóta um 600 milljónir króna. Stjórnarandstaðan klofnaði Í þingsal deildu þingmenn hart. Hall- dór Blöndal, forseti Alþingis, mælti fyrir frumvarpinu og sagði lýðræðislega nauðsyn að svo væri búið að æðstu embættum þjóðarinnar að það hvetti til þátttöku í stjórnmálum. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, leit silfrið öðrum augum og sagði frum- varpið skapa sérréttindakerfi þing- manna. Hann sagði að í ríkjum austan- tjalds hefðu forréttindi valdastéttanna birst í svokölluðum dollarabúðum og þar hefðu menn verslað á sérkjörum. Eftirlaunafrumvarpið væri dollarabúð íslenska lífeyrissjóðskerfisins. Stjórnarandstöðuflokkarnir klofn- uðu í herðar niður. Flutningsmenn frumvarpsins virtust milli steins og sleggju en meginþorri þingflokka stjórnarandstöðunnar komst á þá skoð- un að frumvarpið væri vanhugsað, sér- sniðið að þörfum Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, og Tómasar Inga Olrich, þáverandi menntamála- ráðherra, sem voru við það að komast á eftirlaunaaldur miðað við forsendur frumvarpsins. Guðmundur Árni Stef- ánsson, flutningsmaður frumvarpsins fyrir hönd Samfylkginarinnar, stóð fast- ur á sínu þrátt fyrir kröftug mótmæli verkalýðsforkólfa og hótanir um úr- sagnir þeirra úr flokknum. Að lokum reyndist hann eini þingmaður flokksins sem studdi frumvarpið. „Mikill er máttur minn ef svo er,“ sagði Guðmundur aðspurður á þessum tíma hvort hann óttaðist ekki úrsagnir úr flokknum vegna afstöðu hans. Frjálslyndi flokkurinn dró stuðning sinn einnig til baka. Sigurjón Þórðar- son, flutningsmaður frumvarpsins af hálfu flokksins, sagðist hafa verið hafð- ur að fífli. Hann hefði talið að hægt yrði að fella út úr frumvarpinu þingfarar- kaup formanna stjórnmálaflokkanna, en komið hefði í ljós að stjórnarflokkarnir væru ekki til viðtals um slíkt. Þuríður Backman, flutningsmaður frumvarpsins fyrir hönd Vinstri græn- na, ákvað að sitja hjá við afgreiðslu frumvarpsins. Stjórnarflokkarnir einhuga Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sagði sinnaskipti flokk- anna tveggja illskiljanleg. Frumvarpið hefði verið kynnt formönnum allra stjórnmálaflokkanna og þingmenn úr öllum flokkum hefðu stutt það. Það væri einkennilegt að þessir sömu aðilar væru skyndilega þeirrar skoðunar að ýmsir þættir frumvarpsins væru ekki réttlátir. Svo fór að eftirlaunafrumvarpið var samþykkt mánudaginn 15. desember, fimm dögum eftir að það var lagt fram. Þrjátíu þingmenn greiddu því atkvæði sitt en fjórtán reyndust því andvígir. Enginn virtist gera sér grein fyrir því þá sem nú hefur komið í ljós að með samþykki laganna gætu fyrrverandi ráðherrar notið ríflegra eftir- launa fyrir ráðherra- og þing- störf og jafnframt verið á góð- um tekjum fyrir störf í utan- ríkisþjónustunni eða í öðrum störfum á vegum hins opin- bera. Flutningsmenn frum- varpsins ári síðar Frumvarpið var flutt af þingmönnum allra þingflokka. Auk Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, voru það Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingu, Jónína Bjartmarz, Framsóknarflokki, Þuríður Backman, Vinstri grænum, og Sigurjón Þórðarson, Frjálslyndum. Hvað finnst þessu fólki um frumvarpið nú þeg- ar ár er liðið frá því það var sam- þykkt á Alþingi? Jónína Bjartmarz segist ekki vilja tjá sig mikið um málið þar sem hún hafi ekki kynnt sér það að ráði. Það hafi hins veg- ar ekki verið ætlunin á sínum tíma að menn gætu þegið eftirlaun og verið í fullu op- inberu starfi. Því séu líklega allir sammála um að því verði breytt. Guðmundur Árni segist hafa sam- þykkt málið á sínum tíma og hann standi við það. Á hinn bóginn hafi komið í ljós síðar að í áratugagömlum lögum hafi verið að finna galla sem gerði það að verkum að menn sem fengju eftirlaun gætu jafnframt þegið laun frá ríkinu. „Það gengur ekki og ég mun leggja mig fram um það að því verði breytt. Menn eiga ekki að geta verið á sama tíma í vinnu hjá ríkinu og þegið eftirlaun.“ Guðmundur segist ekkert vilja segja um það hvort of hratt hafi verið farið í málið á sínum tíma. Flutningsmenn hættu við Þuríður Backman samþykkti hins vegar ekki lokaútgáfu frumvarpsins þótt hún hefði verið einn af flutningsmönnum þess upphaflega. „Kaup og kjör ráðherra eru auðvitað viðkvæmt mál. Mörgum finnst þeir hafa of mikil fríðindi og há laun þar að auki.“ Hún segist þeirrar skoðunar að meirihlutinn hafi farið fram úr sér í þessu máli. „Þetta var unnið bak við tjöldin og svo rekið óvænt í gegnum þingið og óþarflega hratt. Enda er núna að koma í ljós að fyrrverandi ráðherrar njóta eftirlauna á sama tíma og þeir star- fa sem ráðherrar.“ Hún segir þennan möguleika hafa verið fjarri sínum huga þegar frumvarpið var til umfjöllunar, enda hafi markmið þess verið að auð- velda fyrrverandi þingmönnum og ráð- herrum að fara út af vinnumarkaði. Þur- íður segist þess vegna vilja endurskoða lögin til að koma í veg fyrir þennan möguleika. Sigurjón Þórðarson féll frá stuðningi við frumvarpið þegar það var afgreitt á þingi. Hann segir nú ómaklega vegið að Össuri Skarphéðinssyni, formanni Sam- fylkingarinnar, vegna málsins. „Þetta átti í upphafi að vera þverpólitískt mál en síð- an var breytingartillögum okkar í minni- hlutanum hafnað. Þess vegna er málið al- farið á ábyrgð meirihlutans.“ Sigurjón segist ekki hafa gætt sín nægilega við undirbúning málsins enda hafi hann haft stutta þingreynslu. Ekki náðist í Halldór Blöndal við vinnslu þessarar greinar. Sérkennilegt samfélag Upplýsingar um fyrrverandi ráðherra sem eru á eftirlaunum og í fullu starfi hjá hinu opinbera hefðu ekki komið fram nema vegna umfjöllunar fjölmiðla, að mati Sigurjóns Þórðarsonar. „Þess vegna er Halldór Ásgrímsson nú að reyna að slá sig til riddara með því að boða breyt- ingar. Það gerir hann á sama tíma og hann vill halda því leyndu hverjir það eru sem þiggja þessar tvöföldu greiðslur.“ Sigurjón segir eftirlaunafyrirkomu- lagið hér á landi sýna að við búum í mjög sérkennilegu samfélagi. „Alþingismenn búa við þessi fríðindi á meðan það eru um 11.000 ellilífeyrisþegar sem hafa undir 110.000 krónur á mánuði. Ef þeir vinna sér fyrir einhverju aukalega er elli- lífeyririnn skertur gífurlega. Þetta er óréttlátt.“ F2 10 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Reiðiölduna sem reis af samþykkt eftirlaunafrumvarpsins árið 2003 hefur enn ekki lægt. Guðmundur Hörður Guðmundsson fór yfir sögu málsins og afleiðingar. Frumvarpið samþykkt 30-14 Þrjátíu þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpi um eftirlaun þing- manna, ráðherra, forseta og hæsta- réttardómara í desember 2003 en fjórtán voru andvígir. Já, sögðu: Árni Magnússon Árni M. Mathiesen Bjarni Ármannsson Bjarni Benediktsson Björn Bjarnason Dagný Jónsdóttir Davíð Oddsson Einar Oddur Kristjánsson Geir H. Haarde Guðjón Hjörleifsson Guðjón Ólafur Jónsson Guðmundur Hallvarðsson Guðmundur Árni Stefánsson Guðni Ágústsson Halldór BIöndal Hjálmar Árnason Jón Kristjánsson Jónína Bjartmarz Kjartan Ólafsson Kristinn H. Gunnarsson Magnús Stefánsson Páll Magnússon Pétur H. Blöndal Sigríður Anna Þórðardóttir Sigurður Kári Kristjánsson Sigurrós Þorgrímsdóttir Sólveig Pétursdóttir Sturla Böðvarsson Tómas Ingi Olrich Valgerður Sverrisdóttir Nei, sögðu: Anna Kristín Gunnarsdóttir Ágúst Ólafur Ágústsson Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Grétar Mar Jónsson Gunnar Örlygsson Helgi Hjörvar HIynur Hallsson Jóhanna Sigurðardóttir Jón Bjarnason Katrín Júlíusdóttir Mörður Árnason Sigurjón Þórðarson Steinunn K. Pétursdóttir Ögmundur Jónasson Ellefu þingmenn sátu hjá: Ásgeir Friðgeirsson Björgvin G. Sigurðsson Bryndís Hlöðversdóttir Einar Már Sigurðarson Guðrún Ögmundsdóttir Jóhann Ársælsson Jón Gunnarsson Kristján L. Möller Margrét Frímannsdóttir Rannveig Guðmundsdóttir Þuríður Backman Átta þingmenn voru fjarstaddir: Birkir J. Jónsson Drífa Hjartardóttir Einar K. Guðfinnsson Guðlaugur Þór Þórðarson Gunnar Birgisson Kolbrún Halldórsdóttir Lúðvík Bergvinsson Össur Skarphéðinsson Þegar Sigurjón Þórðarson, flutnings- maður frumvarpsins af hálfu Frjálslynda flokksins, dró stuðning sinn til baka sagðist hann hafa verið hafður að fífli af hálfu meirihlutans. ÞINGMENN GERAST YFIRSTÉTT Mótmælt við Alþingi Verkalýðsforustan skipu- lagði fjölmenn mótmæli vegna frumvarpsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.