Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 43
Benedikt Davíðsson formaður Sambands eldri borgara Aukinn mismunur Með eftirlaunalögunum var verið að búa til yfirstétt í landinu, að mati Benedikts Davíðssonar, formanns Landssambands eldri borgara. Sam- bandið mótmælti frumvarpinu harkalega á sínum tíma. „Við þóttumst sjá það fyrir að verið væri að auka mismuninn í eftir- launakerfinu í landinu þeim hærra launuðu til hagsbóta. Fréttir síðustu daga hafa sýnt fram á að við höfðum rétt fyrir okkur.“ Benedikt segir að um 11.000 einstaklingar sem eru 67 ára eða eldri lifi á 110.000 krónum eða minna á mánuði. „Þetta hafa menn frá Tryggingastofnun en það sem þeir kunna að afla sér til viðbótar leiðir til skerðingar á þessari upp- hæð.“ Af þessum 110.000 þurfa eldri borgarar að greiða 12.000 krónur í skatt. Stór hluti sendiherralauna sem fyrrverandi ráðherrar þiggja er skattfrjáls. „Með þessari lagasetningu var verið að búa til yfirstétt með réttindi umfram aðra í landinu,“ segir Benedikt. Að hans mati eiga þingmenn og ráðherrar að greiða til almennra lífeyrissjóða eins og venjulegt fólk. „Við væntum þess að augu ráðamanna hafi loks opnast fyrir þessu og breyt- ingar verði gerðar þannig að ráðamenn lifi við sambærileg lífeyrisrétt- indi og aðrir þegnar.“ Hann segir breiða gjá þarna á milli eins og kerfið sé nú. „Við vorum hneyksluð á því að sett voru lög til að auka þetta bil.“ Þingmenn skynja ekki kjör almennings, að mati Benedikts. „Ég sat fund með þingmönnum Suðvesturkjördæmis fyrir skömmu þar sem stjórnarþingmenn skömmuðu okkur fyrir að fagna ekki breytingum á erfðafjárskatti. Ég botna ekki í því hvernig slík breyting bætir kjör eldri borgara á nokkurn hátt.“ Eftirlaun Ólafs Ragnars Grímssonar Á grænni grein Samkvæmt lögum um eftirlaun ráðherra, þingmenn og forseta á Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, rétt á 1.446.000 krónum í eftirlaun á mánuði ef hann lætur af emb- ætti við lok núverandi kjör- tímabils. Hann fær 135.273 krónur fyrir þingsetu, 107.498 fyrir störf sem ráðherra og 1.203.168 krónur fyrir störf sem forseti. Mánaðarlegar skattgreiðslur 120 ellilífeyrisþega duga fyrir eftirlaunum Ólafs. Ellilífeyrir frá Tryggingastofnun er 110.000 krónur og af honum eru greiddar 12.000 krónur í skatt. F211FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005 Eiður Guðnason Sendiherra í Kína á rétt á um 250.000 króna eftirlaunum. Eiður segist ekki ræða kjaramál sín við Fréttablaðið. Fréttablaðið hefur nefnt níu fyrrverandi ráðherra sem virðast eiga rétt á eftirlaun- um þrátt fyrir að vera í fullu starfi á vegum hins opin- bera. Samkvæmt upplýsing- um frá Lífeyrissjóði opin- berra starfsmanna hafa sjö einstaklingar í slíkri stöðu hafið töku eftirlauna og þegið samtals sautján millj- ónir króna á síðasta ári. Blaðið sendi þeim níu fyrir- spurn í liðinni viku þar sem spurt var hvort þeir hefðu hafið töku eftirlauna í sam- ræmi við eftirlaunalögin. Svar hefur ekki borist. Friðrik segist ekki hafa hafið töku eftir- launa í samræmi við eftirlaunalögin. Í tilefni upplýsinga sem komið hafi fram í fréttum um rétt sinn hafi hann ákveðið að óska eftir að nýta sér þann áunna rétt. Friðrik Sophusson Forstjóri Lands- virkjunar á sam- kvæmt útreikn- ingum blaðsins eftirlaunarétt upp á 330.000 krónur. Guðmundur Bjarnason Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs á samkvæmt út- reikningum blaðs- ins rétt á um 330.000 krónum í eftirlaun. Jón Baldvin Hannibalsson Sendiherra í Finnlandi hefur rétt á um 370.000 krónum í eftirlaun. Svar hefur ekki borist. Svavar Gestsson Sendiherra í Svíþjóð á rétt á um 350.000 króna eftirlaunum. Tómas segist líta á greiðslur og gjöld sem einkamál. Tómas Ingi Olrich Sendiherra í Frakklandi á rétt á um 150.000 króna eftirlaunum. Svar hefur ekki borist. Þorsteinn Pálsson Sendiherra í Kaupmannahöfn hefur nú rétt á 360.000 krónum í eftirlaun. Hverjir hafa hafið töku eftirlauna? Fátt um svör Svar hefur ekki borist. Kjartan Jóhannsson Sendiherra í Belgíu á rétt á um 210.000 króna eftirlaun- um. Guðmundur segist hafa hafið töku eftir- launa í samræmi við lög. Menn geti síðan að sjálfsögðu haft misjafnar skoðanir á löggjöfinni sem slíkri. Hann var hættur þingsetu þegar hún var sett. Hann telur útreikningana hafa farið úrskeiðis því eftirlaunagreiðslur til hans vegna ráðherrastarfa nemi rúmum 117.000 krónum. Að auki hefur hann eft- irlaun fyrir þingmannsstörf. Sighvatur segir sinn skilning vera að hann hafi ekki enn öðlast rétt til eftir- launa sem ráðherra þar sem hann hafi ekki verið ráðherra í sex ár. Slíkan eft- irlaunarétt hafi hann því ekki fyrr en við 65 ára aldur. Hann segist þó ekki hafa spurst fyrir um það sérstaklega. Hins vegar hafi hann öðlast rétt til töku eftirlauna vegna starfa sem alþingis- maður. Hann hafi ekki hafnað þeim eftirlaunum né látið af starfi sem fram- kvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofn- unar af því tilefni. Hann tók fram að nýju lögin hefðu verið sett um tveimur árum eftir að hann lét af þingmannsstarfi. Sighvatur Björgvinsson Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands á nú samkvæmt út- reikningum blaðs- ins rétt á 290.000 króna eftirlaunum. Við setningu haustþings 2003 Umdeilt frumvarp um eftirlaun þingmanna og ráðherra var lagt fram nokkrum dögum fyrir þinglok. Það var samþykkt fimm dögum eftir að það var lagt fram. Verkalýðshreyfingin frestaði kjaraviðræðum vegna málsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.