Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 ÓKEYPIS LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ á hverju fimmtudagskvöldi kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012. ORATOR, félag laganema við Háskóla Íslands. Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga ÞORRI ÞÁ er þorrinn genginn í garð. Súr-maturinn er kominn í kjötborð mat- vöruverslana. Við hliðina á entre cote og rib eye liggur nú niðursneiddur súr blóðmör og lundabaggar. Súr hvalurinn stingur óneitanlega í stúf við tilbúna fiskrétti. Gamla fólkið horfir græðgis- augum á dásemdirnar en unglingarnir hlæja og gretta sig. ÞORRABLÓT fjölskyldunnar minn- ar var haldið á bóndadaginn. Ég fór í verslunina Svalbarða og keypti einn bita af öllu sem mér datt í hug. Að vísu áttu þeir ekki kæstan humar en allt annað. Svo fór ég í Ríkið og keypti pela af íslensku brennivíni. Það tilheyrir nefnilega. ÞORRABLÓTIÐ sló ekki í gegn. Börnin kvörtuðu yfir lyktinni og fengust treglega til að smakka á kræsingunum. Ég átti sjálfur í mestu erfiðleikum með að koma nokkru nið- ur. Ég stakk upp í mig bita og bita en náði einhvern veginn ekki að éta mig saddan. Eftir að yngsta dóttirin hafði kastað upp hákarlinum ákvað konan mín að sjóða grjónagraut. Ég reyndi eins og ég gat að múta eldri dóttur- inni og lofaði henni ferð fyrir tvo til Florida ef hún bara borðaði allan sels- hreifann. Það var ekki til umræðu. Þannig að ég gafst upp með öllum hinum og fékk mér grjónagraut. HVERJUM datt fyrst í hug þorra- maturinn? Hver var Íslendingurinn sem fyrstur kæsti hákarl? Hvaðan fékk hann hugmyndina? Þekkti hann höfund Njálu? Og hvað fannst öðrum um þetta í fyrstu? Var það sami mað- urinn sem byrjaði að éta hrútspunga? Bjuggu þeir kannski hvor í sínum landshlutanum og hittust, fyrir til- viljun, og skiptust á uppskriftum? ER kannski kominn tími til að endur- hanna þorramatinn og færa hann í nútímalegri búning? Hvað með að fara að bera fram franska osta með? Eða ostrur og snigla? Það mundi óneitanlega lífga uppá mörg þorra- blótin. Svo væri líka hægt að krydda harðfiskinn með chilli og papriku. Svo væri hægt að skola þessu öllu niður með tekíla og tabaskó. Það væru sannkölluð hraustmenni sem mundu smyrja hrútspunga með gorg- onzola og skola því niður með gini í mysu. Úff. ÉG ætla að halda áfram að þræla í mig þorramat. Ég geri það af virð- ingu við forfeður mína. Þetta hélt líf- inu í íslensku þjóðinni öldum saman. Ef súrmatur væri ekki til þá væri ég líklega ekki til. Popp 90tívi væri ekki einu sinni til. ■ JÓNS GNARR BAKÞANKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.