Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,41 62,71
117,07 117,63
81,14 81,60
10,90 10,97
9,86 9,92
8,94 9,99
0,60 0,61
94,74 95,30
GENGI GJALDMIÐLA 26.01.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,70 -0,02%
4 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Þingmenn undrandi
á verðhækkunum
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að fullyrt hafi verið á þingi að raforku-
verð myndi ekki hækka svo nokkru næmi. Nú sé annað að koma í ljós. Þing-
maður Frjálslyndra segir hækkanir allt að 75 prósent.
RAFORKUVERÐ Fólk víðs vegar á
landsbyggðinni óttast verðhækk-
anir á raforku vegna breytinga á
raforkulögum sem tóku gildi um
áramót. Drífa Hjartardóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, segist
hafa orðið vör við þetta á funda-
herferð flokksins um landið.
„Það verður að finna lausn á
þessu því að málið hefur komið
upp á öllum fundum sem við höf-
um haldið,“ segir Drífa. Hún sam-
þykkti lögin í haust en segist hafa
haft efasemdir eins og aðrir. „Við
gagnrýndum mörg frumvarpið
vegna þess að við óttuðumst að
það leiddi til verðhækkana en
annað var fullyrt. Þess vegna kom
þessi niðurstaða í bakið á okkur
þingmönnum“.
Í umræðum á Alþingi í nóvem-
ber á liðnu ári sagðist Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, ekki vilja fullyrða
neitt um verðbreytingar í kjölfar
lagabreytinga. Hún sagði þó að
reynsla margra annarra landa
væri sú að verðið lækkaði. Ef af
hækkun yrði þá yrði hún teljandi í
einhverjum hundraðköllum á ári.
Sigurjón Þórðarson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, segir
hins vegar líkur á að húshitunar-
kostnaður í dreifbýli hækki um 75
prósent og í þéttbýli um 35 pró-
sent. Hækkanirnar verði því
mestar hjá þeim sem þegar greiði
hæstu rafmagnsreikningana, það
er þeirra sem kynda hús sín með
rafmagni. Hann nefnir sem dæmi
að reikningar fjölskyldu á Borð-
eyri sem greiðir nú um 115.000
krónur í húshitunarkostnað á ári
muni hækka um 86.000 krónur og
fjölskylda í þéttbýli á Snæfells-
nesi greiði nú 200.000 krónur á ári
en greiði 270.000 krónur eftir
breytingarnar.
Sigurjón segir þetta óskiljan-
legt í ljósi margtugginnar fullyrð-
ingar iðnaðarráðherra um að ekki
verði til neinn kostnaður við
breytingarnar.
Drífa Hjartardóttir segir að
auka þurfi niðurgreiðslu á raforku
til þeirra sem fara verst út úr breyt-
ingunum, sérstaklega fólks í sveit,
garðyrkjubænda og fiskeldis. Hún
segir að kostnaður við kerfið sé
greinilega meiri nú en áður vegna
þess að nú sjái þrír aðilar um verk
sem einn sinnti áður. Einn framleiði
raforkuna, annar dreifi og sá þriðji
selji. „Það segir sig sjálft að þetta
hlýtur að leiða til verðhækkunar.“
ghg@frettabladid.is
Járnblendifélagið:
Gæti komið
til verkfalls
KJARAMÁL Útlit kjaraviðræðna
starfsmanna og eigenda Íslenska
járnblendifélagsins er verulega
dökkt. Það er mat Verkalýðs-
félags Akraness, sem er í forsvari
fyrir 90 prósent starfsmannanna.
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur verkalýðsfélagsins, segir að
náist ekki samningar á fundi
nefndanna 31. janúar verði fund-
að með starfsmönnum. Það gæti
leitt til verkfalls.
„Það er mjög mikilvægt fyrir
svæðið okkar í heild sinni að
okkur takist að leysa deiluna án
þess að komi til átaka,“ segir Vil-
hjálmur. - gag
FISCHER HANDTEKINN Í JAPAN
Mál hans tekið fyrir í allsherjarnefnd
Alþingis í dag.
Allsherjarnefnd Alþingis:
Fischer á
dagskrá
RÍKISFANG Beiðni Bobby Fischer,
fyrrverandi heimsmeistara í skák,
er á dagskrá allsherjarnefndar Al-
þingis á fundi hennar í dag. Bréf
Fischers var afhent Alþingi form-
lega á mánudag. Þá hefur Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, lýst yfir stuðningi við að
Bobby Fischer fái ríkisborgararétt
hér á landi: „Æskilegast, tel ég, að
þverpólitísk samstaða myndist um
það. Sjálfur er ég reiðubúinn til að
flytja þær tillögur á Alþingi um mál-
ið sem þarf, ef það þokar málinu
áfram,“ segir Össur á heimasíðu
sinni Ossur.hexia.net.
Össur segir þó best að þverpóli-
tísk samstaða náist um málið. „Mér
finnst að vísir að henni liggi þegar
fyrir. Hann kom fram í orðum hins
drenglynda þingmanns Bjarna
Benediktssonar, formanns allsherj-
arnefndar Alþingis, sem talaði
mjög jákvætt um að veita Bobby
Fischer ríkisborgararétt í fréttum
RÚV.“ - ás
MARGIR HYGGJAST KJÓSA 280
þúsund Írakar sem búa erlendis
hafa skráð sig á kjörskrá fyrir
kosningarnar á sunnudag. Flestir
eru frá Íran en alls gátu kjósendur
í fjórtán löndum tilkynnt þátttöku.
Flestir eru þeir í eftirtöldum lönd-
um:
Íran 60.908
Svíþjóð 31.045
Bretland 30.961
Þýskaland 26.416
Bandaríkin 25.946
LANDGÖNGULIÐAR FELLDIR Fjór-
ir bandarískir landgönguliðar lét-
ust í bardaga við vígamenn í
Anbar-héraði í vesturhluta Írak.
Engar fréttir bárust af mannfalli
meðal vígamanna.
SEXTÁN SÆRÐUST Sex bíl-
sprengjuárásir voru gerðar víðs
vegar í Írak í gær. Sextán manns
hið minnsta særðust í árásunum
en ekki var vitað um mannfall.
Víða var ráðist á kjörstaði og
skrifstofur stjórnmálaflokka.
■ MJÖLL FRIGG
■ ÍRAK
Subaru Legacy Wagon
VERÐHÆKKANIR Í DREIFBÝLI
Dreifbýlustu svæðin verða verst úti í breytingum á raforkulögum. Þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa orðið varir við óánægju um allt land.
Lagafrumvarp:
Vill útrýma
klámiðnaði
BANDARÍKIN, AP Matt Bartle, þing-
maður repúblikana á ríkisþingi
Missouri, hefur lagt fram frum-
varp sem á að ganga af klámiðnað-
inum dauðum í ríkinu. Áður hefur
ríkisþingið samþykkt bann við
veggspjöldum sem gera út á kyn-
þokka og því að stúlkur undir nítján
ára aldri vinni við nektardans.
Bartle leggur til að lagður verði
20 prósenta skattur á allar tekjur
fyrirtækja sem gera út á kynlífs-
þjónustu, að 300 króna skattur
verði lagður á hvern viðskiptavin
og að fyrirtækjunum verði bannað
að hafa opið síðla kvölds. ■
VILJA UNDANÞÁGU Mál Mjallar
Friggjar, sem starfar að klór-
vinnslu án starfsleyfa í Kópavogi,
verða rædd í bæjarráði Kópavogs í
dag. Eigendur Mjallar Friggjar
hafa sótt um undanþágu frá starfs-
leyfi í allt að sex mánuði til um-
hverfisráðuneytisins. Þeir vilja
sýna bæjaryfirvöldum að engin
hætta stafi af framleiðslunni, sam-
kvæmt fréttum RÚV.
Brottvísun kvænts karlmanns:
Vísað úr landi
vegna aldurs
DVALARLEYFI Jórdaninn Said Hasan
uppfyllti ekki skilyrði til að fá
dvalarleyfi hér á landi, að sögn
Hildar Dungal, setts forstjóra Út-
lendingastofnunar. Ásthildur Al-
bertsdóttir, eiginkona Said Hasan,
hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir
að vísa honum úr landi, en hann á
að auki barn hér á landi.
Umsókn Hasan um dvalarleyfi
var synjað þar sem hann er 23 ára
en samkvæmt lögum er útlend-
ingum utan EES yngri en 24 ára
bannað að ganga í hjónaband hér
á landi. Þegar lögin voru sam-
þykkt í fyrra var þessi regla höfð
með vegna hættu á nauðungar-
hjónaböndum, sem eru þegar for-
eldrar þvinga börn sín í hjúskap,
og málamyndarhjónaböndum,
sem stofnuð eru eingöngu í þeim
tilgangi að afla dvalarleyfis.
Hildur Dungal segir að Hasan
hafi dvalið hér ólöglega þangað til
honum var synjað um dvalarleyfi.
„Hann sótti ekki um fyrr en áritun
var að renna út og þegar umsókn-
inni var synjað var honum veitt
tækifæri til að yfirgefa landið.
Hann gerði það ekki og því var
honum vísað úr landi.“ Vegna þess
fær maðurinn ekki að koma aftur
til landsins fyrr en að þremur
árum liðnum. - ghg
SAID HASAN OG
ÁSTHILDUR ALBERTSDÓTTIR
Honum var vísað úr landi vegna aldurs.