Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 70
38 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR LEIÐRÉTTING Í blaðinu í gær var ranglega sagt að Erlendur Steingrímsson, smíðakennari við Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti, væri einn af knattspyrnuþjálfurum í fótbolta- leiknum Championship Manager. Hið rétta er að Erlendur er þjálf- ari í fótboltaleiknum Football Manager 2005. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Dorrit talar um gömlu ástirnar í lífi sínu – hefur þú séð DV í dag? Íslenska auglýsingastofan Johnson & Le’macks hlaut nýverið hin virtu Epica-verðlaun fyrir auglýsinga- herferð sína fyrir 66˚ norður. Þau voru afhent í óperuhúsinu í Búda- pest í Ungverjalandi. Stofan fékk gullverðlaun í fata- flokki, sem þykir vel af sér vikið því herferðir fyrir ekki ómerkari merki en Lee, Levi’s og Diesel hafa áður unnið til þessara sömu verð- launa. Alls voru um 5.000 tilllögur sendar í keppnina sem dómnefnd fór síðan yfir og gaf einkunn. „Þetta eru evrópsk auglýs- ingaverðlaun sem eru haldin af auglýsingafagtímaritum. Við vorum þarna í hópi með auglýs- ingastofum um alla Evrópu,“ seg- ir Viggó Jónsson hjá Johnson & Le’macks. „Þetta er mikill heiður og búið að vera mjög skemmti- legt. Þessi herferð okkar er búin að taka heilt ár. Þetta er hellings- vinna. Við höfum verið að þvæl- ast um Suðurnes og Vesturland og leita að tökustöðum. Við höfum lagt verulega mikið í vinn- una til að gera þetta sérstakt,“ segir hann. ■ Gullverðlaun fyrir auglýsingaherferð LUKKULEGIR Hallgrímur Egilsson, Hilmar Þorsteinn Hilmarsson, Ari Magnússon (ljósmyndari), Viggó Jónsson og Agnar Tryggvi Le’macks voru lukkulegir í Ungverjalandi með verðlaunin. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 A-vítamíns. 26 ára. 280 þúsund manns. Bjarkarmyndbandið við lagið Triumph of a Heart af nýjustu plötu hennar, Medúlla, var frum- sýnt í þættinum Óp í gærkvöldi. Fjallar það um ástarsamband Bjarkar og kattarins Mura og var leikstýrt af hinum þekkta Spike Jonze, sem meðal annars gerði kvikmyndirnar Being John Malkovich og Adaptation. Við tökur á myndbandinu kom í ljós að Björk var með ofnæmi fyrir kettinum og setti það strik í reikninginn eins og gefur að skilja. „Spike þurfti að breyta heilmiklu í sínu tökuplani. Það var gaman að sjá hvernig hann fann lausnir og stökk sjálfur inn í atriðin,“ segir Einar Sveinn Thordarson hjá fyrirtækinu Pegasus, sem framleiddi mynd- bandið. „Hann var meðal annars staðgengill fyrir Björk þar sem hún rennur eftir götunni og hann var líka í kattarbúningi að dansa við Björk,“ segir hann. Einnig var notast við brúðuketti og gerviloppur í myndbandinu. Að sögn Einars var ofboðslega gaman að taka upp atriðið, sem gerist á barnum Sirkus. Eftir að opinberum tökum var lokið var haldið þar í partí fyrir þá sem unnu að myndbandinu. Samt sem áður var haldið áfram að mynda til klukkan tvö um nóttina. „Það voru allir með í þessu. Þetta voru áhrif sem hann vildi bæta inn í,“ segir hann um þessi óvenjulegu vinnubrögð. Aðspurður segir Einar að mjög gaman hafi verið að starfa með Spike. „Hann var rosalega mikið með í öllu. Hann var að vasast í leikmynd og öllu sem þurfti að gera. Hann var mjög ákafur og spenntur yfir öllu og hann smitaði mikið út frá sér. Það fengu allir sterka tilfinningu um að þeir væru virklega með í verkefninu.“ Spike var að koma hingað til Íslands í annað sinn, en hann hafði áður millilent hér sem ungur drengur. Leist honum mjög vel á land og þjóð og var mjög spenntur fyrir því að starfa hér við fleiri verkefni í framtíðinni. freyr@frettabladid.is BJARKARMYNDBAND FRUMSÝNT Í GÆR: VANDRÆÐI Á TÖKUSTAÐ Björk með ofnæmi fyrir Mura AÐ MÍNU SKAPI KARL HENRÝ HÁKONARSON, SÖNGVARI Í TENDERFOOT TÓNLISTIN Þessa dagana hef ég hlustað mikið á nýju Elliott Smith-plötuna: From a Basement on the Hill og hún er bara hrein snilld. Svo hef ég mikið lagt hlustir við Jesse Harris and the Ferdinandos, sem er mjög skemmti- legt kántríband. Forsprakki sveitarinnar er Jesse Harris, en hann er óviðjafnanlegur lagahöfundur og samdi til dæmis nokkur lög á fyrstu plötu Noruh Jones. BÓKIN Ég er mikið fyrir Stephen King-bækurnar og hef lesið flestar þeirra. Ég er líka mikill aðdáandi ævisagna og les þá helst ævisögur tónlistarmanna. Það sem stendur upp úr er Light My Fire: My Life With the Doors skrifuð af Ray Manzarek, hljómborðsleikara Doors, um lífið í hljóm- sveitinni. Frábær bók, þar sem ekkert er verið að fegra hlutina. BÍÓMYNDIN Ég horfi mikið á bíómyndir og ég á mér ótal uppáhaldsmyndir, en þær sem koma fyrst upp í hugann eru til dæmis myndir eins og Fargo, snilldar svartur húmor og William H. Macy fer á kostum. Svo er það Fight Club, en Edward Norton er einn af mínum uppáhaldsleik- urum; hann klikkar aldrei. BORGIN Við strákarnir í Tenderfoot fórum og spiluðum á nokkrum tónleikum í New York í fyrra og ég heillaðist gjörsamlega af borginni. Madrid er líka frábær en þar dvaldi ég sumarið 2002. Tók með mér gítar og upptöku- græjur og samdi alveg fullt af lögum. Það var mjög skemmtilegur tími. BÚÐIN Geisladiskabúð Valda á Vitastíg. Safnarabúð af bestu gerð með gott úrval af tónlist, DVD og tölvuleikjum. VERKEFNIÐ Við í Tenderfoot erum á leiðinni á By: Larm- tónlistarfestívalið í Noregi í byrjun febrúar. Svo kemur plat- an okkar út í Evrópu og Japan um mánaðamótin febrú- ar/mars og fljótlega upp úr því förum við út og fylgjum plötunni eftir. Elliott Smith, New York, safnarabúðir og ævisögur ...fær Arnór Atlason, handknatt- leiksmaðurinn ungi, sem skoraði síðasta mark Íslands gegn Slóven- um í leik þjóðanna á heimsmeist- aramótinu í Túnis í fyrradag. Það dugði þó skammt. HRÓSIÐ Lárétt: 2 afl, 6 örtröð, B eins um a, 9 flugfélag, 11 más, 12 versla, 14 yndis, 16 ógrynni, 17 hluti af borgarnafni, 18 beljaka, 20 tveir eins, 21 gugginn. Lóðrétt: 1 þéttur reykur, 3 tími, 4 misstir, 5 traust, 7 hálstau, 10 grip, 13 tvenna, 15 hryggð, 16 garg, 19 leyfist. Lausn. Lárétt: 2mátt,6ös,8rar, 9klm,11pú, 12kaupa,14unaðs,16of, 17rio,18 rum,20rr, 21grár. Lóðrétt: 1mökk,3ár, 4tapaðir, 5trú,7 slaufur, 10mun,13par, 15sorg,16org, 19má. SPIKE, MURI OG BJÖRK Björk var með ofnæmi fyrir kettinum Mura og því þurfti leikstjórinn Spike Jonze að bregðast skjótt við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.