Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 18
18 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Kúrdar gætu haft fram- tíð Íraks í sínum hönd- um en margir þeirra geta vel hugsað sér að landið verði eingöngu lauslegt ríkjasamband eða að það verði jafnvel brotið niður í þrjú sjálf- stæð ríki. Í rakar kjósa sér stjórnlagaþingá sunnudaginn sem munákveða framtíðarskipan þessa stríðshrjáða ríkis. Hins vegar er engin eining á meðal þjóðarbrot- anna í landinu í þessum efnum, vel má vera að útkoman verði lauslegt ríkjasamband eða jafnvel þrjú sjálfstæð ríki Kúrda, sjía- og súnní- araba. Slík skipan væri síðast- nefnda hópnum verulega óhagstæð. Umdeilt neitunarvald Írakar ganga að kjörborðinu á sunnudaginn og kjósa sér stjórn- lagaþing en verkefni þess verður meðal annars að útbúa nýja stjórn- arskrá sem þjóðaratkvæði verður greitt um síðar á þessu ári. Nýja stjórnarskráin mun leysa af hólmi bráðabirgðastjórnarskrána sem bandaríska hernámsstjórnin færði Írökum fyrir tæpu ári og þar með ákveða framtíðarskipan landsins. Erfitt er að segja fyrir um hver út- koman verður en víst er að Kúrdar, sem byggja norðurhéruðin, gætu vel hugsað sér að landinu yrði skipt upp í lauslegt ríkjasamband þriggja ríkja, jafnvel þrjú sjálf- stæð ríki, og margir sjíar eru sömu skoðunar. Samkvæmt bráðabirgða- stjórnarskránni er Írak sambands- ríki átján héraða. Eitt umdeildasta ákvæði hennar er að ef þorri íbúa þriggja héraða hafnar nýju stjórn- arskránni í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni í haust öðlast hún ekki gildi. Þetta þýðir í raun að Kúrdar hafa neitunarvald yfir stjórnarskránni þar sem þeir eru í yfirgnæfandi meirihluta í þremur nyrstu héruð- um landsins, kúrdíska sjálfstjórn- arsvæðinu. Sjíar, með Ali Sistani erkiklerk í broddi fylkingar, eru æfir yfir þessari stöðu. Ró og spekt í Kúrdistan Kúrdar hafa í orði kveðnu haft heimastjórn síðan 1974 en hún komst ekki á í raun fyrr en árið 1991. Ólíkt öðrum hlutum landsins hefur friður ríkt í Kúrdistan und- anfarin misseri, stjórnmálaástand er tryggt og efnahagsuppbygging gengur vel. Auðugar olíulindir eru á yfirráðasvæðum Kúrda, sérstak- lega ef borgin Kirkuk og nærsveit- ir hennar eru teknar með í reikn- inginn, en um yfirráð borgarinnar stendur mikill styr. Stærstu stjórn- málaflokkar Kúrda bjóða fram sameiginlegan lista í kosningunum á sunnudaginn og eru allar líkur á að honum muni farnast vel. Kúrdar telja sig eiga fátt sam- eiginlegt með aröbunum sem byggja suðrið enda hafa litlir kær- leikar verið þeirra í millum. Á síð- asta ári skrifuðu tveir þriðju hlutar atkvæðisbærra Kúrda undir skjal þar sem atkvæðagreiðslu um fullt sjálfstæði héraðsins var krafist. Menntamenn og ungt fólk voru þar áberandi. Helstu leiðtogar Kúrda, til dæmis Jalal Talabani og Massoud Barzani, segja hins vegar að markmiðum Kúrda sé hægt að ná innan ríkjasambands, fullt sjálf- stæði sé ekki nauðsynlegt. Sjíar skoða málin Sjíar eru fæstir þeirrar skoðunar að sjálfstætt sjía-ríki í suðrinu sé æskilegt en margir vilja að héruð þeirra fái mun meira sjálfræði. Heittrúaðar sjía-hreyfingar eru sumar hverjar áfram um að ís- lamskt ríki verði á endanum stofn- að. Þær gera sér jafnframt grein fyrir að slíkt sé erfitt í landi þar sem Kúrdar og súnní-arabar eru fjölmennir svo sem sjá má af yfir- lýsingu sameiginlegs framboðs- lista sjía á mánudaginn þar því var lýst yfir að íslamskt ríki væri ekki á döfinni. Því væri hins vegar hægt að koma á í sjía-hluta lauslegs ríkjasambands. Ekki má gleyma því að á sjía-svæðunum eru gífur- lega mikilvæg olíuvinnslusvæði og að þeim gætu sjíar þá setið einir. Súnníar uggandi Magnús Þorkell Bernharðsson, sér- fræðingur í málefnum Íraks, segir að íraskir kollegar hans hafi marg- ir hverjir áhyggjur af þessari þró- un og telji hana geta aukið enn á spennuna á milli þjóðarbrotanna. „Þeir óttast að landinu verði skipt upp og Írak heyri sögunni til.“ Magnús segir að margir Banda- ríkjamenn séu þeirrar skoðunar að skipting landsins væri auðveldasta lausnin fyrir þá þar sem friður myndi ríkja í nyrðri og syðri hlut- um landsins. Þá væri hægt að ein- beita sér að hinum róstusömu súnní-svæðum en hagur þeirra hef- ur versnað mikið eftir að Saddam var steypt af stóli. „Súnní-beltið yrði eitt fátækasta ríki heims því þar er engin olía og það finnst mörgum í Bandaríkjunum súnn- íarnir eiga skilið.“ Magnús bendir hins vegar á að þessar hugmyndir geri ráð fyrir að skipting þjóðar- brotanna eftir landsvæðum sé mjög skýr þegar dreifing þeirra sé í raun mun meiri. Kúrdar hafa framtíð ríkisins í hendi sér Tíminn einn mun leiða í ljós hver framvinda mála verður. Sennilega munu sjíar gera sig ánægða í sam- einuðu Írak enn um sinn þar sem allar líkur eru á að þeir muni öðlast yfirburðastöðu í landinu eftir kosn- ingar. Erfiðara verður hins vegar að gera Kúrdum til hæfis. Beri þeir skarðan hlut frá borði í kosningun- um á sunnudag og verði atlaga gerð að sjálfstæði þeirra í kjölfarið er allt eins líklegt að þeir nýti sér neitunarvald sitt í stjórnarskrár- gerðinni og knýi á um fullt sjálf- stæði. Það þýddi endalok Íraks í núverandi mynd. ■ Um 120 manns sitja nú í fimm fang- elsum á Íslandi. En hvert er hið hefð- bundna ferli fangavistunar? Boðun til afplánunar Þegar Fangelsismálastofnun hefur borist dómur er viðeigandi dómþola tilkynnt hvenær hann skuli mæta til afplánunar. Þeir sem hafa hlotið sex mánaða dóm eða meira eru boðaðir til afplánunar þremur vikum eftir dagsetningu boðun- arbréfs en þeir sem hafa hlotið sex mánaða fangelsisrefsingu eða minna eru boðaðir til afplánunar fimm vikum eftir dagsetningu bréfsins. Þeir sem af- plána skemmri refsingar gera það oft í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg þar sem þeir mæta til afplánunar, en flestir eru þó fluttir til vistunar í önnur fang- elsi. Heimilt er að veita frest á afplánun í allt að sex mánuði en það er almennt ekki gert nema í undantekningartilfell- um. Fangelsin Á Litla-Hrauni eru flestir fangar lands- ins en þar eru 87 pláss. Þeir sem fá þriggja ára refsingu eða hærri eru und- antekningarlítið vistaðir á Litla-Hrauni. Í Fangelsinu Kvíabryggju eru fjórtán pláss og er fangelsið opið að því leyti til að þar eru hvorki rimlar fyrir gluggum og svæðið ekki sérstaklega afgirt.ÝÞar eru einkum vistaðir menn meðÝlítinn sakaferil. Fjöldi klefa í hverju fangelsi ræður nokkru um vistun, til dæmis gætu fleiri fallið undir þann hóp sem heppilegt væri að vista á Kvíabryggju en pláss er fyrir. Í fangelsinu í Kópavogi eru tólf pláss og þar eru kvenfangar vistaðir og eru þær að jafnaði fjórar til átta og með þeim eru vistaðir karlfangar. Í fangelsinu á Akureyri eru níu pláss og hafa þar eink- um verið vistaðir fangar með skemmri dóma. Afplánunartími Þeir sem eru dæmdir til sex mánaða fangavistar eða minni geta sótt um að taka út refsingu í samfélagsþjónustu og jafngildir 40 stunda samfélagsþjónusta eins mánaðar fangelsisafplánun. Fangar sem afplána óskilorðsbundna fangelsisrefsingu geta sótt um reynslu- lausn, annaðhvort eftir helming refsi- tímans eða tvo þriðju hluta hans. Al- gengast er að menn sitji inn tvo þriðju hluta refsingarinnar. Föngum er að jafnaði ekki veitt reynslu- lausn þegar liðinn er helmingur refsi- tímans ef þeir sitja inni fyrir manndráp, ofbeldis- eða kynferðisbrot, meiriháttar fíkniefnabrot eða annað brot sem er sérlega gróft nema sérstakar ástæður mæli með því. ■ Flestir sitja tvo þriðju refsingar HVAÐ ER? AFPLÁNUN FANGELSISREFSINGAR Írak varð til í kjölfar heimsstyrjaldarinnar fyrri en þá skiptu Bretar og Frakkar hinu fornfræga Ottómanaveldi á milli sín. Árið 1932 varð Írak sjálfstætt konungdæmi. Síðari hluti tuttugustu aldar einkenndist af ólgu og valdaránum en árið 1968 náði Baath-flokkur Saddams Hussein valdataumunum. Kosningarnar á sunnudaginn gefa hinum fjölmörgu þjóðarbrotum sem búa í Írak tækifæri til að hafa sitt að segja um stjórn landsins. Tæp tuttugu prósent írösku þjóðarinnar eru Kúrdar. Helstu leiðtogar þeirra segjast eingöngu vilja halda sjálfræði sínu en margir Kúrdar vilja fullt sjálfstæði. Áður en flugbannssvæðum yfir Kúrdistan var komið á eftir stríðið árið 1991 voru þúsundir Kúrda drepnar af hersveitum Saddams. 80 prósent þorpa þeirra voru eyð- lögð. Þrjátíu prósent Íraka eru súnníar en stór hluti þeirra er Kúrdar. Lengst af hefur Írak verið stýrt af súnníaröbum og þeim líst illa á að búa í landi sem sjíar stjórna, eins og talsverðar líkur eru á eftir kosningarnar. Stærstur hluti uppreisn- armanna í Írak er súnn- íarabar en þeir telja bráðabirgðastjórnina vera leppstjórn Banda- ríkjanna. Sjíar eru um sextíu pró- sent írösku þjóðarinnar og marga helgustu staði sjía er að finna í land- inu. Sjíar voru kúgaðir á valdatíma Saddams en búist er við að þeir öðlist yfirburðastöðu að loknum kosningunum enda er búist við góðri kjörsókn úr þeirra röð- um. Sjíar ráða lögum og lofum í Íran en við þá háði Saddam marga hildi. ÞJÓÐARBROT Í ÍRAK KO RT /A P SJÍAR Í SÁTTAHUG Humam Hammoudi, frambjóðandi sameinaðs lista sjía, hefur lýst því yfir að framboðið hyggist ekki beita sér fyrir stofnun íslamsks ríkis. Ali Sistani horfir vökulum augum á. M YN D /A P SVEINN GUÐMARSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING STJÓRNSKIPAN Í ÍRAK MÓÐINS Í MIÐ-AUSTURLÖNDUM Þessi glæsilegi kjóll og andlitsblæja eru til sýnis á tískuvikunni sem fram fer í Beirút í Líbanon um þessar mundir. Búningurinn er hugðarverk kúvæska hönnuðarins Suwsan Alduwish. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P Skipting Íraks í þrennt er möguleiki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.