Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005 Hvað viltu verða þegar þú ert orðin(n) “stór”? Ertu að gera það sem að þér finnst skemmti- legast að gera? Lætur þú verða af draumum þínum? Nýtur þú velgengni? Námskeið um að njóta lífsins til fulls verður haldið föstudagskvöldið 28 janúar og laugardaginn 29 janúar. Leiðbeinendur eru Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Upplýsingar og skráning í síma 660-0741 ( Árelía ) og 690-0775 ( Petrína ) milli kl. 10:00 og 14:00 Símafyrirtækin óttast að Síminn misnoti tök sín á grunnnetinu eftir að fyrirtækið verður einka- vætt. Fjarskiptafyrirtækin sem eru í sam- keppni við Símann sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem því er mót- mælt að grunnnet Símans verði selt með annarri starfsemi þegar fyrir- tækið verður einkavætt. Félögin sem stóðu að tilkynning- unni eru Og Vodafone, Inter og eMax. Þau halda því fram að reynsl- an hafi sýnt að eftirlitsaðilar hafi ekki bolmagn til þess að standa vörð um leikreglur sem tryggja eigi að Síminn misbeiti ekki eign sinni á grunnnetinu til að gera samkeppnis- aðilum erfitt fyrir. Eiríkur S. Jóhanssson, forstjóri Og Vodafone, segist ekki telja að yfirlýsingin komi of seint þótt fyrir liggi að forsvarsmenn beggja ríkis- stjórnarflokkanna hafi lýst því yfir að ekki eigi að skilja grunnnetið frá öðrum rekstri við einkavæðinguna. „Ég veit að menn hafa áhyggjur af þessu og ef svo er þá er mikill ábyrgðarhluti að halda áfram á sömu braut,“ segir Eiríkur. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins og nefndarmaður í einkavæðingar- nefnd, segir ekkert hafa komið fram sem gefi ástæðu til að endurskoða þá ákvörðun sem tekin var síðast þegar til stóð að selja Símann. Þá var tekin ákvörðun um að aðskilja grunnnetið ekki frá öðrum rekstri. - þk KB banki slær hagnaðarmet Hagnaður KB banka var tæpir sextán millj- arðar, sem er mesti hagnaður íslensks fyrir- tækis. Afkoman var töluvert yfir vænting- um greiningardeilda. Ríflega þrír milljarðar verða greiddir til hlut- hafa bankans. Hagnaður KB banka í fyrra var 15,7 milljarðar króna eftir skatta. Þetta er mesti hagnaður sem ís- lenskt fyrirtæki hefur nokkru sinni skilað. Hagnaðurinn fyrir skatta nam rúmum 20 milljörðum króna. Hagnaður bankans á fjórða ársfjórðungi var rúmir fjórir milljarðar króna, sem er langt yfir spám greiningardeilda. Hagnaðurinn ríflega tvöfaldast frá árinu áður. Eignir bankans hafa aukist um 176 prósent og voru um áramótin 1.534 milljarð- ar. Arðsemi eigin fjár var 22,6 prósent en markmið bankans er að arðsemi eigin fjár sé fimmtán prósent. Hreiðar Már Sigurðsson, for- stjóri KB banka, segist mjög sátt- ur við afkomuna á fjórða árs- fjórðungi. Aðstæður á Íslandi hafi þó ekki verið bankanum hagstæð- ar. „Niðurstaðan sýnir að bankinn byggir á traustum tekjustofni. Þrátt fyrir að gengishagnaður dragist verulega saman varð góð aukning í þóknanatekjum, einkum vegna fyrirtækjaverkefna.“ Vaxtatekjur jukust einnig veru- lega og segir Hreiðar Már það skýrast meðal annars af kaupum á danska bankanum FIH, sem er inni í samstæðureikningum bank- ans frá því um mitt ár. „Bankinn tvöfaldaði stærð sína og skýrist það annars vegar af yfirtöku á danska bankanum FIH og hins vegar af örum innri vexti.“ Ríflega helmingurinn af hagn- aði KB banka kemur nú til vegna starfsemi utan Íslands. Þegar litið er á afkomu einstakra sviða bank- ans á fjórða ársfjórðungi sést að fyrirtækjasvið skilar mestri framlegð eða 4,2 milljörðum, fyrirtækjaráðgjöfin skilar tæpum tveimur milljörðum, en framlegð af viðskiptabankastarfseminni, sem er nær öll hér á landi, skilar bankanum 800 milljónum króna. Á viðskiptabankasviði eru einnig hæstu rekstrargjöldin, rúmur milljarður króna. KB banki færði 975 milljónir króna á afskriftarreikning á árs- fjórðungnum en framlög á af- skriftarreikning í fyrra nema 3,8 milljörðum króna. Bankinn hefur hreinsað til í lánasafni sínu og telja stjórnendur bankans að framlög á afskriftarreikning muni lækka á þessu ári frá árinu í fyrra. Horfur í rekstri bankans eru jákvæðar að mati bankans og erlend starfsemi hefur gengið vel. Mat stjórnenda bankans er að á helstu efnahagssvæðum þar sem bankinn starfar séu horfur góðar. Í Danmörku eru horfur al- mennt jákvæðar, en Danmörk er nú mikilvægasta einstaka mark- aðssvæði bankans. Stjórn KB banka ákvað að verja 3,3 milljörðum af hagnaði bankans í greiðslu arðs. Það svar- ar til um eins prósents af mark- aðsvirði bankans. Eiginfjárhlut- fall bankans samkvæmt CAD- reglum var 14,2 prósent, en bank- inn miðar við að það hlutfall verði ekki lægra en ellefu prósent. Bankinn hefur samkvæmt því talsverðan slagkraft til frekari útrásar. haflidi@frettabladid.is YFIR VÆNTINGUM KB banki skilaði tæpum sextán milljörðum í hagnað í fyrra, sem er met. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bankans, segist sáttur við uppgjör síðasta fjórðungs síðasta árs. Aðstæður á íslenska markaðnum hafi þó ekki verið hagfelldar. Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 71 14 0 1/ 20 05 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 2 71 14 0 1/ 20 05 Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. Dagskrá: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu reikningsári. 4. Tillögur til breytinga á samþykktum. 5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði allt að 10% af eigin bréfum. 6. Kosning bankaráðs. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil. 9. Önnur mál. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en átta dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal um framboð til bankaráðs eigi síðar en 31. janúar 2005. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins fela í sér hækkun á heimild bankaráðs til hækkunar hlutafjár. Er hluthöfum bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda munu liggja frammi í aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund. Einnig verður hægt að nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf fundarins. Bankaráð Landsbanka Íslands hf. Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn á Nordica hótel, laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00. 410 4000 | landsbanki.is KB BANKI SPÁR UM HAGNAÐ 4. ársfjórðungur 2004 Landsbankinn1.525 milljónir Íslandsbanki3.005 milljónir Niðurstaða 4.055 milljónir Vilja aðskilnað grunnnetsins EIRÍKUR S. JÓHANNSSON Forstjóri Og Vodafone vill ekki að einkavæddur Sími ráði einnig yfir grunnnetinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.