Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 42
12 ÚTBOÐ ATVINNA NÁM Hvar ætlar þú að auglýsa? Á sunnudögum fylgja sérblöð bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sem fjalla um atvinnumál og eru atvinnuauglýsingar helsta efni þeirra. Bæði blöðin eru svokölluð innblöð, þ.e. þau eru í miðju aðalblaðanna þannig að lesendur þeirra rekast á atvinnublöðin og ákveða þá hvort þeir skoða þau eða ekki. En hverjir fá blöðin? Við leituðum svara í fjölmiðla- og neyslukönnunum Gallups. Fjölmiðlakannanir Gallups eru gerðar í samvinnu við alla stærstu miðla landsins, Samtök auglýsenda og Samtök íslenskra auglýsingastofa, og eru viðurkenndar af þeim sem eina rétta aðferðin til að bera saman fjölmiðlanotkun landsmanna. Kannanirnar eru kynntar á heimasíðu Gallups sem niðurstöður en ekki túlkun. Ertu að leita að góðum starfsmanni? Tvær spurningar: Hversu sennilegt er að fólk í atvinnuleit lesi ekki atvinnuauglýsingarnar í Fréttablaðinu (95% þeirra fá blaðið)? Er ekki kominn tími til að laga birtingar á atvinnuauglýsingum að nýjum veruleika á blaðamarkaði eins og öll stærstu fyrirtækin í landinu hafa gert með sínar venjubundnu auglýsingar? 1) 95% heimila í Reykjavík og í nágrenni fá Fréttablaðið heim til sín á morgnana, sem þýðir að 95% þeirra sem eru í atvinnuleit fá atvinnublað Fréttablaðsins heim til sín á sunnudögum. 2) 48% heimila á sama svæði eru með áskrift að Morgunblaðinu, sem þýðir að 52% þeirra sem eru á aldrinum 12-80 ára í atvinnuleit þurfa að fara út í búð og ná sér í Moggann ef þeir vilja skoða atvinnublaðið sem honum fylgir. 3) 72% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára búa á heimilum sem EKKI eru með áskrift að Morgunblaðinu, sem þýðir að 72% landsmanna á aldrinum 20-40 ára sem eru í atvinnuleit ára þurfa að fara út í búð ef þeir vilja skoða atvinnublað Morgunblaðsins á sunnudögum. 4) Ungt fólk er í langflestum tilfellum markhópur atvinnuauglýsinga og svona les það sunnudagsblöðin, samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups í október síðastliðnum: 65% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára fletta ekki sunnudagsblaði Morgunblaðsins né heldur 72% kvenna undir 35 ára aldri, sem getur varla hljómað vel fyrir fyrirtæki í leit að góðum starfsmönnum. VIÐ HÖFUM SÉRSTÖÐU Í HEIMINUMI Í I I Forsíða Um Ísland Senda póstLeitarorð http:// www.si.is Flýtival Upplýsingar um Útboðsþing veita Samtök iðnaðarins í síma 591 0100, netfang arni@si.is eða eyjolfur@si.is. Þingið er á vegum Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda. ÚTBOÐSÞING 2005 Grand Hótel 28. janúar 2005 frá kl. 13:00 til 17:00 Dagskrá: Verklegar framkvæmdir Árlegt Útboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda verður haldið föstudaginn 28. janúar kl. 13:00 á GRAND HÓTEL. Gefið verður yfirlit yfir öll helstu útboð verklegra framkvæmda á vegum ríkisins, Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar og Hafnarfjarðarbæjar. Kynntar verða framkvæmdir þeirra opinberu stofnana sem mest kveður að á útboðsmarkaði. Á þinginu gefst verktökum og öðrum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í verkefnaframboð ársins. Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri SI Hrólfur Jónsson sviðsstjóri framkvæmdasviðs Óskar Valdimarsson forstjóri Sigurður Áss Grétarsson forstöðumaður hafnasviðs Björn Stefánsson deildarstjóri virkjanadeildar Rögnvaldur Gunnarsson forstöðumaður framkvæmdadeildar Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Þórður Guðmundsson forstjóri Ásgeir Margeirsson aðstoðarforstjóri Fundarstjóri: Reykjavíkurborg: Framkvæmdasýsla ríkisins: Siglingastofnun: Landsvirkjun: Vegagerðin: Kópavogsbær: Hafnarfjarðarbær: Landsnet: Orkuveita Reykjavíkur: Samtök iðnaðarins hvetja félagsmenn að koma og taka þátt í umræðum um framkvæmdir opinberra aðila á næstu misserum. Þingið er opið öllum. Kaffi og léttar veitingar fyrir gesti að loknu þingi. Október 2005 Fólk í fiskvinnslu Vantar fólk í fiskvinnslu í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 845-5141 og 897-0447 eftir klukkan 13 á daginn. Heimakynningar Óskum eftir að ráð fólk til sölu á kvenfatnaði og fylgihlutum víðsvegar um landið á heimakynning- um. Falleg og auðseljanleg vara. Góðir tekjumögu- leikar fyrir duglegt fólk. Nánari upplýsingar í síma 568-2870 eða á www.friendtex.is Hyggur þú á háskólanám? Er stærðfræðin ryðguð? Jafnvel gleymd og grafin? Á vorönn 2005 hyggst Fræðslunet Austurlands bjóða upp á 20 kest. grunnnám í stærðfræði víða um landið. Námið er hugsað sem upprifjun og undirbúningsnám fyrir nám á háskólastigi og er það skipulagt í samvinnu við Við- skiptadeild Háskólans á Akureyri. Miðað er við námsefni sem almennt er kennt í 103 – 203 áföngum í framhalds- skólum en á því efni þurfa nýnemar í mörgum háskóla- greinum að kunna skil. Námið verður með fjarnámssniði og kennt gegnum fjarfundabúnað og yfir netið. Verð kr. 17.000 (bækur ekki innifaldar) Fyrsta kennslulota er fyrirhuguð 8. feb. Umsóknarfrestur er 1. feb. Skráning hjá Fræðsluneti Austurlands í s. 471-2838 eða fna@fna.is Nánari upplýsingar á heimasíðunni www.fna.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.