Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 48
F2 16 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Fimmtudagur...
... klukkan 15
ætlar Sigríður
Matthíasdóttir
sagnfræðingur að
fjalla um viðhorf
karla til kven-
réttinda á Íslandi
í kringum alda-
mótin. Hún flyt-
ur fyrirlestur um efnið á vegum Rann-
sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
í náttúrufræðahúsinu Öskju, stofu
132.
... tveir nemendur úr tónlistardeild
Listaháskóla Íslands, þær Hafdís Vig-
fúsdóttir flautuleikari og Sólveig
Samúelsdóttir messósópran, koma
fram í sólóhlutverki með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í Háskólabíói.
Hljómsveitarstjóri verður Bernharð-
ur Wilkinson.
... hljómsveitin Tenderfoot heldur
tónleika á Grand Rokk ásamt Láru og
Sviðinni jörð.
Föstudagur...
... í Sjall-
anum á Ak-
ureyri kem-
ur fram
djangótríóið
Robin Nol-
an Trio,
sem er íslenskum djassgeggjurum að
góðu kunnugt. Með tríóinu spilar
Daniel Lapp á trompet og fiðlu. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 21.00.
... um ellefuleytið hefjast á Grand
Rokk tónleikar með Jan Mayen,
Douglas Wilson og Ceres 4.
... Ísfirðingar á suðvesturhorni
landsins ættu að bregða sér á Broadway
þar sem sólarkaffi Ísfirðingafélagsins
verður haldið. Það er engin önnur en
hljómsveitin BG sem sér um tónlistina.
Laugardagur...
... tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni Íslands. Önnur nefnist Ís-
lensk myndlist 1930-1945, en hin er
sýning á verki Rúríar, Archive-End-
angered Waters sem vakti mikla at-
hygli á Feneyjatvíæringnum árið 2003.
... í Saln-
um í Kópa-
vogi ætla þau
Alina Dubik
mezzósópran
og Jónas
Ingimundar-
son píanó-
leikari að flyt-
ja söngva slav-
neskra tón-
skálda, Chop-
in, Karlowitz og Tsjaíkovskí, auk ís-
lenskra laga í Salnum í Kópavogi. Tón-
leikar þeirra hefjast klukkan 16.
... í Borgarleikhúsinu hefst klukkan
20 sýning franska sirkusflokksins Oki
Haiku Dan, sem kemur til landsins
með sýningu sína „Hreyfa ekki hreyfa“
þar sem unnið er með líkamshreyfingar
innan hárnákvæmra forma.
BÍÓ
Stórmynd-
in The
Aviator
verður
frumsýnd
um helg-
ina.
Myndin
fjallar um
ævi eins
áhrifamesta Bandaríkjamanns
síðustu aldar, Howards Hughes.
Græddi hann mikinn pening á
flugvéla- og kvikmyndaiðnað-
inum og varð fyrir vikið þekkt
persóna í bandarísku þjóðlífi.
Leikstjóri: Martin Scorsese
sem á að baki stórmyndir á
borð við Taxi Driver, Raging
Bull og Gangs of New York.
Aðalhlutverk: Leonardo
DiCaprio, Cate Blanchett,
Kate Beckinsale, Gwen Stef-
ani, Alec Baldwin, Adam
Scott og Alan Alda.
Orðspor: Myndin fékk 11 til-
nefningar til Óskarsverðlaun-
anna í ár og segir það allt sem
segja þarf.
Þeir sem vilja meiri hasar geta
séð Elektra með Jennifer
Garner úr Alias-sjónvarpsþátt-
unum í aðalhlutverki. Myndin
er byggð á teiknimyndahetj-
unni Elektru sem fyrst kom við
sögu í annarri vinsælli teikni-
myndasögu, Daredevil. Garner
var einmitt í hlutverki Elektru í
kvikmyndinni Daredevil og
endurtekur því leikinn hér.
Leikstjóri: Rob Bowman, sem
síðast gerði drekamyndina
Reign of Fire.
Aðalhlutverk: Jennifer Garn-
er, Terence Stamp, Will Yun
Lee, Colin Cunningham og
Jason Isaacs.
Orðspor: Myndin fær heldur
slappa dóma og þykir handritið
ekki vera upp á marga fiska.
Brúðumyndir eru ekki á hverju
strái. Hér eru höfundar South
Park-þáttanna mættir með
eina slíka sem kallast Team
America – World Police.
Myndin þykir mikil ádeila á
stríðsrekstur Bandaríkjanna
auk þess sem gert er grín að
þekktum hasarmyndum frá
Hollywood.
Leikstjóri: Trey Parker, annar
af höfundum South Park.
Aðalhlutverk: Matt Stone,
Trey Parker, Dian Bachar, Josi-
ah D. Lee og Kristen Miller.
Orðspor: Myndin fær góða
dóma og þykir afar fyndin.
Ádeilan er jafnframt sögð hitta í
mark.
Sumarið 2003 hélt listamaðurinn
Rúrí til Feneyja sem fulltrúi Íslands
á tvíæringnum þar í borg. Hún
hafði meðferðis verkið Archive-
Endangered Waters, sem vakti
mikla athygli og var einnig sýnt í
Hollandi og Frakklandi á síðasta
ári.
Nú gefst í fyrsta sinn kostur á að
skoða þetta verk hér á landi. Sýn-
ing á því verður opnuð í Listasafni
Íslands á laugardaginn kemur.
Þetta verk er eins konar óður til
náttúrunnar og hugleiðing um
gildi hennar í nútímanum. Verkið
er fyrirferðarmikið, í rauninni inn-
setning unnin með fjölbreyttri
tækni þar sem stórar ljósmyndir af
íslenskum fossum gegna stóru hlut-
verki ásamt hljóðum úr þessum
sömu fossum.
Rúrí er fyrir löngu orðin land-
skunn og hefur haldið sýningar
víða um heim við mjög góðan
orðstír. Þekktasta verk hennar er
vafalaust, Regnboginn, sem blasir
við ferðalöngum sem stíga út úr
flugstöð Leifs Eiríkssonar, litskrúð-
ugur og tignarlegur.
Hún hefur aldrei takmarkað sig
við einn miðil í sinni listsköpun
heldur finnur hún hugleiðingum
sínum farveg í gegnum gjörninga,
höggmyndir, stórbrotin umhverfis-
verk eða innsetningar og það eru
ávallt mjög skýrar hugmyndalegar
forsendur fyrir verkunum.
Um leið og sýning Rúríar verður
opnuð í Listasafninu verður opn-
uð þar önnur sýning með yfir-
skriftinni „Íslensk myndlist 1930-
1945“. Þar verða sýnd verk eftir ís-
lenska listamenn sem sýna þróun
íslenskrar listar frá expressjónisma
til abstraktlistar.
Fallvötn í útrýmingarhættu
3 dagar...