Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005 17
VERÐLAUN Spennu gætir í bók-
menntaheiminum í dag því Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
verða veitt á Bessastöðum síðdeg-
is. Líkt og undanfarin ár eru fimm
bækur nefndar til verðlauna í
flokkunum tveimur; flokki fagur-
bókmennta og flokki fræðirita og
bóka almenns efnis. Í fyrrnefnda
flokknum eru tilnefnd þau Arn-
aldur Indriðason fyrir Kleifar-
vatn, Auður Jónsdóttir fyrir Fólk-
ið í kjallaranum, Einar Már Guð-
mundsson fyrir Bítlaávarpið,
Guðrún Helgadóttir fyrir Öðru-
vísi fjölskyldu og Sigfús Bjart-
marsson fyrir Andræði. Ekkert
þeirra hefur hlotið verðlaunin en
Einar Már hefur í þrígang verið
tilnefndur, Auður tvisvar og Sig-
fús einu sinni.
Í flokki fræðirita og bóka al-
menns efnis eru tilnefnd þau Hall-
dór Guðmundsson fyrir Halldór
Laxness, Helgi Þorláksson fyrir
Sögu Íslands 6. og 7. bindi, Inga
Dóra Björnsdóttir fyrir Ólöfu
eskimóa, Páll Hersteinsson og Jón
Baldur Hlíðberg fyrir Íslensk
spendýr og Sigurgeir Sigurjóns-
son og Unnur Jökulsdóttir fyrir
Íslendinga. Ekkert þeirra hefur
hlotið verðlaunin en Helgi, Páll og
Jón Baldur hafa allir verið til-
nefndir áður.
Herdís Þorgeirsdóttir, Margrét
Eggertsdóttir og Valgerður
Bjarnadóttir skipa nefndina sem
sker úr um hverjir hljóta verð-
launin að þessu sinni en Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
afhendir þau. - bþs
Íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum í dag:
Herdís, Margrét og Valgerður
hafa völdin í sínum höndum
1989 – Stefán Hörður Grímsson Yfir
heiðan morgun
1990 – Fríða Á. Sigurðardóttir Meðan
nóttin líður og Hörður Ágústsson Skál-
holt II
1991 – Guðbergur Bergsson Svanurinn
og Guðjón Friðriksson Saga Reykjavíkur
1992 – Þorsteinn frá Hamri Sæfarinn sof-
andi og Vésteinn Ólason, Sverrir Tómas-
son og Guðrún Nordal Bókmenntasaga I
1993 – Hannes Pétursson Eldhylur og
Jón G. Friðjónsson Mergur málsins
1994 – Vigdís Grímsdóttir Grandavegur 7
og Silja Aðalsteinsdóttir Skáldið sem sól-
in kyssti
1995 – Steinunn Sigurðardóttir Hjartastað-
ur og Þór Whitehead Milli vonar og ótta
1996 – Böðvar Guðmundsson Lífsins tré
og Þorsteinn Gylfason Að hugsa á ís-
lensku
1997 – Guðbergur Bergsson Faðir og
móðir og dulmagn bernskunnar og Guð-
jón Friðriksson Einar Benediktsson I
1998 – Thor Vilhjálmsson Morgunþula í
stráum og Hörður Ágústsson Íslensk
byggingararfleifð I
1999 – Andri Snær Magnason Sagan af
bláa hnettinum og Páll Valsson Jónas
Hallgrímsson
2000 – Gyrðir Elíasson Gula húsið og
Guðmundur Páll Ólafsson Hálendi Ís-
lands
2001 – Hallgrímur Helgason Höfundur
Íslands og Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir Björg C. Þorláksson
2002 – Ingibjörg Haraldsdóttir Hvar sem
ég verð og Pétur M. Jónasson og Páll
Hersteinsson Þingvallavatn
2003 – Ólafur Gunnarsson Öxin og jörð-
in og Guðjón Friðriksson Jón Sigurðsson
VERÐLAUNAHAFAR OG VERK ÞEIRRA
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
71
73
1/
20
05
Reykjavík • Kópavogi • Akureyri
Selfoss • Reykjanesbær
www.blomaval.is
499 kr.
Heilsársseríur
útsala
fimmtudag-su
nnudags
Verðsprengja
10 ltr.
gróður-
mold
249 kr.
40%
799 kr.
10 túlipanar
Orkideur
afsláttur af öllum
pottaplöntum
999 kr.
Umferðin:
Dýrkeypt
epli
SAKAMÁL Bresk kona var í vikunni
dæmd til að greiða rúmar sjö þús-
und krónur í sekt fyrir að hafa
borðað epli undir stýri en neysla
matvæla við þessar kringumstæð-
ur er litin hornauga á Bret-
landseyjum. Málið væri svo sem
ekki í frásögur
færandi ef
ekki væri
fyrir hið um-
fangsmikla
eftirlit sem
að lokum
leiddi til þess
að upp komst
um þennan hræði-
lega glæp. Dagblaðið The
Independent segir frá því að til að
góma þessa svöngu konu hafi lög-
reglan kallað út þyrlu til að elta
bifreið hennar og taka af henni
loftmyndir en auk þess þurfti að
kalla hana alls níu sinnum fyrir
rétt. Enda þótt aðgerðin hafi borið
þann árangur sem vonast var eftir
verður eftirtekjan að teljast rýr
því sektin sem innheimtist nam
aðeins broti af kostnaðinum við
umstangið.
- shg
ÁST Í ÚRKOMU
Unga parið Henrik og Sofie lét ekki snjó-
komuna í Kaupmannahöfn á dögunum
aftra sér frá smá keleríi.
Lagasamkeppni:
Bíldudals-
lagið 2005
SAMKEPPNI Lagakeppni sumarhá-
tíðarinnar Bíldudals grænar er
hafin. Öllum er velkomið að
taka þátt og skulu lögin send inn
tilbúin til spilunar.
Þegar úrslit liggja fyrir verð-
ur lagið tekið upp á ný og notað
sem einkennislag hátíðarinnar.
25.000 krónur eru í verðlaun en
á netsíðunni arnfirdingur.is, þar
sem keppnin er kynnt, er þó
með réttu bent á að viðurkenn-
ingin felist einkum í að verð-
launalagið verði lag hátíðarinn-
ar þetta árið.
- bþs