Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 10
BURT FRÁ ÍRAK BANDARÍKJAMENN
Vera Bandaríkjahers í Írak var gagnrýnd í
gær á götum Porto Alegre í Brasilíu þar
sem ársfundur Alþjóðasamtaka félags-
hreyfinga hófst í gær. Baráttumenn fyrir
auknum félagslegum réttindum og gegn
misskiptingu komu frá fimm heimsálfum
til að taka þátt í fundinum.
10 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
JERÚSALEM, AP Ísraelsk stjórnvöld
ákváðu í gær að hafa samskipti
aftur við palestínsk yfirvöld eftir
tveggja vikna hlé og hafa frestað
áformum um að ráða þrjá palest-
ínska skæruliða af dögum eins og
stóð til. Hamas-samtökin hafa
sömuleiðis samþykkt að gera hlé á
árásum á ísraelsk skotmörk.
Undangengin vika hafði verið
róleg þar til í gær en þá kom til
skæra milli deilenda á Gaza-
strönd, þar sem þriggja ára
palestínsk stúlka lét lífið. Þrátt
fyrir það þykir líklegra en ekki að
þróun næstu vikna verði í friðar-
átt. Ráðuneytisstjóri Palestínu
hittir aðstoðarmann Ariels Sharon
í dag og munu þeir ræða um fyrir-
hugað vopnahlé og undirbúa
væntanlegan fund milli Sharons
og Mahmouds Abbas, forseta
Palestínu. Sharon hafði slitið öllu
sambandi við Palestínumenn fyrir
hálfum mánuði eftir að sex Ísra-
elsmenn féllu í árásum palest-
ínskra skæruliða.
Ísraelsk yfirvöld hafa þó þann
fyrirvara að ef hryðjuverkamenn
láta á sér kræla munu þeir gera
alvöru úr ætlunum sínum og ráða
þekkta skæruliða af dögum. ■
SNJÓ MOKAÐ ÚR ÖGNINNI Í
AKUREYRARHÖFN
Einn besti sölutími ársins, hvað varðar salt-
fisk, er í tengslum við páskahátíðina í
löndunum við Miðjarðarhafið.
Norðurland:
Erfitt hjá
smábátum
SJÓSÓKN Það sem af er ári hefur
tíðarfarið á Norðurlandi verið
smábátasjómönnum fremur erfitt
og fyrir vikið hefur aflinn verið
með minna móti. Smábátasjó-
menn á Húsavík hafa lítið komist
á sjó í janúar en afli stærri línu-
báta hefur þó nægt til að hægt
hefur verið að halda uppi fullri
vinnslu hjá GPG á Húsavík.
Grímur Kárason, verkstjóri
hjá GPG, segir að þar á bæ megi
ekki tæpara standa svo náist að
framleiða upp í saltfiskpantanir
fyrir páskana. „Þetta verður auð-
vitað svolítið kapphlaup við tím-
ann en ef að líkum lætur munum
við klóra okkur fram úr þessu,“
segir Grímur. - kk
Mörg hundruð munu
flytja á Laugaveginn
Tvö byggingarfyrirtæki hafa keypt upp fjölda lóða í miðbænum. Fimmtán þúsund fermetra húsnæði rís
milli Laugavegar og Hverfisgötu. Búist er við mikilli fjölgun íbúa í miðbænum.
HÚSBYGGINGAR Byggingarfyrir-
tækið Stafna á milli hefur keypt
allar húseignir frá og með Lauga-
vegi 41, niður Frakkastíg og til og
með Hverfisgötu 58. Fyrirtækið
ÁF-hús hefur fest kaup á eignun-
um að Lauga-
vegi 33a og 35
auk Vatnsstígs
4. Bæði fyrir-
tækin hyggjast
byggja að nýju
á lóðunum eftir
deiliskipulagi.
Verslanir og
fjöldi íbúða
verða í húsun-
um.
E n g i l b e r t
R u n ó l f s s o n ,
eigandi Stafna
á milli, segir
hönnun svæðis-
ins ekki lokið
en eins og
greint hefur
verið frá á að
reisa fimmtán þúsund fermetra
hús á reitnum. Sex þúsund fer-
metra bílageymsla verður undir
byggingunni.
Ágúst Friðgeirsson, eigandi
ÁF-húsa ehf., segir hönnun nýju
húsanna á byrjunarstigi. Stefnt sé
að því að rífa þau sem fyrir séu
og byggja ný fjögurra hæða.
Ágúst segir það í skoðun að kaupa
fleiri hús á svæðinu en enn sé
óljóst hvað verði. „Þessi hús eru í
það minnsta komin komin í hendi
og duga mér í bili.“
Sigurður G. Steinþórsson, gull-
smíðameistari og annar eigandi
Gulls og silfurs, seldi ÁF-húsum
Laugaveg 35. Fyrirtæki hans flyt-
ur ofar á Laugaveginn.
„Ég er búinn að vera hér í 34 ár
og það er dálítið átak að selja
staðinn sem maður er nánast bú-
inn að búa á,“ segir Sigurður. Það
hafi hann gert til að stuðla að upp-
byggingunni:
„Það er fullt af fyrirtækjum
sem vilja koma hingað á Lauga-
veginn en þau vilja ekki vera í
þessum gömlu húsum. Með
nýjum húsum fáum við öll bestu
fyrirtækin á svæðið.“
Sigurður segir ásókn í hús-
eignir þegar hafa aukist og fólk
hafi öðlast endurnýjaða trú á hinn
eina sanna Laugaveg sem mið-
punkt borgarinnar. Þar muni þús-
undir búa og hundruð flytjast í
nýju íbúðirnar.
„Nú verður fólk í miðbænum.
Hér verður ekki bara draugaborg
eftir miðnætti heldur líf og fjör
með veitingastöðum, verslunum
og fólki,“ segir Sigurður. „Þetta
er frábær þróun.“
gag@frettabladid.is
Landmælingar:
Starfsfólki
fækkar
ALÞINGI Landmælingum Íslands
verður úthlutað fjórtán milljónum
til uppfærslu stafrænna landa-
korta sinna. Það er sextán milljón-
um minna en í fyrra.
Umhverfisráðherra, Sigríður
Anna Þórðardóttir, telur hið lága
fjárframlag geta „haft einhver
áhrif á starfsmenn til framtíðar“.
Landmælingar vinni mikilvægt
starf.
Jóhann Ársælsson í Samfylking-
unni bar málið upp á þingi, þar sem
upphaflega átti ekki að leggja fé í
uppfærslu kortanna. Jóhann segir
gott að óvissu um framhald korta-
gerðarinnar hafi verið eytt. - gag
HREINDÝR Í LÓNI AUSTAN
HORNAFJARÐAR
Töluvert hefur verið um hreindýrahópa
bæði austan og vestan Hafnar í Hornafirði
að undanförnu en þetta er í fyrsta sinn í
vetur sem ekið er á dýr.
Austurland:
Ekið á
hreindýr
ÓHAPP Síðastliðinn sunnudagsmorg-
un var ekið á hreindýr skammt
austan við Höfn í Hornafirði. Að
sögn lögreglunnar á Höfn barst til-
kynning frá vegfaranda um hrein-
dýrshræ á veginum en ekki er vitað
hver ók á dýrið. „Það er ljóst að bíl-
inn var á austurleið og líklega er
hann stórskemmdur því dýrið var
mjög illa farið, allt tætt og rifið,“
sagði lögreglumaður á Höfn. - kk
■ BANDARÍKIN
LAUGAVEGURINN TEKUR BREYTINGUM
Skyggðu húsin eru þau sem hafa verið keypt. Sum húsanna verða rifin og önnur flutt
burt. Í staðinn rísa ný með verslunum og íbúðum.
Ítalirnir skulda laun og brjóta alla samninga
Íslenskir verka-
menn neyddir til að
borga yfirmanni
Impregilo brennivín
til að fá yfirvinnu
– hefur þú séð DV í dag?
M
YN
D
/B
O
RG
AR
VE
FS
JÁ
SIGURÐUR G.
STEINÞÓRSSON
Vildi sjá uppbyggingu
verða á Laugavegin-
um og ákvað því að
selja húsnæði Gulls
og silfurs að Lauga-
vegi 35 gegn því að
fá að flytja inn í nýtt
húsnæði sem þar
risi. Flyst fyrirtækið
ofar á Laugaveginn á
meðan.
Landsvirkjun um Íslandskort:
Gefur ekki rétta mynd
UMHVERFISMÁL „Ég lít á þetta kort
sem áróður. Hann getur í sjálfur
sér verið réttur eða rangur en
hann er fyrst og fremst pólitísk-
ur en ekki fræðilegur og það
finnst mér einkenna þetta kort,“
segir Ragnheiður Ólafsdóttir,
umhverfisstjóri Landsvirkjunar,
um Íslandskortið „Ísland örum
skorið“ en tíu náttúruverndar-
samtök stóðu að útgáfu þess. Að
þeirra sögn sýnir kortið áhrif
stóriðjustefnu stjórnvalda eftir
fimmtán ár ef
orkufyrirheit
þeirra ná fram
að ganga sam-
kvæmt fyrsta
á f a n g a
Rammaáætl-
unar.
Ragnheiður
segir það ekki
rétt að það
eigi að virkja
allar jökulár
landsins. Á
kortinu séu ár
sem engar
r a n n s ó k n i r
hafi verið unn-
ar á og í gær
hafi verið stað-
fest að Jökulsá
á Fjöllum yrði innan þjóðgarðs.
„Hugmyndafræðin sem liggur
að baki þessu korti er komin úr
náttúruverndarlögum frá 1999
en á kortinu sem er þeim til
grundvallar eru dregin sambæri-
leg svæði í kringum öll mann-
virki. Það mætti því lita allt Ís-
landskortið svart ef mannvirki
og vegakerfið væru tekin með í
reikninginn, eins og stendur í
náttúruverndarlögum,“ segir
Ragnheiður. - bs
FRÁ GAZA
Hamas-samtökin stóðu fyrir fjöldafundi á Gaza-ströndinni á þriðjudag en samtökin hafa
samþykkt að gera ekki fleiri árásir í bili.
Ísrael og Palestína:
Þíða milli
stjórnvalda
Skatastaðavirkjun
Villinganesvirkjun
Brúarvirkjun
Urriðafossvirkjun
Holtavirkjun
Hvammsvirkjun
Blönduvirkjun
Krafla-Námafjall
Reykjanes og Svartsengi
Hengill
Brennisteinsfjöll
Krýsuvík
Hrafnabjargavirkjun
Þeistareykir
Blanda
Jökulsá austari
Skjálfandafljót
Jökulsá á Fjöllum
Jöku
lsá á
Da
l
Jök
uls
á í
F
ljó
tsd
al
Sk
af
tá
Tu
ng
na
á
M
ar
ka
rfl
jó
t
Þj
ór
sá
Þjó
rsá
Ka
lda
kv
ísl
K
ví
sl
av
ei
ta
Norðlingaölduveita
Kárahnjúkavirkjun
Markarfljótsvirkjanir
Laxárvirkjun
Skaftárveita
Selvogsbanki
Mikilvægasta
hrygningarsvæði
þorsks við Ísland
H
ólm
sá
V
es
tu
rö
ræ
fi
Hvítá
H
ví
tá
A
ldeyjarfoss
Hágönguvirkjun
Fljótshnjúksvirkjun
Jökulsá vestari
Ar
na
rd
al
sv
irk
ju
n
Þjó
rsá
rve
r
Búrfell I og II
Núpsvirkjun
Sultartangavirkjun
Búðarhálsvirkjun
Hrauneyjafossvirkjun
Vatnsfellsvirkjun
Sigölduvirkjun
Langisjór
Torfajökulsvirkjanir
Skaftárvirkjun
Hólmsárvirkjun
10 km
Áhrifasvæði jarðvarmavirkjana
Lón í rekstri
Fyrirhuguð lón
Háhitasvæði
Miðhálendið skv. Skýrslu Samvinnunefndar um skipulag miðhálendisins.
Fyrirhugaðar háspennulínur - áhrifasvæði raflína og vega eru ekki sýnd á kortinu.
Orkuver
Umhverfisáhrif vatnsaflsvirkjana ná út í haf og geta haft áhrif á
hrygningar- og uppeldissvæði nytjafiska.
Möguleg áhrifasvæði vatnsaflsvirkjana
afmörkuð skv. skilgreiningu á ósnortnum víðernum í lögum um náttúruvernd
nr. 44 1999. Viðmið löggjafans er að til þess að hægt sé að njóta einveru og náttúru,
þurfi að vera „í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum
ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum og þjóðvegum“.
Í reynd yrði sjónrænt áhrifasvæði oft víðáttumeira á miðhálendinu, en stundum
innan við 5 km þar sem ár renna í þröngum dölum.
ÍSLANDSKORTIÐ
Aðstandendur kortsins segja það sýna áhrif stóriðju ef áætlanir
stjórnvalda ná fram að ganga.
DÝR AFSÖKUNARBEIÐNI Karlmað-
ur sem saknaði eiginkonu sinnar
sem hafði yfirgefið hann keypti
auglýsingu í dagblaðinu The
Florida Times-Union fyrir eina
milljón króna til að biðja hana af-
sökunar og fá hana til að snúa
heim. Hún hafði ekki svarað sím-
hringingum hans eftir að hún flutti
út, og hafði ekki haft samband við
hann í gær.