Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 12
WASHINGTON, AP Þrátt fyrir að
George W. Bush Bandaríkjaforseti
fari fram á fimm þúsund milljarða
aukaframlag úr ríkissjóði vegna
stríðsins í Írak og Afganistan, yrði
það einungis lítill hluti fjárlaga-
hallans í ár, hann gæti orðið allt að
26.500 milljarðar.
Háttsettur embættismaður í
Hvíta húsinu segir að þrátt fyrir
að svo verði, sýni það fram á batn-
andi stöðu ríkissjóðs. Þetta sé mun
betri afkoma en rúmlega 25.500
milljarða króna hallinn sem var á
fjárlögum fyrir 2004, sé tekið mið
af vaxandi efnahag Bandaríkj-
anna. Þetta er þó þriðja versta af-
koma sem verið hefur á banda-
rískum ríkissjóði.
Í gær kom einnig fram í til-
kynningu frá efnahagsdeild Sam-
einuðu þjóðanna að þrátt fyrir
almennan hagvöxt í heiminum,
ógni veik staða dollarans og mikill
viðskiptahalli Bandaríkjanna
efnahagslegum stöðugleika um
allan heim.
Þrátt fyrir spár um að fjárlaga-
halli þessa árs verði allt að 26.500
milljarðar, eru ekki allir svartsýn-
ir. Meðal þess sem bent er á er að í
febrúar í fyrra var því spáð að fjár-
lagahallinn fyrir 2004 yrði um
32.300 milljarðar. Hann reyndist
nokkuð minni, eða 25.500 milljarð-
ar. Fjárlagaskrifstofa þingsins
hefur einnig spáð því að fjárlaga-
hallinn muni fara minnkandi, ár frá
ári til 2012, þegar ríkissjóður
verður rekinn með afgangi. Fáir
taka þá spá alvarlega, því sam-
kvæmt lögum getur skrifstofan
ekki gert ráð fyrir breytingum á
núverandi sköttum eða útgjalda-
heimildum í sínum spám. Því er
ekki gert ráð fyrir auknum hernað-
arútgjöldum, eða nokkrum kostn-
aði vegna stefnu núverandi
stjórnar. Ef stríðsrekstur í Íran og
Afganistan minnkar ekki á næsta
ári, gæti það kostað um 36.580
milljarða á næstu tíu árum. Skatta-
hugmyndir stjórnarinnar eru tald-
ar kosta um 142.600 milljarða.
Breytingar á almannatryggingum
gætu kostað á bilinu 62.000 til
124.000 milljarða. Aukinn fyrirsjá-
anlegur kostnaður á næsta áratug,
sem ekki er gert ráð fyrir í spám er
því á bilinu 241.000 -303.000 millj-
arðar. Á móti kemur að haldist
önnur útgjöld við verðbólgumið,
gæti það minnkað fjárlagahallann
um 80.600 milljarða. ■
Aðeins tvisvar
verri afkoma
Gert er ráð fyrir fjárlagahalla upp á rúma 16.700
milljarða á ríkissjóði Bandaríkjanna. Fáir trúa að
við það verði staðið.
RABBÍNAR Í ÚTRÝMINGARBÚÐUM
Rabbínarnir Shlomo Marmor, Seth
Bronstein og Ethan Mintz heimsóttu í gær
Birkenau-búðirnar þar sem nasistar myrtu
meira en milljón gyðinga í seinni heims-
styrjöld. Þeir mótmæltu kirkjubyggingu í
útrýmingarbúðunum og sögðu rétt að láta
þær standa eins og þær voru.
12 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Hlutafélagavæðing á landsbyggðinni:
Blásið til sóknar á Héraði
KNATTSPYRNA Stofnað hefur verið
hlutafélag um rekstur meistara-
flokks karla, meistaraflokks
kvenna og 2. flokks í knattspyrnu
hjá íþróttafélaginu Hetti á Egils-
stöðum. Félagið hefur hlotið nafn-
ið Rekstrarfélagið Höttur ehf.,
hluthafar eru 117 talsins og stofn-
fé 5,3 milljónir króna.
Markmiðið með stofnun félags-
ins er að efla starf meistaraflokka
Hattar í báðum kynjum og vera
alltaf með 2. flokk á vegum
Hattar. Stefnt er á að reka félagið
með hagnaði og nýta hann til frek-
ari uppbyggingar á aðstöðu til
knattspyrnuiðkunar á Héraði eða
starfsemi félagsins.
Rekstrarfélagið hefur gert
samning við knattspyrnudeild
Hattar þess efnis að hlutafélagið
taki yfir allan rekstur umræddra
flokka og um leið öll verkefni er
lúta að rekstri þeirra. Rekstrarfé-
lagið fær allar fjáraflanir sem til-
heyra þessum flokkum og eignir
knattspyrnudeildarinnar renna til
rekstrarfélagsins, sem um leið
skuldbindur sig til að greiða allar
skuldir knattspyrnudeildar.
- kk
Samfylkingin:
Varaformað-
ur af landinu
STJÓRNMÁL Stjórn Samfylkingar-
innar á Akureyri telur farsælast
fyrir flokkinn að næsti varafor-
maður Samfylkingarinnar komi
af landsbyggðinni.
Kosið verður um formann
Samfylkingarinnar í póstkosn-
ingu, sem hefst 30 dögum fyrir
landsfund, og er útlit fyrir að for-
mannsslagurinn standi á milli
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
og Össurar Skarphéðinssonar.
Úrslit í formannskjörinu verða
tilkynnt í upphafi landsfundar en
kjör í varaformannsembættið fer
fram á landsfundinum sjálfum.
- kk
Dæmdur í fangelsi:
Stal bók og
geisladiskum
DÓMSMÁL Maður á fertugsaldri var í
Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur
í þriggja mánaða
fangelsi fyrir
þjófnað og skjala-
fals. Maðurinn
stal tveimur
geisladiskum og
einni bók úr versl-
unum auk þess
sem hann fram-
vísaði fölsuðum lyfseðli.
Maðurinn var einnig ákærður
fyrir innbrot í íbúð og fyrir að selja
muni úr innbrotinu. Þótti dóminum
ekki sannað að hann hefði framið
innbrotið en hann var dæmdur
fyrir hylmingu því ljóst var að hann
hafði þýfið í sinni vörslu. Maðurinn
hefur áður hlotið dóma fyrir auðg-
unarbrot og skjalafals. - hrs
ÞRÓTTUR NES. SÆKIR HÖTT HEIM
Við mat á eignum knattspyrnudeildar Hatt-
ar reyndist verðmæti þeirra nokkru meira
en skuldir og eignaðist knattspyrnudeildin
því hlut í rekstrarfélaginu sem því nam.
Síðasti skiladagur á
skráningum í Símaskrá
2005 er mánudagurinn
31. janúar.
Skráning
í Símaskrá
2005
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
9
4
6
LEIGUMARKAÐUR Til að leysa árleg-
an húsnæðisvanda nemenda við
Háskólann á Akureyri (HA) er
Félagsstofnun stúdenta á Akur-
eyri að kanna möguleika á að
breyta atvinnuhúsnæði að Gler-
árgötu 36 í íbúðarhúsnæði með
36 litlum íbúðum.
Hugmyndin hefur verið
kynnt fyrir bæjaryfirvöldum en
endanleg afstaða þeirra liggur
þó ekki fyrir.
Ríkið á húsnæðið en bæjaryf-
irvöld þurfa að gefa grænt ljós
þar sem húsið stendur á
atvinnusvæði. Nemendum við
Háskólann á Akureyri fjölgar
árlega og á hverju hausti er
mikill skortur á leiguhúsnæði
fyrir utanbæjarnemendur. - kk
Háskólanemar á Akureyri:
Mikill skortur á húsnæði
GLERÁRGATA 36
Allt húsnæðið hefur staðið autt frá því í
haust er starfsemi Háskólans á Akureyri
fluttist í hið nýja rannsókna- og ný-
sköpunarhús að Borgum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
HÉRAÐSDÓMUR
REYKJAVÍKUR
Heimild: Fjárlagaskrifstofa þingsins
SAMGÖNGUR Øyvind Kvaal, tals-
maður sænska verktakafyrir-
tækisins NCC, sagði í fréttum
Stöðvar 2 í gærkvöldi að ekkert
væri til í því að fyrirtækið hefði
gert kostnaðaráætlun fyrir gerð
jarðganga til Vestmannaeyja.
Hópur Eyjamanna með Árna
Johnsen í fararbroddi kynnti
slíka kostnaðaráætlun í nafni
fyrirtækisins í síðustu viku.
Árni Johnsen segir fréttina
byggða á misskilningi þar sem
spurt væri út í skuldbindandi til-
boð. „Það sem liggur fyrir og er
undirskrifað af fulltrúa þeirra
er bara kostnaðaráætlun út frá
ákveðnum verkþáttum sem þeir
hafa skoðað og þekkja.“
„Nei, og hann hefur enga
kostnaðaráætlun frá NCC,“
sagði Kvaal hins vegar í fréttum
Stöðvar 2. ■
Kostnaðaráætlun:
NCC afneitar
áætlun Árna
ÁRNI JOHNSEN
Segir kostnaðaráætlun liggja fyrir.