Fréttablaðið - 27.01.2005, Side 29
makkaði ekki rétt. Ef borgarstjórinn er
með umboð frá fólkinu í flokkunum á
bak við sig horfir málið allt öðruvísi við
og því er leiðtogaprófkjör góður kostur,“
segir Ingibjörg.
Framsókn bara með umboð frá
Sjálfstæðisflokknum
„Ég vil taka það fram að ég hef átt mjög
gott samstarf við framsóknarmenn,
meðal annars innan Reykjavíkurlistann,
og mér hefur þótt mjög gott að starfa
með þeim sem einstaklingum. Flokkur-
inn hagar sér eins og 30-40 prósenta
flokkur og skirrist ekkert við að taka allt
það vald sem hann kemur höndum yfir
án tillits til þess umboðs sem hann hef-
ur frá kjósendum. Í rauninni hefur hann
umboð frá Sjálfstæðisflokknum, en ekki
frá kjósendum, til þess að gera það sem
hann er að gera. Þetta verð ég að segja
þótt ég viti að það kæti ekki mína ágætu
vini í flokknum,“ heldur Ingibjörg
áfram.
„Annað finnst mér athyglisvert við
þessa menn, bæði varðandi forystu
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins, að þeir bregðast alltaf ókvæða
við gagnrýni og eru svo móðgunargjarn-
ir. Þetta lýsir því bara að þeir eru búnir
að vera of lengi við völd. Það hangir
alltaf einhver hótun í loftinu gagnvart
þeim sem gagnrýna þá. Það hefur til
dæmis verið látið að því liggja að gagn-
rýni mín, sem vissulega er stundum
harkaleg en ég leyfi mér að halda fram
að sé málefnaleg, muni koma mér í koll.
Þeir eru í pólitík og ég er ekki í sama
flokki og þeir. Ég er pólitískur andstæð-
ingur þeirra og því skyldi ég ekki gagn-
rýna þá? Ég væri að bregðast hlutverki
mínu ef ég segði ekki skoðanir mínar.
Mér finnst þetta ekki bera vott um mjög
lýðræðislegan þankagang,“ segir Ingi-
björg.
Fjölskyldukosningabarátta
Ingibjörg og Össur hafa þekkst í um
þrjátíu ár og eru gift systkinum. Að-
spurð segir Ingibjörg ekki auðvelt að
heyja kosningabaráttu þegar fjölskyldu-
tengslin eru jafn náin og raun ber vitni.
„Þetta er engin óskastaða, en maður
getur hins vegar ekki látið það yfir-
skyggja allt annað. Ég get ekki séð af
hverju ég ætti að sitja á hliðarlínunni í
fjögur ár og afskrifa möguleika mína til
að láta reyna á þann stuðning sem ég
hef í Samfylkingunni vegna fjölskyldu-
tengsla. Það hljóta allir að sjá að í mínu
tilviki er það spurningin um að gefa
kost á mér núna eða alls ekki. Ekki má
heldur gleyma því að Össur hefur marg-
sinnis sagt í viðtölum að hann vildi sjá
mig sem framtíðarleiðtoga Samfylking-
arinnar,“ segir Ingibjörg.
„Það er enginn áfellisdómur yfir
okkur sem einstaklingum þó að annað
okkar nái ekki kjöri sem formaður. Í því
felst bara mat flokksmanna á því hvað
teljist best fyrir flokkinn í næstu kosn-
ingum. Allir hafa til síns ágætis nokkuð.
Össur hefur verið mjög mikilvægur fyrir
Samfylkinguna. Það er alveg rétt sem
sagt hefur verið, hann varð formaður
þegar enginn vildi taka að sér þetta
verkefni. Hann hefur verið ákveðinn
frumkvöðull og tekist að ná fólki saman
til þessa samstarfs. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að núna þurfi að eiga
sér stað ákveðin kaflaskipti í Samfylk-
ingunni. Í því felst ekkert vanmat á hans
störf og engin gagnrýni á hann eða hans
persónu,“ segir Ingibjörg.
„Ég er að bjóða krafta mína fram
vegna þess að ég veit að ég treysti mér til
þess að leiða flokkinn í gegnum næsta
skeið, en svo er það flokksmanna að
taka ákvörðun í málinu,“ segir Ingi-
björg.
Hún segist ekki vita hvað hún muni
taka sér fyrir hendur ef svo fer að hún
tapi kosningunum. „Ég veit það ekki.
Ég ætla hins vegar ekki að vera varafor-
maður áfram. Ég veit það bara eitt að ég
er tilbúin núna. Mér finnst ég vel undir
það búin að takast á við þetta verk.“
F29FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005
Evrópurúta 1 Páskaferð 17. – 29. mars kr. 99.500 plús kr 18.000 fyrir einbýli
Evrópurúta 2 Portúgal – Spánn 5.- 12. apríl kr. 79.500 plús 15.000 fyrir einbýli
Evrópurúta 3 Portúgal – Spánn 12. – 20. apríl kr. 84.500 plús 15.000 fyrir einbýli
Evrópurúta 4: Eystrasaltslöndin
13. – 28. maí 2005
Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson
Íslendingar eru vel kynntir í Eystrasaltslöndunum og sérstaklega velkomnir þangað. Þessi
ferð var farin í fyrsta skipti árið 2003 og tókst frábærilega vel, hreint ævintýri. Það sem
fæstir vita er að þessi þrjú litlu ríki við Eystrasalt eiga sér langa sögu og merkilega
menningu. Til viðbótar við þessi þrjú fyrrum ríki Sovétríkjanna gistum við Gydansk eða
Danzig í Póllandi og Kaliningrad eða Königsberg, sem nú tilheyrir Rússlandi. Að lokum er
dvalið í því landi Skandinavíu, sem fæstir Íslendingar hafa heimsótt, en það er Finnland.
Það verður eingöngu búið á fyrsta flokks hótelum og innifaldir eru 12 kvöldverðir með
fararstjóra.
Verð kr 154.500 plús kr 34.000 fyrir einbýli
Fararstjórinn Friðrik G. Friðriksson mun veita nánari upplýsingar á ferðunum í
aðalskrifstofu Úrvals Útsýnar að Lágmúla 4, alla mánudaga og miðvikudaga milli 14 og 17
í febrúar til 15. mars.
Portúgal og Spánn
Upplýsingar er líka hægt að sækja á heimasíðu Úrvals Útsýnar: www.uu.is undir
“sérferðir” og Evrópurútur, en þar er einnig hægt að skoða myndasafn úr fyrri ferðum.
Beint samband við fararstjóra á öðrum tíma er í síma 551 7538 og með tölvu:
frissigf@mmedia.is
Á þessum árstíma er gróðurinn í Evrópu kominn lengst í
Portúgal og syðst á Spáni enda er veturinn mildastur á þessum
slóðum eins og á Kanaríeyjum. Yfirleitt hlýrra en við
Miðjarðarhafið. Hótelið heitir Iberotel (www.iberotel.pt) og er í
portúgalska fiskimannabænum Monte Gordo syðst á landa-
mærum Portúgals og Andalúsíu á Suður-Spáni. Hótelið er 4
stjörnu lúxus hótel við ströndina, bæði morgunverður og
glæsilegt kvöldverðarhlaðborð eru innifalinn. Allir drykkir með
mat eru innifaldir. Tvær útisundlaugar og ein upphituð inni-
sundlaug. Uppákomur og skemmtun standa til boða flest kvöld
á hótelinu. Á kvöldin er leikin tónlist svo taka má sporið.
Fjölbreytilegar skoðunarferðir eru einnig innifaldar. Flogið er
beint til Faro í Suður-Portúgal með leiguflugi þannig að heildar-
verð ferðarinnar er mjög hagstætt. Þrjár ferðir verða farnar í ár,
fararstjóri í þeim öllum verður Friðrik G. Friðriksson.
Sími 585 4000
Fyrir þá sem vilja njóta útsýnis og
standa á skíðum lengur en í korter ættu
að hafa samband við Sigurbjörn Hösk-
uldsson í Grýtubakkahreppi, en hann
stendur fyrir útsýnis- og skíðaferðum í
Grenivík. „Ég fer með snjótroðara upp
á Kaldbak, og held þar smá tölu um
það sem fyrir augu ber. Síðan rennir
fólk sér niður í Grenjárdal, þar sem ég
sæki það, og keyri með það upp á
Grenivíkurfjall, þar sem skíðamennirn-
ir geta rennt sér frjálst niður.“ Sigur-
björn hefur staðið fyrir þessu síðan
1998 og hefur aðsóknin yfirleitt verið
mjög góð, og þá sérstaklega um pásk-
ana. „Það hefur verið rólegt að undan-
förnu enda veðrið ekki verið upp á
marga fiska.“
Það tekur eingöngu hálftíma að
keyra frá Akureyri til Grenivíkur. „Að-
eins styttra en til Dalvíkur,“ segir Sigur-
björn en þessi útsýnisferð tekur um tvo
og hálfan tíma og kostar tvö þúsund og
fimm hundruð krónur fyrir fullorðna, en
helmingsafsláttur er veittur fyrir börn á
aldrinum sex til tólf ára. „Þetta er um sex
kílómetra skíðaferð og samsvarar því, að
fara frá toppi Hlíðarfjalls og alveg niður
á bryggju,“ segir Sigurbjörn og bætir því
við að ekki sé um neinar fastar ferðir
heldur geti áhugasamir einfaldlega haft
samband við hann.
Kaldbakur, Grenjárdalur og Grenivíkurfjall
Sex kílómetra skíðaferð