Fréttablaðið - 27.01.2005, Qupperneq 36
Fæðingarvottorð barna
Lög kveða á um að barn skuli hafa sitt eigið vegabréf þegar ferðast er milli landa en ágætt er að
hafa einnig meðferðis fæðingarvottorð eða staðfestingu á forræði þess sem ferðast með barnið.
Vegna tíðra barnsrána erlendis er fylgst með því á flugvöllum að barnið sé hjá réttum aðilum,
en þar sem Íslendingar eru ekki með ættarnöfn nægja vegabréfin oft ekki sem sönnun þess.[ ]
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
27
00
4
0
1/
20
05
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald
Verð frá 36.900 kr.*
Netsmellur til USA
Bandaríkjaferðir á frábæru verði
Bókaðu á www.icelandair.is
Vinsældir Kína sem ferðamannalands hafa aukist gríðarlega
og er það komið á topp fimm listann yfir mest sóttu lönd í
heimi.
Það er ákveðin upplifun að skoða sig
um mitt í eyðimörkinni í Ástralíu en
þegar sólin er hæst á lofti er fátt kvikt
að sjá utan ferðamanna sem láta sig
hafa að þvælast um í rútum eða á
bílum í 40 stiga skraufþurrum hitan-
um. Það er þó ýmislegt á sig lagt til
að upplifa Uluru sem er stærsti
stærsti steindrangur í heimi og eitt af
helstu kennileitum Ástralíu.
Uluru trjónir tignarlega yfir rauðri
eyðimörkinni en hæsti punktur fjalls-
ins er 348 metrar og ummál þess er
9,4 km. Uluru er þýðingarmikill stað-
ur í menningu frumbyggja Ástralíu
sem telja Uluru einn af heilögustu
stöðum Ástralíu en Uluru markar
upphaf lífsins í menningu frum-
byggja. Margir ferðamenn vilja klífa
Uluru en frumbyggjarnir mælast gegn
því af trúarlegum ástæðum, auk þess
sem það er stóhættulegt ferðamönn-
um sem geta hreinlega dáið vegna
ofhitnunar við klifur. Kata Tjuta er
einnig þýðingarmikill staður en Kata
Tjuta er samsafn 30 stakra kletta og
einnig vinsæll viðkomustaður ferða-
manna. Uluru og Kata Tjuta eru sí-
breytileg, allt eftir því hvar sólin er á
lofti og því er sérlega vinsælt meðal
ferðamanna að fylgjast með sólar-
upprás og sólsetri í þjóðgarðinum.
Í þjóðgarðinum búa Anagu frum-
byggjarnir en fornleifar benda til að
Anagu frumbyggjar hafi búið í ná-
grenni Uluru og Kata Tjuta í um
25.000 ár en þó er ýmislegt sem gef-
ur til kynna að þeir hafi búið þar
mun lengur. Þegar evrópskir land-
nemar hófu innreið sína í Ástralíu
misstu margir frumbyggjahópar Ástr-
alíu landsvæði sín og síðan þá hafa
frumbyggjar oft sætt miklu misrétti.
Árið 1958 var Uluru og Kata Tjuta
þjóðgarðurinn stofnaður án samráðs
við Anagu frumbyggjana og það var
ekki fyrr en 1985 að ríkistjórn Ástralíu
viðurkenndi rétt frumbyggjana og
þeir fengu landsvæðið aftur til baka. Í
dag er þjóðgarðurinn rekinn í nánu
samstarfi Anagu frumbyggjana og
samtaka þjóðgarða í Ástralíu en
frumbyggjarnir sjá alfarið um rekstur
þjóðgarðsins.
Heimsreisa
BRYNJA DÖGG FRIÐRIKSDÓTTIR
SENDIR PISTLA ÚR HEIMSREISU SINNI
Eyðimerkurfjallið Uluru
Uluru er stærsti steindrangur í heimi og eitt af helstu kennileitum Ástralíu.
Ævintýraheimur Kína
Í kjölfar aukinna vinsælda Kína má segja að orðið hafi sprenging á
framboði íslenskra ferðaskrifstofa á ferðum til Kína. Vestræn áhrif
hafa gjörbreytt Kína á síðustu áratugum en hið gamla asíska
menningarsamfélag er enn við lýði. Í flestum ferðunum er farið á þjóð-
legar slóðir þar sem fólki gefst kostur á að upplifa hina gömlu menn-
ingu, andstæður gamla tímans og hins nýja. Hér er listi yfir flestar þær
ferðir sem eru í boði fyrir Íslendinga en hann er þó ekki tæmandi og
bjóða margir upp á fleiri en eina ferð. Ef til stendur að ferðast til Kína
er ráðlegast að kynna sér hverja ferð fyrir sig því víst er að hver og
einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ferðaþjónusta bænda:
Ævintýraheimur
Kína
14 daga ferð þar sem Kínamúrinn og
Terrakotta herinn eru skoðaðir og
siglt er á skemmtiferðaskipi um
Yangtse-fljót sem er þekkt fyrir gljúfr-
in þrjú. Helstu borgir Kína, Shanghai
og Peking, verða sóttar heim og gefst
fólki kostur á að sjá þær gríðarlegu
breytingar sem hafa átt sér stað í
Kína á síðustu áratugum.
Verð: 269.000 kr. á mann í tvíbýli.
Allt innifalið í verði.
Næsta ferð: 24. mars
Prima Embla Heimsklúbburinn:
Til móts við nýja dögun
10 daga ferð þar sem þrír áhugaverðustu staðirnir í Kína eru skoðaðir mjög vel.
Borgin Peking er skoðuð, Xian og Guilin-héraðið sem er staðsett við Li-fljótið.
Staldrað er lengi við á hverjum stað þannig að
fólki gefst kostur á að kynnast svæðinu vel.
Prima Embla sérhæfir sig í sérferðum af þessu
tagi og leggur áherslu á að gist sé á mjög góð-
um hótelum og flogið með góðum flugfélögum.
Verð 219.000 kr. á mann í tvíbýli.
Allt innifalið í verði.
Næsta ferð: 6. maí
Heimsferðir:
Perlur Kína
19 daga ferð þar sem heimsóttir verða þekktir ferðamannastaðir, eins og
Kínamúrinn, Forboðna borgin, Torg hins himneska friðar, Terrakotta her-
inn, hallir, skrautgarðar og silki- og perluverksmiðjur. Þá verða helstu
borgir Kína sóttar heim, svo sem Peking, Shanghai og Suzhou. Kynnis-
ferðir verða um Guilin-héraðið í Suður-Kína og siglt á ánni Li.
Verð: 269.900 kr. á mann í tvíbýli. Allt innifalið í verði nema fæði (fyrir
utan morgunverð í Hong Kong). Næsta ferð: 21. október
Exit.is:
Allt það besta
14 daga ferð á vegum ferðaskrif-
stofunnar Intrepid sem ferðaskrifstof-
an Exit.is er í samstarfi við. Ferða-
menn þurfa að koma sér sjálfir til
Shanghai en þaðan er haldið til Nanj-
ing og Yangtse áin skoðuð. Terracotta
herinn í Xian er skoðaður, auk Kína-
múrsins og Peking er heimsótt. Há-
mark 12 manns komast í þessa ferð.
Verð: 88.700 kr. á mann.
Flug til og frá Íslandi er ekki innifalið í
verði.
Næsta ferð: Farið er alla laugardaga
frá Shanghai
Langferðir ehf. – Kuoni:
Peking og sigling
á Yangtse-fljóti
16 daga ferð sem hefst í höfuðborg-
inni Peking (Beijing) þar sem þátt-
takendum gefst kostur á að taka þátt
í kynnisferðum að vild. Næst tekur
við fjögurra daga sigling eftir
Yangtse-fljótinu í hótelskipi þar sem
færi gefst á fjölbreyttum kynnisferð-
um á viðkomustöðum. Siglingunni
lýkur í Yichang þaðan sem flogið
verður til baka til Peking.
Verð frá 138.970 kr. á mann í tvíbýli.
Allt innifalið í verði. Ekki er innifalið
flug til og frá Kaupmannahöfn.
Næsta ferð: 26. júlí
Kínaklúbbur Unnar:
Ár hanans
22 daga ferð undir leiðsögn Unnar
Guðjónsdóttur. Fyrri ferðin á þessu
ári er farin í maí og verður það 20.
hópferðin sem Unnur fer með til
Kína. Unnur fékk sérstakt leyfi hjá
kínverskum yfirvöldum að skipu-
leggja ferðir sínar sjálf og vera
undanþegin þeirri reglu að hafa
þjóðarleiðsögumann með í ferðum.
Hún sýnir helstu staðina auk þess
sem hún fer með fólk á staði sem
eru alls ekki til sýnis fyrir útlendinga.
Unnur leggur áherslu á að sýna Kína
og hið daglega líf, en þjóðlegi menn-
ingarheimur Kína er enn við lýði þó
að margt hafi breyst.
Verð: 350.000 kr. á mann í tvíbýli.
Allt innifalið í verði.
Næsta ferð: 13. maí