Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 46
F2 14 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Pantanir í síma
5116030
www.hotelcabin.is, booking@hotelcabin.is
ÞORRABLÓT
20 - 80 manna hópar
Tökum að okkur Þorrablót
fyrirtækja, félagasamtaka, vinahópa,
átthagasamtaka o.s.frv.
Súðin á 6. hæð Hótel Cabin er einstaklega
huggulegur veislusalur þar sem hópar
njóta næðis en þó er stutt í ys og þys
miðborgarinnar.
Salatbarinn
- ávallt ferskur í hádeginu.
Opinn virka daga frá klukkan 11.30 til 14.00
Hótel Cabin, Borgartúni 32
Hvar og hver er staðurinn:
Grænn kostur, Skólavörðustíg 8, 101
Reykjavík. Við Bílastæðahúsið í
Bergstaðastræti.
Stemningin: Það er heimilisleg
stemning á Grænum kosti og mikið
af fastakúnnum sem hafa sótt staðinn
stíft um margra ára skeið. Grænn
kostur er kjörinn fyrir þá sem búa
einir því það er svo auðvelt að droppa
við, fá sér að borða, kíkja í blöðin og
eiga notalega stund. Staðurinn var
hannaður af Guðjóni Bjarnasyni
arkitekt og hafa innréttingarnar
sannarlega staðist tímans tönn. Gólf-
in eru flotuð og það er skemmtilegt
samspil milli viðar, steypu og svarta
litarins sem er allsráðandi ásamt ljós-
um. Þegar staðurinn opnaði fyrir tíu
árum var hann sá eini sinnar tegund-
ar. Fyrsti græni skyndibitastaðurinn
sem býður upp á mat sem er laus við
hveiti, sykur, ger og mjólkurvörur.
Maturinn er einnig án allra aukefna
eins og MSG. Grænn kostur er op-
inn frá 11.30 til 21.00 alla virka daga
og á laugardögum. Á sunnudögum er
opið frá 13.00 til 21.00.
Matseðillinn: Matseðillinn er fjöl-
breyttur frá degi til dags. Grænmetis-
og baunabuff eru fastir liðir á mat-
seðlinum ásamt bökum, lasagne og
öðrum smáréttum. Með rétti dagsins
eru alltaf hýðishrísgrjón ásamt fersku
salati sem einnig er breytilegt frá degi
til dags. Nær eingöngu er notast við
lífrænt hráefni á Grænum kosti.
Vinsælasti rétturinn: Blanda af
báðum réttum dagsins er vinsælasti
rétturinn á Grænum kosti en þá gefst
viðskiptavinum tækifæri til að bragða
sitt lítið af hvoru.
Hvað kostar: Venjulegur skammtur
kostar 1000 krónur en 1200 krónur
með ábót. Bökurnar og smáréttirnir
eru flestir á 800 krónur.
Seint á áttunda áratugnum þrá-
aðist ástralski víngerðarmaðurinn
Peter Lehmann við þegar vín-
gerðarhúsið sem hann starfaði hjá
gekk á bak orða sinna við bændur
á svæðinu og neitaði að kaupa
þrúgur sem fyrirtækið hafði áður
lofað að kaupa. Lehmann vildi
vera maður orða sinna, keypti
þrúgurnar samt og hætti hjá fyrir-
tækinu og stofnaði eigin víngerð.
Í fyrra sýndi Lehmann enn einu
sinni hvað hann getur verið sauð-
þrár þegar hann stóð staðfastur
gegn óvinveittri yfirtöku eins
stærsta vínfyrirtækis heims. Guði
sé lof, segja margir vinunnendur
því vín Lehmann eru einstök og
handbragð meistarans leynir sér
ekki.
Rauðvínið Futures Shiraz er
toppurinn í Ambassador línunni,
ákaflega höfugt vín sem einkenn-
ist af mildri notkun eikar við
framleiðsluna og flauelsmjúkum
berjum. Lehmann framleiddi
fyrsta árganginn af shiraz árið
1980 og honum fannst hann lofa
það góðu að hann ákvað að nefna
það „Futures“, svo mikla trú hafði
hann á framtíðarmöguleikum
shiraz-þrúgunnar í Barossa-
dalnum.
Verð í Vínbúðum 1.790 kr.
Grænn kostur
Lífrænn og lifandi
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Í matargerð myndi ég síst vilja vera án
sítróna því það er hægt að nota þær í svo
ákaflega margt. Hvítlaukur,
smjör, ólífuolía og svartur pipar
eru líka ómissandi því það er
hægt að gera ansi margt ef ég hef
þessa hluti við höndina.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Eiginlega ekki og þó, ég sækist
ekkert sérlega eftir því að borða reykta
ýsu. Það er þó ekki vegna bragðsins held-
ur tengist reykt ýsa atviki á mínum ung-
lingsárum sem ég vil alls ekki fara nánar
út í.
Fyrsta minningin um mat? Fyrsta til-
raun mín í matargerð var framkvæmd
þegar ég var sex ára. Ég var búin að lesa
mikið um bráðinn ost en hann hafði ég
aldrei smakkað. Þegar mamma var í fjós-
inu tók ég ostbita og bræddi hann í gam-
alli niðursuðudós á kolaeldavél. Þegar
osturinn fór að bráðna spratt upp þessi
ógeðslega lykt og því fór ég með niður-
suðudósina út og faldi mig þangað til
lyktin var farin úr eldhúsinu. Ég
smakkaði ekki bráðinn ost fyrr en
mörgum árum seinna.
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Það er ýmislegt undarlegt í ísskápnum,
en ég veit ekki hvort það skiptir sköpum
í matargerð, það er annað mál. Ég passa
mig á að eiga alltaf góðar svartar ólífur,
helst saltaðar, ekki í legi.
Hvað borðar þú þegar þú þarft að
láta þér líða betur? Ég
elda Risotto því það er
svo róandi að búa það til
og róandi að borða það.
Það er ekki til meira ró-
andi matur.
Hvað áttu alltaf í ís-
skápnum? Ég á yfirleitt
alltaf ferskar kryddjurtir, hráskinku, egg,
mjólk og smjör.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða
rétt myndir þú taka með þér? ég
myndi taka með mér vænt hangilæri, tað-
reykt að norðan.
Hvað er það skrítnasta sem
þú hefur borðað? Ég borðaði
ýmislegt sem krakki sem þætti
skrítið núna. Eitt af því er til
dæmis blóðkássa sem er búðing-
ur sem er búinn til úr kálfablóði
og borðaður með kanilsykri.
Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir matargúru á Gestgjafanum
Bræddi ost í gamalli niðursuðudós
Sumir velta fyrir sér heimsmálun-um, aðrir sökkva sér niður ííþróttirnar. Jón Reykdal mynd-listarmaður les uppskriftir en
ekki til þess að fara nákvæmlega eftir
þeim, heldur til þess að fá hugmyndir.
„Ég er enginn bókstafstrúarmaður á
uppskriftir og hleyp ekki upp til handa
og fóta ef mig vantar eitthvað, það kem-
ur „maður í manns stað“ í gerð matar.“
Hann segist vera mjög hrifinn af
frönskum og ítölskum mat, sem hann
blandi oft á tíðum saman. „Ég reyni þó
eftir fremsta megni að hafa matinn
hollan, vegna þess að ég er haldinn for-
dómum gagnvart fitu,“ segir hann og
hlær. Hátíðir eins og þorrinn eru ekki
beint uppáhald Jóns og hann segist
varla geta þolað þorramatinn en lætur
sig þó hafa það að fara á eitt og eitt
þorrablót. „Að lykta af hákarli er eins
og að lykta af gröfnu líki. Ég vel miklu
frekar að ilma af hvítlauk,“ segir hann.
Þrátt fyrir að hafa náð góðum tökum á
gerð aðalrétta, þá segist Jón vera mjög
lélegur í gerð eftirrétta. „Ég kýs þá
miklu frekar ferska ávexta,“ segir Jón
Reykdal sem gefur hér uppskrift að
ekta frönskum kjötrétti.
Provence nautalundir
á kartöflubeði
Fyrir 4-6 eftir atvikum þarf
1kg nautalundir, helst miðbita,
150 gr af smjöri,
góða lúku af steinselju,
tvo geira af hvítlauk,
salt,
svartur pipar.
kartöflur
Blandið smjöri, hvítlauk, steinselju,
salti og pipar og rúllið þessu upp t.d.,
inn í smjörpappír, og geymið í ísskáp,
jafnvel frysti ef smjörið er lint. Skerið
kartöflurnar í þunnar sneiðar og steikið
á pönnu eða ofnsteikið í ofnföstu fati,
saltið léttilega. Takið nautalundina,
snyrtið hana til ef með þarf og brúnið á
pönnu allan hringinn, piprið og saltið.
Minnkið síðan hitann og leyfið henni
að malla í ca. 10 mínútur og snúið einu
sinni. Þá er lundin tekin af pönnunni og
sett til hliðar og látin jafna sig. „Ef ýtt er
á hana með fingri, og hún gefur eftir,
þýðir það að hún er ekki gegnumsteikt,“
segir Jón og bætir því við að hver og
einn verði að meta fyrir sig hversu vel
steikta lund hann vill bera fram. Í fram-
haldi af þessu á að hella 1/2 -1 dl vatni
yfir pönnuna og sjóða upp kraftinn frá
kjötinu, smakka til soðið og geyma. Jón
segir að þegar kartöflurnar séu tilbúnar
er þeim raðað í ofnfast fat. Steikina eigi
að skera í sentimetra þykkar sneiðar og
sneiðunum raðað yfir kartöflurnar. „Svo
er kjötkraftinum hellt yfir og hvítlauks-
smjörið skorið kalt í sneiðar og þeim
raðað ofan á eða á milli kjötsneiðanna,“
segir hann. Þetta er síðan sett í 250
gráðu heitan ofn þar til smjörið bráðnar
og kjötið er orðið vel heitt án þess að því
sé ofgert. Jón segir það vera mjög gott
að bera fram með þessu strengjabaunir,
steikta tómata og grænt salat. „Og ekki
má gleyma góðu rauðvíni sem hæfir
nautakjöti.“
Provence nautalundir á kartöflubeði
Það er ekki amalegt að bjóða upp á þennan rétt í miðjum þorranum
Jón Reykdal myndlistarmaður þolir ekki þorramat
Franskur klassíker
Jón Reykdal myndlistarmaður Er ekki bókstafstrúarmaður á uppskriftir.
Lehmann verst
óvinveittri yfirtöku
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA