Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 47
F215FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005
Elsass-hérað í Frakklandi er eitt besta
hvítvínssvæði heims. Vínin þaðan eru
jöfn og áreiðanleg og fremur einfalt fyr-
ir vínáhugafólk að velja vínin, þar sem
þeim er einfaldlega skipt eftir þrúgum
og kaupandinn veit hvað hann er að
fá. Vín úr norðurhluta héraðsins eru
ferskari en eftir því sem sunnar dreg-
ur og hlýnar eru vínin þykkari og feit-
ari. Gaman er að gera samanburð á
vínum úr tokay pinot gris og gewürz-
traminer. Pinot gris-vínin eru léttari,
sýrumeiri og auðdrekkanlegri ein og
sér. Fá vín eru eins góð með fiski og
léttum mat og með ostum á borð við
camenbert, brie og yrju.
Gewürztraminer-vínin eru aftur á
móti feitari, sætari og kryddaðri,
kalla á bragðmeiri mat og feitari
og osta eins og stilton, gor-
gonzola og roquefort.
Willm Pinot Gris er ákaflega
góður fulltrúi tokay-vína frá
Elsass. Það er fremur þurrt, með
hnetusmjörskeimi í bland við
suðræna ávexti og langt silkimjúkt
eftirbragð. Vínið nýtur sín vel með sus-
hi, gufusoðnum eða bökuðum laxi,
hvítu kjöti og foie gras.
Verð í Vínbúðum 1.390 kr.
Rene Mure Pinot Gris virkar sætt
við fyrstu kynni en svo dettur inn
sýra í eftirbragði. Þroskað vín sem
virkar vel með karríréttum, krydduð-
um kjúklingi, paté og auðvitað flest-
um fiskréttum.
Verð í Vínbúðum 1.590 kr.
Rene Mure Gewürztraminer
er kryddað, þykkt og mikið úr
suðurhluta héraðsins. Gefur af
sér gríðarlega skemmtilega
angan af hunangi, aprikósum
og sætu kryddi sem einnig
endurspeglast í bragðinu.
Feikilegt eftirbragð, langt og
viðvarandi með örlítilli sætu í
byrjun en endar í þurrum
ávöxtum. Afbragð með aust-
urlenskum mat en hentar
einnig með ýmsum ostum.
Verð í Vínbúðum 1.490 kr.
Willm Gewürztraminer er öllu
léttara og ferskara en Rene Muré
enda úr norðurhlutanum. Býður
upp á allt það sem einkennir
gott vín úr þrúgunni: krydd,
sætu af aprikósum, sveskjum
og rúsinum auk skemmtilegrar
góðrar sýru. Vegna ferskleik-
ans er hægt að drekka þetta
vín eitt og sér en það er einnig
gott með ostum, mildum
austurlenskum réttum og feit-
um fiskiréttum.
Verð í Vínbúðum 1.390 kr.
Tokay pinot gris
Töfraþrúga
„Sú vínþrúga sem er á hvað mestri
uppleið í heiminum í dag er
Tokay pinot gris þrúgan sem
er ræktuð í Elsass-héraði Frakk-
lands,“ segir Andrés Páll Júlí-
usson, vínþjónn á Hótel Holti.
„Heimildir herma að á 14. öld hafi
þrúgan verið flutt til Ungverjalands
og ræktuð undir nafninu
Szürkebarat en hún var flutt til
Elsass (Alsace) aftur 200 árum
seinna af hershöfðingjanum
Schwendi, sem hafði verið að
berja á Tyrkjum. Hann lét planta
þrúgunni í Kientzheim, sem er
ótrúlega fallegt þorp í miðju
Elsass, og nefndi tokay.
Nafnið tokay d’Alsace hélst á
þrúgunni fram til 1980 en þá fóru
skriffinnar í Brussel að leggjast
gegn nafninu vegna tengingar við
tokaji-vínin í Ungverjalandi (eina
tengingin er reyndar sú að bæði
vínin bera svipað nafn) og upp frá
því var byrjað að tala um pinot gris
eða tokay pinot gris.“
Fjölhæf þrúga
Aðal „karakterinn“ við tokay pinot
gris er fjölhæfnin í þrúgunni og
þeim vínum sem koma úr henni,
sem dæmi eru ung vín með mikið
boddí og lykt sem einkennist af
banana og ananas, örlitlum reyk,
litlu eða engu kryddi og ferskri og
frekar lágri sýru. Þegar vínin eldast
þróast þau yfir í að vera flókin
krydduð vín sem eru meira ristuð,
kremuð og með mikinn hunangs-
og hnetukeim. Tokay pinot gris er
fjölhæft matarvín og er því helst að
þakka að þrúgan þarf ekkert sér-
staklega góð ár til að gefa af sér vín
með stórt boddí, miðlungs sýru og
nokkurt magn af umframsykri, en
það er einmitt umframsykurinn
sem gerir það að verkum að mörg-
um finnst þegar þeir smakka tokay
pinot gris í fyrsta sinn að þar sé
komið vín sem er of sætt fyrir þeir-
ra smekk. Andrés segir að það sé
reyndar rétt að sum undanfarin ár
hafa verið að gefa af sér of sæt
tokay pinot gris vín. „Það er hins
vegar vert að benda öllum á að gefa
þrúgunni annað tækifæri því að í
góðum árum eins og 1996 renna
umframsykurinn og sýran saman
og gefa af sér eitthvert besta jafn-
vægi sem ég hef fundið í hvítvíni.“
Gott með hreindýri og gæs
Tokay pinot gris vín er fyrst og
fremst er sem er þægilegt að drek-
ka hvenær sem er og hvar sem er
og alltaf hægt að finna vín sem
hæfir tilefninu. Stór tokay pinot
gris vín úr góðum árum frá góðum
framleiðenda eru til dæmis einu
hvítvínin sem ég hef prófað og
treyst að drekka með hreindýri og
gæs, útkoman var stórkostleg þó
svo að meðlætið skipti nokkru
máli, sósan má ekki vera of sterk né
meðlætið of brasað.“
Hvítvín frá Elsass úr tokay pinot gris
og gewürztraminer