Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 50

Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 50
Á árunum 1977 til 1982 voru í Reykja- vík tveir ólíkir hópar sem skiptu borg- inni sín á milli og vildu ekki hvor af öðrum vita. Þetta voru annars vegar pönkararnir og hins vegar andstæðing- ar þeirra, diskóliðið. Hóparnir höfðu sín yfirráðasvæði og skemmtistaði, pönkararnir áttu Borgina, diskóliðið Hollywood. Ármann Agnarsson gerði þessum tveimur fylkingum myndræn skil með bók sinni Diskó Pönk. „Þessir tveir hópar voru jafn ólíkir og dagur og nótt, höfðu ólík viðhorf að ekki sé tal- að um klæðaburðinn og skemmtana- venjur.“ Hann segir að í stað þess að leita uppi þekkta einstaklinga frá þessu tímabili og notast við myndir sem hafi birst áður hafi hann farið á stúfana og leitað þetta fólk uppi og fengið mynd- ir að láni úr einkasafni þess. „Þetta eru því myndir sem aldrei hafa sést opin- berlega,“ segir hann og bætir því að hann hafi alls staðar mætt miklum skilningi. „Flestir höfðu ótrúlega gam- an af því að rifja þetta tímabil upp, og áttu ennþá helling af hlutum frá því. Fólk komst í svona nostalgíustuð,“ segir hann. Hann segist alveg eins hafa búist við því að hitta einstaklinga sem enn væru fastir í tímabilinu, en flestir hafi verið vaxnir upp úr því. „Fulltrúar pönkaranna voru jarðbundnir, og lifðu hversdagslegu lífi, á meðan diskóliðið gerði mikið úr hamingju sinni og var á fullu í lífsgæðakapphlaupinu,“ segir hann og bætir því enn fremur við að pönkararnir hafi verið tilbúnir að segja frá dökku hliðunum. „Diskóliðið sagðist bara hafa drukkið vatn og dansað, enda var dansinn mjög mikilvægur hjá því.“ Bókin var lokaverkefni Ármanns í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, og fæst hún nú í mjög tak- mörkuðu upplagi í búðinni Ranimosk á Klapparstíg. F2 18 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Fröken Freyja leysir vandann Fýlan að drepa allt Lífið er ekki alveg að leika við mig þessa dagana. Ekki veit ég hvort það er vetrarkuldinn eða hvað en mér lyndir bara hrikalega illa við fólk þessa dagana. Það er alveg sama hvort ég er í vinnunni eða með vin- unum, það fer alltaf allt í háa loft. Nú er svo komið að ég kvíði fyrir að mæta í vinnuna því þar eru allir á móti mér. Það nennir enginn að tala við mig í mötuneytinu og vinnu- félagarnir eru hættir að láta mig vita ef það er teiti. Það sama er að gerast í vinahópnum. Ég er orðin mjög pirruð á þessu og finnst þetta alls ekki vera mér að kenna, það er bara eitthvað að þessu fólki sem ég um- gengst. KH í Hafnarfirði Iss, þetta er nú bara væl í þér góða, það vantar bara ljós inn í líf þitt. Keyptu þér ferð til Kanarí og hugsaðu þinn gang. Liggðu á ströndinni með kokk- teila í hönd, vertu dugleg að fara á bar- inn og taktu nokkur salsaspor við inn- fæddu gæjana. Ég er alveg viss um að þú verður ný manneskja þegar þú kem- ur til baka. Ef þetta virkar ekki skaltu leita þér hjálpar eða skipta um vinnu. Eitthvað af þessu hlýtur að duga vin- an. Vandræði hjá miðaldra manni Ég er í mikilli klípu. Ég er mið- aldra karl og konan mín er búin að vera brjáluð út í mig um nokkurt skeið því hún heldur því fram að ég eigi viðhald. Þessi leiðindi hennar hafa gert það að verkum að mig er farið að dreyma um að halda fram- hjá í alvörunni. Helst langar mig í unga og ferska stúlku, en svoleiðis hugsanir höfðu aldrei hvarflað að mér áður. Nú er svo komið að sama hvert ég fer, mér finnst ég alstaðar sjá æðislegar þokkadísir og mig dreymir um að kynnast þeim betur. Mér finnst stelpurnar á kössunum í matvöruverslunum horfa til mín hýru auga og þegar ég fer í bank- ann finnst mér nýútskrifaði gjald- kerinn haga sér eins og hún vilji eitthvað meira. Er ég orðinn rugl- aður eða er eiginkonan að fara yfir- um? BB í Mosfellsbæ Þetta kallast að vera með gráa fiðring- inn minn kæri og þú gætir jafnvel ver- ið haldinn ranghugmyndum. Hvernig dettur þér í hug að barnungar stúlkur hafi áhuga á ellilífeyrisþegum? Það eina sem dugar fyrir þig er vegleg sálfræði- ráðgjöf. Verst er að ég veit ekki um neinn sálfræðing sem er að leita sér að fullri vinnu með einn skjólstæðing. Sendið fyrirspurnir og vandamál til fröken Freyju, F2, Skaftahlíð 24, 105 Rvk eða sendið henni tölvupóst á netfangið frkfreyja@frettabladid.is. Nöfn sendenda verða ekki gefin upp í blaðinu.Sendu SMS skeytið JA ABF á númerið 1900 og þú gætir unnið. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Golden Globe VERÐLAUN3 tilnefningar til BAFTA verðlauna Vinningar eru: Miðar á myndina • DVD myndir geisladiskar og margt fleira. 9. hver vinnur. Pönkarar og diskólið sameinast Sviffluguskyrtur og leðurjakkar Diskóliðið „Það er kannski meira upptekið af lífsgæðakapphlaupinu í dag.“ Pönkarar „Þeir eru í dag mjög jarðbundnir og lifa hversdagslegu lífi.“ DISKÓ P Ö N K D IS K Ó PÖNKDISKÓ Dansinn var mjög mikilvægur fyrir diskóið. Pönkarinn var með sín eigin lög og reglur. Mugison Fáir hafa skotist jafn hratt upp á hinn íslenska stjörnu- himin og allralandshlutamanninum Mug- ison. Hann var þegar orðinn hálfgerð költhetja í þröngum hópi tónlistaráhuga- manna eftir fyrri plötu sína Lonely Montain, sem kom út 2002, en þegar Mugimama is this Monkeymusic? kom út síðasta haust opnuðust dyrnar upp á gátt í Kastljósið, Gísla Martein og Ísland í dag og hann varð umsvifalaust eftirlæti þjóð- arinnar. Bjarni Benediktsson Hefur slegið í gegn eftir að hann tók nokkuð óvænt sæti á Al- þingi 2003. Einhverjir fótboltanördar hafa eflaust munað eftir honum fyrir þann tíma sem sæmileg- asta varnarmanni í Stjörnunni en hann hefur sýnt á þingi að hann er betri þingmaður en fótbolta- maður. Bjarni hefur staðið sig vel í stormasömu hlutverki sem formaður allsherjarnefndar og ekki spillir fyrir bjartviðrinu yfir honum að hann er í sérstöku eftirlæti hjá kvenþjóðinni. Nylon Sú hugmynd Einars Bárðarsonar að stofna íslenskt stelpuband þótti nú ekki sérlega líkleg til að bera blómlegan ávöxt en nú ættu flestir að vera farnir að kannast við andlit þeirra Ölmu, Emelíu, Klöru og Steinunnar þótt þeir séu nú eflaust ekki margir sem viti hver er hvað. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Það er af sem áður var þegar titillinn ungfrú Ís- land var ávísun á frægð meðal þjóðarinnar. Í seinni tíð hafa fegurðardrottningar fallið hratt í gleymsku en þó ekki Ragnhildur Steinunn sem sýndi í söngleiknum Fame að hún er hörkudansari og er auk þess sérlega skjávæn í þættinum Óp á RÚV. Svala Björgvinsdóttir Er horfin úr sviðsljósinu. Svölu til hróss má segja að hún lagði allt undir og gerði alvöru atlögu að heimsfrægðinni, sem er meira en hægt er að segja um flesta sem eiga sér þann draum. Fjölnir Þorgeirsson Var fremur þekktur af konunum í lífi sínu en eigin afrekum. Fjölnir er fluttur út á land og horfinn af síðum Séð og heyrt. Var ekki annars alltaf meira framboð af Fjölni en eftirspurn? Teitur Þorkelsson Sjónvarpsfréttamaðurinn glað- hlakkalegi átti sínar 15 mínútur af frægð og tímarita- forsíðu á hlýrabol. En Teitur er ekki svo heitur enn þá. Hann starfar nú í breska sendiráðinu og er búinn að skipta út bolnum fyrir skyrtu og bindi. Iceguys Hverjir? Jú, þetta er „boybandið“ sem spratt upp úr fyrsti Idol-keppninni. Ólafur Már, Einar Valur og Kjartan Arnalds ákváðu að láta ekki deigan síga þótt þeir féllu snemma úr Idolinu og ætluðu að slá í gegn saman. En það varð svona „No-hit-wonder“. Loftvog Frægðarinnar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.