Fréttablaðið - 27.01.2005, Síða 54
Orrusta undirbúin
Spenna ríkir á markaðnum um hvert muni stefna í
löngun Landsbankans til að ná völdum í Íslands-
banka. Björgólfsfeðgar hafa sterka stöðu í Straumi
og nú hefur Straumur fengið leyfi til að eiga virkan
eignarhlut í Íslandsbanka. Það leyfi er þó háð
ströngum skilyrðum Fjármálaeftirlitsins. Ljóst er að
núverandi staða varir ekki að ei-
lífu, en til þess að Landsbanka-
menn nái tökum á Íslands-
banka þarf að rjúfa samstöðu
núverandi meirihluta. Margir
veðja á að til tíðinda muni
draga fyrir aðalfund bankans í
febrúar.
Samsæriskenningar
fengu byr undir báða
vængi þegar fréttist
af fundi Björgólfs
Guðmundssonar
með yfirmanni verð-
bréfasviðs Landsbankans. Samsæriskenningar-
menn telja að Björgólfsfeðgar beini sjónum að
Karli Wernerssyni og hlut hans og systkina hans í
Íslandsbanka. Ýmsir telja að Karl muni selja fyrir
rétt verð og telja sig hafa fundið það verð, sem er
15 krónur á hlut í bankanum.
Samskip veðja á ESB
Samskip hafa komið sér upp umfangsmikilli stars-
femi í Rotterdam en þar er ein stærsta farskipa-
höfn heims. Frá höfninni í Rotterdam er hægt að
senda vörur hvort sem er með flutningaskipum,
fljótabátum, járnbrautalestum eða vöruflutningabíl-
um á áfangastaði um alla Evrópu. Evrópusam-
bandið hefur hrundið af stað áætlun sem miðar að
því að draga úr umferð vöruflutningabíla um hrað-
brautir Evrópu. Þetta telja skipafélögin, þar á með-
al Samskip, að komi til með að auka skipaflutn-
inga verulega. Samskip stefna að því að vera tilbú-
in að taka við þeirri auknu traffík sem búast má
við vegna stefnu Evrópusambandsins.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.632
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 418
Velta: 3.428 milljónir
+0,97%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Kevin Stanford stofnandi Karen
Millen verslunarkeðjunnar hefur
aukið hlut sinn í Mulberry keðj-
unni. KB banki hefur keypt hluti í
keðjunni fyrir hönd Stanfords.
FTSE-vísitalan hækkaði um 0,08
prósent í Lundúnum í gær en í
Þýsklandi féll Dax um 0,47 prósent.
Bréf í Flugleiðum hækkuðu
hressilega í gær. Þau eru nú ríf-
lega 28 prósent hærri en þau
voru um áramót. Markaðsvirði
Flugleiða er nú 32 milljarðar og
er félagið því orðið verðmætara
en SÍF.
Fram kom í fréttabréfi KB banka
í gær að kauphöllin í New York
íhugi að lengja opnunartíma sinn
um eina til tvær klukkustundir á
dag.
22 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Flugleiðir gerðu í gær
stærsta fluvélakaupa-
samning í sögu félagsins.
Flugleiðir kaupa tíu þotur
fyrir 40 milljarða króna.
Dulin eign upp á 6,5 millj-
arða myndast við kaupin.
Flugleiðir undirrituðu í gær
stærsta flugvélakaupasamning í
sögu félagsins. Flugleiðir kaupa
10 Boeing 737-800 vélar fyrir 40
milljarða króna. Samningurinn
markar einnig þau tímamót að
þetta er í fyrsta skipti sem ís-
lenskur banki fjármagnar slík
kaup. KB banki fjármagnar einn
samninginn og hljóðar inngreiðsl-
an upp á ellefu milljarða króna.
Samningnum við Boeing fylgir
kaupréttur á fimm vélum til við-
bótar og yrði heildarkaupverðið
því 60 milljarðar verði hann nýtt-
ur.
Hannes Smárason, stjórnar-
formaður Flugleiða, segir það
hversu hratt menn unnu hafa ráð-
ið úrslitum um að Flugleiðir
keyptu vélarnar. Verðið er hag-
stætt að hans mati og viðskiptin
þannig til komin að flugfélag af-
pantaði vélarnar og Flugleiðum
ásamt fleirum bauðst að kaupa.
„Það réði úrslitum hversu fljótt
við gátum brugðist við og hversu
hratt við og KB banki gátum
unnið.“
Við kaupin myndast þegar
aukin verðmæti í Flugleiðum þar
sem verðið er hagstætt og vélarn-
ar eftirsóttar á eftirmarkaði. Þær
eru uppseldar fram í tímann og
meta stjórnendur Flugleiða að
dulin verðmæti vegna samnings-
ins nemi 6,5 milljörðum króna.
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri KB banka, sagði samning-
inn einkar ánægjulegan. „Flug-
leiðir og KB banki eiga það sam-
eiginlegt að vera alþjóðleg fyrir-
tæki með höfuðstöðvar á Íslandi.
Samningurinn er skýrt dæmi um
hvernig alþjóðavæðing bankans
skilar sér í virðisauka leiðandi
íslenskra fyrirtækja á alþjóða-
vettvangi.“
Fleiri bitust um bankaviðskipt-
in, meðal annars erlendir bankar.
Valið í lokin stóð á milli Lands-
bankans og KB banka sem höfðu
fram yfir erlenda banka að geta
gengið hraðar frá viðskiptunum.
Ekki þarf að fara langt aftur til
þess að óhugsandi hefði verið
fyrir íslenskan banka að ráða við
samning af þessari stærð.
Mark Norris, fulltrúi Boeing,
sagði Flugleiðir og Boeing-verk-
smiðjurnar eiga langa og farsæla
sögu í viðskiptum og hann teldi
kaupin hárrétt tímasett fyrir
Flugleiðir og að þau myndu skila
félaginu góðum árangri.
Samhliða þessu stofna Flug-
leiðir nýtt dótturfélag sem sinnir
flugvélaviðskiptum. Vélarnar
verða leigðar áfram og á félagið í
samningaviðræðum við flugvéla-
leigufyrirtækið Sunrock um
markaðssetningu vélanna. Hann-
es Smárason segir mikla eftir-
spurn eftir þessum vélum. Flug-
leiðir hafa að undanförnu keypt
einir eða í félagi við aðra sextán
flugvélar, en til samanburðar eru
tólf vélar sem sinna millilanda-
flugi félagsins.
haflidi@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 42,90 -0,23% ... Atorka 5,76 –
... Bakkavör 25,00 +0,40% ... Burðarás 12,80 +2,40% ... Flugleiðir 12,65
+4,55% ... Íslandsbanki 11,30 -0,44% ... KB banki 500,00 +1,94% ...
Kögun 46,70 -0,64% ... Landsbankinn 13,00 +2,36% ... Marel 53,20 -
0,75% ... Medcare 5,85 – ... Og fjarskipti 3,35 -0,59% ... Samherji 11,30
– ... Straumur 9,90 -1,49% ... Össur 81,50 -
Risasamningur
hjá Flugleiðum
Flugleiðir 4,55%
Burðarás 2,40%
Landsbankinn 2,36%
Straumur -1,49%
Marel -0,75%
Kögun -0,64%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Fyrir þorrablótið og árshátíðina
Dúkar, servíettur og kerti í miklu úrvali
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Nýr o
pnun
artím
i
í ver
slun
RV:
R
V
20
27
Lotus TexStyle dúkarúlla
1,2 x 50 m
5.696.-
Bosíus kerti
24,5 cm, 30 stk.
598.-
Lotus NexxStyle servíettur
39 x 39 cm, 80 stk.
276.-
Verð frá
NR. 4 - 20
05 • Verð
kr. 599
27.jan.-2.feb.
Stormasamt
samband!
MEÐ AU PA
IR
STÚLKU!
Ásdís Rá
n og
Garðar G
unnlaugs
:
Skauta
r
á skjá
inn!
Eva María
Jónsdóttir:
EIGA VON
Á BARNI SA
MAN!
Fitukeppirn
ir Bjarni
Hafþór og M
agnús:
Björgól
fur
Takefus
a:
LAUS OG LI
ÐUGUR! 9
7
7
1
0
2
5
9
5
6
0
0
9
FÉKK 10 MILL
JÓNA
KRÓNA FÖTIN
FRÁ AFA!
FM-hnakkin
n
Svali skilinn
:SPIK
IÐ
RENNUR
AF ÞEIM
ALSÆL
01 S&H F
ORSÍ‹A0
305 TBL
-2 24.1
.2005 1
5:14 Pa
ge 2
Gerir lífið skemmtilegra!
Ge
rir
lí
fið
sk
em
mt
ile
gr
a!
Sjáiðmyndirnar
SAMNINGUR Í HÖFN Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Hannes Smárason stjórnarformaður og Mark Norris frá Boeing-verksmiðj-
unum undirrita stærsta flugvélakaupasamning Flugleiða hingað til.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Bakkavör birtir í dag tölur um
afkomu á fjórða ársfjórðungi
síðasta árs og heildarniðurstöðu
rekstrarins.
Greiningardeildir bankanna
spá því að hagnaður Bakkavarar í
fyrra hafi verið á bilinu 12,4 til
13,4 milljónir punda en hagnaður
árið 2003 var 13,5 milljarðar. Á
fjórða ársfjórðungi 2003 var
hagnaðurinn 3,1 milljón punda.
- þk
Uppgjör Bakkavarar í dag
SPÁR UM AFKOMU BAKKAVARAR*
4. fjórðungur 2004 Ársuppgjör 2004
KB banki 3.681 12.406
Íslandsbanki 4.700 13.400
Íslandsbanki 4.290 13.000
*Bókhald Bakkavarar er fært í sterlingspundum og eru tölurnar þúsundir sterlingspunda.