Fréttablaðið - 27.01.2005, Page 56
Fyrir 98 árum í dag komu saman
nokkrar konur að Þingholtsstræti
18. í Reykjavík, heimili Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur. Þarna var
stofnað Hið íslenska kvenrétt-
indafélag og var Bríet Bjarnhéð-
insdóttir fyrsti formaður þess.
Þorbjörg Inga Jónsdóttir gegnir
því starfi í dag. Á þessum 98
árum hefur kvenréttindafélagið
átt stóran þátt í að stuðla að jafn-
rétti kynjanna og segir Þorbjörg
að fyrsta baráttumál félagsins
hafi verið að koma á kosninga-
rétti kvenna.
„Í ár, þann 19. júní, eru 90 ár
síðan konur fengu í fyrsta sinn að
kjósa og er þetta því stórafmæli
kosningaréttar kvenna. Í gegnum
árin hefur félagið einnig unnið að
því að jafna laun kynjanna. Fyrst
var unnið að því að setja lög sem
gerir það óheimilt að greiða kon-
um lægri laun en körlum og nú
erum við að reyna að jafna þetta
að fullu en það hefur ekki enn
tekist. Félagið hefur einnig unnið
að málefnum fjölskyldunnar og í
því að jafna hlut kynjanna hvað
varðar ábyrgð á fjölskyldu,“
segir Þorbjörg.
Í tilefni af afmælinu mun
félagið halda ráðstefnu laugar-
daginn 5. febrúar. Ráðstefnan
verður helguð jafnréttisstarfi í
þrjátíu ár eða frá árinu 1975
þegar kvennafrídagurinn var
haldinn. „Þarna munum við
fjalla um jafnréttisstarf síðustu
þrjátíu ár og hvað það er sem
enn þá er ábótavant. Í fyrstu
setti félagið stöðuna upp þannig
að ef konur myndu fá jöfn tæki-
færi til menntunar þá myndi
launajafnræði verða, en það er
hins vegar ekki enn orðið. Við
munum einnig ræða um stöðu
kvenna á vinnumarkaðnum, að-
komu kvenna að jafnréttismál-
um og stöðu kvenna í pólitík.“
Ráðstefnan fer fram í Ráðhús-
inu í Reykjavík, Tjarnarsal,
laugardaginn 5. febrúar klukkan
ellefu. ■
24 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
WOLFGANG AMADEUS MOZART
Tónskáldið magnaða fæddist á þessum degi
árið 1756 fyrir 249 árum síðan.
Stórafmæli kosninga-
réttar kvenna
HIÐ ÍSLENSKA KVENRÉTTINDAFÉLAG: VAR STOFNAÐ Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1907
„Snillingur verður ekki til þegar miklar gáf-
ur og ríkt ímyndunarafl koma saman. Ást-
in, ástin, ástin er sál snilligáfunnar.“
Það blandast fáum hugur um að afmælisbarn dagsins hafi verið
séní, þannig að hann ætti að vita hvað hann var að syngja.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Geir Sveinsson handboltahetja er 41
árs.
Jón Ásgeir Jóhannesson viðskiptajöfur
er 37 ára.
ANDLÁT
Hlíf Jónsdóttir, frá Búðardal, Mánagötu
14, lést föstudaginn 14. janúar. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Friðgeir Kristjánsson húsasmíðameist-
ari, Bröttuhlíð 14, Hveragerði, lést mið-
vikudaginn 19. janúar.
Birgitta Hrönn Einarsdóttir lést á Land-
spítalanum, föstudaginn 21. janúar.
Bogi Brynjar Jónsson, Ljósheimum 20,
Reykjavík, lést sunnudaginn 23. janúar.
Christian Patt, Malic, GR., Sviss, lést
sunnudaginn 23. janúar.
Ingibjörg Þorleifsdóttir, Álfaborgum 15,
Reykjavík, lést mánudaginn 24. janúar.
John Larsen, Flintevænget 9, Fredrik-
sværd, Danmörku, lést mánudaginn 24.
janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Davíð Guðmundsson, Kristni-
braut 43, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju.
14.00 Ari Guðmundsson, Lækjargötu 1,
Hvammstanga, verður jarðsung-
inn frá Hvammstangakirkju.
15.00 Friðgeir Kristjánsson húsasmíða-
meistari, Bröttuhlíð 14, Hvera-
gerði, verður jarðsunginn frá
Hveragerðiskirkju.
15.00 Kristín J. Þorsteinsdóttir, frá Eski-
firði, síðast búsett í Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og
Hólakirkju.
ÞORBJÖRG INGA JÓNSDÓTTIR er nú-
verandi formaður félagsins. Í tilefni 98 ára
afmælis þess mun félagið halda ráðstefnu
hinn 5. febrúar næstkomandi.
Á þessum degi árið 1993 hand-
tók lögreglan Bandaríkjamenn-
ina Donald Feeney og James
Brian Grayson en þeir höfðu
rænt tveimur dætrum Ernu Eyj-
ólfsdóttur af hóteli í Reykjavík.
Erna átti aðra stúlkuna með
Grayson en hann greip til þess
úrræðis í harðri forræðisdeilu að
ráða Feeney til þess að ræna
dóttur sinni og systur hennar frá
Íslandi.
Donald Feeney var fyrrum sér-
sveitarmaður í Bandaríkjaher og
sérhæfði sig í að ná börnum af
forræðislausum foreldrum. Leið-
angur Feeneys til Íslands var all-
ur hinn ævintýralegasti þar sem
hann sigldi undir fölsku flaggi og
þannig „skúbbaði“ Tíminn sálugi
því að Feeney, sem þóttist vera
kvikmyndaframleiðandinn Mario
Kassar, væri hingað kominn til
að gera mynd með Sylvester
Stallone.
Feeney var dæmdur í fangelsi á
Íslandi og mátti dúsa á Litla-
Hrauni en þaðan gerði hann
eina misheppnaða flóttatilraun
og var handtekinn með íslensk-
um samfanga sínum þar sem
þeir reyndu að komast um borð
í leiguflugvél sem átti að flytja
þá til Færeyja.
27. JANÚAR 1993
Donald Feeney var handtekinn.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1943 Bandaríkjamenn gera sína
fyrstu loftárás á Þýskaland í
seinni heimsstyrjöldinni
þegar um 50 sprengjuflug-
vélar ráðast á Wilhlems-
haven.
1944 Rússar tilkynna að tveggja
ára umsátri Þjóðverja um
Leníngrad sé lokið.
1945 Rússneskir hermenn frelsa
fanga í útrýmingarbúðum
nasista í Auschwitz og
Birkenau í Póllandi.
1973 Friðarsamningar vegna
Víetnam-deilunnar eru
undirritaðir í París.
1981 Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti tekur á móti 52 gísl-
um frá Íran í Hvíta húsinu.
1992 Fyrrum hnefaleikaheims-
meistarinn Mike Tyson
kemur fyrir dómara ákærð-
ur um að hafa nauðgað 18
ára stúlku sem keppti í feg-
urðarsamkeppni árið 1991.
Barnaræningjar gómaðir
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall ástkærrar
móður okkar,
Þórunnar Sveinsdóttur
Fljótakróki, Skaftárhreppi.
Hlýjar kveðjur til starfsfólks Klausturhóla,
Magnhildur Ólafsdóttir, Hávarður Ólafsson, Margrét Ólafs-
dóttir, Guðlaug Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur.
Ástkær sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Heiðar Rafn Baldvinsson
lést að kvöldi 21. janúar. Útför verður auglýst síðar.
Aðstandendur.
Úr kaffihúsi í gistiheimili
Olga Óla Bjarnadóttir, eigandi Café
Nielsen á Egilsstöðum, er að gera
upp gamalt hús við Tjarnarbraut 3,
í næsta húsi við kaffihúsið, og
hyggst í vor opna þar gistiheimili
með fimm vel búnum herbergjum.
Olga gerði á sínum tíma upp hús-
næði Café Nielsen og hefur rekið
þar kaffihúsið í tæp níu ár en starf-
ið er annasamt og hyggst hún því
minnka við sig vinnu. Olga ætlar
því að selja kaffihúsið en reka gisti-
heimilið sjálf.
Hún hefur haft kaffihúsið opið
daglega frá 11.30 fram undir mið-
nætti og lengur um helgar eftir að
framkvæmdir hófust á Kárahnjúk-
um. Áður var hún með lokað yfir
vetrarmánuðina.
Starfið er mjög annasamt á
sumrin og með framkvæmdunum á
Kárahnjúkum hefur það aukist líka
yfir veturinn því að starfsmenn
framkvæmdafyrirtækjanna setjast
gjarnan inn hjá henni þegar þeir
koma í bæinn.
„Það er heilmikil traffík, það fer
ekki á milli mála. Aukningin hefur
verið stöðug og góð,“ segir Olga og
telur að aukningin hafi kannski
numið hátt í helming síðustu ár. - ghs
OLGA ÓLA BJARNADÓTTIR Selur Café
Nielsen og gerir upp gistiheimili í nágrenn-
inu.
CAFÉ NIELSEN Í næsta nágrenni við þetta huggulega kaffihús er gistiheimilið.
BRÍET BJARNHÉÐINSDÓTTIR var fyrsti
formaður Hins íslenska kvenréttindafélags
og jafnframt einn stofnenda þess hinn 27.
janúar 1907.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA