Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 27. janúar 2005 31
Saliva: Survival of the Sickest
„Þessi diskur er búinn að fá að malla fram og aftur
í spilaranum og er mér skapi næst að mölva hann
í frumeindir. Söngvarinn færi létt með að drepa
heilan her úr leiðindum. Ætti maður kannski að
búast við einhverju öðru frá hljómsveit sem kallar
sig Munnvatn?“ SJ
Devendra Banhart: Nino Rojo
„Sálarfull og róandi plata sem virkar vel sem
undirspil fyrir frosna janúardaga. Birtan yfir þessari
plötu er svipuð og fyrstu sólargeislarnir sem teygja
sig til okkar yfir fjallstindana á morgnana.“
BÖS
The Futureheads:
The Futureheads
„Frumraun The Futureheads er góð. Hljómur sveitar-
innar er ekki mjög ferskur en sveitin bætir upp fyrir
það með beittum önglum og góðum flutningi.“
BÖS
Converge: You Fail Me
„Vilji menn kraft, útsjónarsaman hljóðfæraleik, við-
brigði, kafla beint-í-andlitið, melódíur, niðurbrot og
uppþot, þá er Converge skyldueign. Algjört meist-
araverk frá Íslandsvinunum.“
SJ
Hoffman: Bad Seed
„Big Brother er að mínu mati langbesta lag plöt-
unnar og gefur góða von um að Hoffman sé fær
um að geta af sér breiðskífu af bestu gerð.“
SJ
Cex: Maryland Mansions
„Þetta er áttunda breiðskífa raftónlistarmannsins Cex á
fimm árum en hann er rétt rúmlega tvítugur. Hann er
frumlegur, hugmyndaríkur og beittur textahöfundur.“
BÖS
Pinback: Summer in Abbadon
„Sætt nýbylgjupopp sem ætti ekki að geta
gengið fram af neinum. Pinback tekst hið ótrú-
lega, að brúa bilið á milli Slint og Jimmy Eat
World.“
BÖS
Þórir: I Believe in This
„Þórir fer gjörsamlega á kostum í upphafslaginu,
So is this... og Canada oh Canada, sem eru bestu
lög plötunnar. Honum tekst frábærlega til með
frumraun sinni og verður spennandi að fylgjast
með drengnum á komandi tíð.“
KH
Antlew/Maximum:
Antlew/Maximum
„Þó svo að tónlistin sé ekki það frumlegasta sem
er í boði í dag þá eru kapparnir fagmennskan
uppmáluð og hæfileikarnir fara ekki á milli mála.
Færni Anthony á rappsviðinu kemst vel til skila og
snertir hann á mörgum viðkvæmum viðfangsefn-
um í textasmíðinni.“
SJ
Búdrýgindi: Juxtapose
„Skemmtileg plata eins og forveri hennar. Sveitin
er orðin þéttari en áður og óhrædd við að þróa sig
áfram.“
FB
The Polyphonic Spree:
Together We Are Heavy
„Önnur plata The Polyphonic Spree kemur manni í
gott skap. Svolítið einsleit á köflum en rennur þó
ágætlega í gegn.“
BÖS
Dizzee Rascal: Showtime
„Dizzee Rascal er breskari en te, djúpsteiktur fiskur
og franskar kartöflur í pappír. Hann er líka alinn
upp í gettóinu í London. Flugbeittur og gallharður.
Frábært afrek, ein af áhugaverðari plötum frá Bret-
landi í ár.“
BÖS
Nancy Sinatra: Nancy Sinatra
„Nancy Sinatra heldur kúlinu og gerir plötu með
Bono, The Edge, Jarvis Cocker, Morrissey, Calexico
og Thurston Moore. Frábær plata, þó að Geir Ólafs
eigi ekki eftir að samþykkja þetta.“
BÖS
Tenderfoot: Without Gravity
„Ótrúlega þægileg og góð plata frá Tenderfoot.
Þessir drengir gætu svo sannarlega orðið næsta
„hittið“.“
FB
Birgir Örn Steinarsson
Freyr Bjarnason
Kristján Hjálmarsson
Smári Jósepsson
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Clinic: Winchester Cathedral
„Á þriðju plötu Clinic er að finna nokkur góð lög,
en útsetningar eru of kæruleysislegar. Ekki slæmt,
en ekkert sérstaklega gott heldur.“
BÖS
PLATA VIKUNNAR
Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is
Tískurokksveitin The Strokes
vinnur nú hörðum höndum að
sinni þriðju breiðskífu, en með-
limir sveitarinnar hafa verið læst-
ir inni í hljóðveri frá miðju síðasta
ári. Þrátt fyrir allan þann tíma
segir umboðsmaður þeirra að að-
eins fimm lög séu tilbúin. Að
þessu sinni vinnur sveitin með
nýjum upptökustjóra, David
Kahne.
Plötufyrirtæki The Strokes
hefur ekki getað ákveðið útgáfu-
dag þar sem sveitin neitar að láta
ýta á eftir sér. Á heimasíðu sveit-
arinnar lofar þó umboðsmaðurinn
því að platan muni skila sér í búð-
ir á þessu ári.
Upptökustjórinn David Kahne
hefur hingað til ekki unnið mikið
með framsæknum listamönnum
en hann er þekktastur fyrir vinnu
sína með Paul McCartney, The
Presidents of the United States of
America og Sugar Ray.
Sveitin hefur einnig ákveðið að
veita bandarískum aðdáendum sín-
um frían aðgang að aðdáenda-
klúbbi sínum. Hingað til hefur hún
verið dugleg að skaffa aðdáendum
sínum frítt efni í gegnum netið, svo
sem tónleikaupptökur á DVD. ■
Lofa plötu á árinu
THE STROKES Vinnur með nýjum upptökustjóra, David Kahne.
Rannsókn alríkislögreglunnar í
Bandaríkjunum á tengslum
eiturlyfjaheimsins og rapptón-
listariðnaðarins hefur leitt til
handtöku Irv „Gotti“ Lorenzo,
yfirmanns plötufyrirtækisins
The Inc. Fyrirtækið er m.a. með
Ashanti og Ja Rule á sínum
snærum. Félagi hans Kenneth
„Supreme“ McGriff er talinn
samsekur. Þeir verða að öllum
líkindum ákærðir fyrir aðild að
morðtilræði og fyrir peninga-
þvott en þeim er gefið að sök að
hafa notað fyrirtækið til þess að
koma eiturlyfjagróða aftur í
umferð. Báðum er einnig gefið
að sök að hafa stofnað fyrirtæki
sitt fyrir gróða af heróín- og
kókaínsölu.
Báðir neita allri sök, en
McGriff situr nú bak við lás og
slá fyrir að bera á sér ólögleg
skotvopn. ■
IRV „GOTTI“ LORENZO
Rappmógúllinn hefur verið
handtekinn grunaður um morð-
tilræði og peningaþvott.
Rappmógúll
handtekinn