Tíminn - 23.02.1975, Page 2

Tíminn - 23.02.1975, Page 2
2 TÍMINN Sunnudagur 23. febrúar 1975 Sunnudagur 23. febrúar1975 íh Vatnsberinn (20. -18. febr.) ,ian.- Þaö litur út fyrir, að loksins sé komiö aö þessu mikla. Þú færö stoð og stuöning annarra og viöurkenningu fyrir störf þin. Aö visu skyggir þaö á gleöi þina, aö þetta vekur öfund ákveöinna aöila, en viö þvi er ekkert aö gera. Fiskarnir (19. febr.—20. mar . Það er nú einu sinni svo, aö dagarnir geta verið hver öörum llkir, og þú hefur veriö i ládeyöu-timabili, sem enn er ekki á enda. Meöan svo er, skaltu ekki slita þér út á þvi aö brambolta eitthvaö, sem kemur ekki að neinu gagni. Hrúturinn (21. marz—19. april) Ef þaö er eitthvaö sérstakt, sem þú vilt endilega koma fram, þá skaltu fara aö öllu meö gát og ekki vera alltof hreinskilinn og opinskár um þaö, sem þú ert aö gera, eöa hvaö þér finnst? Þaö kemur þér bara i koll siöar. Nautið (20. april—20. mai) Þessi dagur er heppilegur til ritstarfa, og þá sér- staklega til þess aösvara bréfum, og litur út fyr- ir, aö sum þeirra séu jafnvel farin aö þrengja svo aö þér, aö ekki veröi lengur undan komizt. Hertu upp hugann. Tviburarnir (21. mai—20. júni) Þaö er eins og þetta veröi skemmtilegur dagur fyrir þig. Aö visu verður talsvert um aö vera, en það er óvist, aö þaö snerti þig nokkuö, að minnsta kosti ef þú reynir aö láta þaö fara framhjá þér. Astamálin eru hagstæö. Krabbinn (21. júni—22. júli) Það litur út fyrir, að það sé ekkert auövelt aö ná sambandi viö þig þessa dagana, og jafnvel engu likara en þú lokir þig inni i skel. Þetta skaltu foröast, hrista af þér sleniö og lita bjartari aug- um á umhverfiö og tilveruna. Ljónið (23. júlí—23. ágúst) Þú gerir skynsamlegast i þvi aö einbeita þér aö skylduverkunum, þvi aö verkefnin sópast aö þér, og þaö er um aö gera fyrir þig aö sýna nú, hver dugur er I þér. Þaö verður vænlegast til árangurs upp á framtiöina. Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.) Það litur út fyrii; að einhverjum finnist þú.vera anzi einráður og sjálfumglaður þessa dagana, en það er ekki vist, aö þaö sé þaö allra versta I fari manns, a.m.k. ekki i dag. Maöur þarf ekki alltaf aö vera allra. Vogin (23. sept.—22. okt.) Þaö litur út fyrir, aö þetta veröi mikill annadag- ur hjá þér, og þaö veröur svo mikiö aö gera hjá þér, að i öllum önnunum hættir þér til aö gleyma þinum nánustu, en viö þvi er sérstök ástæöa til þess að vara þig i dag. Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.) Þaö litur út fyrir, aö I dag gefist þér tækifæri til þess aö hafa samband við fólk, sem hefur eitt- hvaö aö segja og getur oröiö þér aö liöi viö aö koma áformum þinum á framfæri. En til þess þarftu aö láta á þér bera. Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.) Þú kemur málum þinum og fyrirætlunum langt i dag, ef þú lætur orö og skoöanir annarra eins og vind um eyrun þjóta og framkvæmir aöeins eft- ir sannfæringu þinni og trú á þaö, sem þú ert aö gera. Þá kemstu lika iangt. Steingeitin (22. des.-19. jan) I dag skaltu búast viö þvi, aö þú veröir fyrir sterkum áhrifum af samtölum eða bréfum, og er þó ekki þar meö sagt, aö þau kómi endilega i dag, þau gætu veriö eldri. Lofaðu engu, sem þú getur ekki staöiö viö. Svarfdælingar — fjær og nær Árshátið samtakanna verður að Hótel Sögu 1. marz. Nánar auglýst siðar. Stjórnin. Undarlegt AA M skrifar leiöara þann sem Þjóöviljinn birtir i dag en þaö er vissulega athyglisverö grein. M gerir kröfu til þess aö Stéttar- samband bænda fái sér annan formann, ef þaö vill ekki i einu og öllu fallast á skoöanir for- mannsins i sambandi viö efna- hagsmál. Þaö er fljótséö aö þetta eru vanhugsaður kröfur, fjarlægar hugsunarhætti félagshyggju og lýöræöis. Hvernig geta f jölmenn stéttarfélög valiö sér formann innan þess ramma, sem M. markar, ef hugsanafrelsi og skoöanafrelsi á aö rikja? Sam- kvæmt þessu geta ekki menn úr mismunandi stjórnmálaflokk- um veriö saman i stéttarsam- tökum, þar sem þeir þurfa allir aö játast undir pólitiskar skoöanir formannsins. Tilefniö sem M. hefur eru svör Gunnars Guöbjartssonar þegar Mbl. spuröi hann nýlega ásamt fleiri um hvaö gera ætti i efnahagsmálum. Gunnar sagöi þar, aö á sérstökum erfiðleika- timum væri rétt aö banna verk- föll ákveöinn tima — 1-2 ár, og láta alla hlita geröardómi, eins og bændur og opinberir starfs- menn geri. Svo skaut hann þvi inn i aö þá sem ekki vildu hlita gerðardómi mætti senda til Rússlands eöa Kina. M. hefur vitanlega ekki klmniskyn til aö sjá, aö hér eru nefnd lönd þar sem verkföll eru aldrei leyfö — ekki aöeins bönnuö 1-2 ár, þegar sérstak- lega stendur á. Hann áttar sig heldur ekki á þvi að auðvitaö veit Gunnar Guöbjartsson aö viö getum ekki sent fólk til ann- arra rikja þó við vildum, nema þau vilji taka viö þvi. Þó var annaö atriöi i svörum Gunnars, sem heföi átt aö hjálpa mönnum til skilnings, þó aö kimniskynið væri i slappara lagi. Hann sagöi aö senda skyldi talsmenn iönaðarins utan til aö gera stóra sölusamninga um is- lenzkar iönaöarvörur á þeim mikla markaði, sem þeir vissu svo mikið um, þegar viö geng- um i Efta. Hann tók þaö fram, aö þeir mættu ekki koma heim aftur fyrr en þeir hefðu selt. Hvernig stendur á þvi aö M. býsnast ekki yfir þeirri fólsku bænda aö formaður þeirra ætti aö dæma ýmsa mestu iðnrek- endur landsins i langvarandi út- legö — jafnvel ævilangar? Eöa er hann ef til vill aö geyma sér þaö efni i næsta leiöara? Þaö væri svo sem fyrirhyggja aö geyma sér skot i byssuna i næstu orustu. Sumir fara nú að veröa lang- eygir eftir nýjum skýrslum um aukinn útflutning okkar til Efta- landa — á 100 milljóna markaö- inn. Þvi var haldið fram á Alþingi, aö Gunnar heföi boðað kauplækkun. Þaö eru þó bein ósannindi. Þvert á móti talaöi hann um beina kauphækkun fyrir alla sem heföu minna en 60 þúsund króna rauntekjur á mánuði. Hins vegar talaöi hann um aö hætta aö greiða hærra kaup fyrir svokallaöa yfirvinnu. Hlutfa 11 launagreiðslu fyrir vinnu á ýmsum timum sólar- hringsins er sérstakt mál og i sjálfu sér hvorki kauphækkun né kauplækkun. En menn eru auövitað ekki viðtalshæfir, um þaö, fyrr en þeir skilja um hvað er að ræða. Enn nefnir M. þaö sem óhæfu, aö Gunnar vilji hafa vinnu- vikuna 50 klst. Flestir munu vilja vinna 50 st. á viku enda var stytting vinnuvikunnar fremur hugsuö sem kauphækkun en minnkun vinnu. M. ræöir ekki hugmyndir Gunnars eins og þær liggja fyrir, heldur gerirhróp aö þeim, hártogar og rangfærir. Þaö kann aö duga til að æsa ein- hverja upp en slikt eru ekki uppbyggilegar umræður. Vel mætti þó ræöa hvern lið þeirra út af fyrir sig og alla saman. Er verra aö hlita gerðardómi um launakjör eitt ár en lama alla framleiöslu meö langvinn- um verkföllum? Er fráleitt aö reikna meö 50 stunda vinnuviku fyrir fullhraust fólk? Er fráleitt aö timakaup sé alltaf á hóflegum vinnutima jafnt, og menn ráði þvi sjálfir hvaða yfirvinnu þeir leggja á sigumfram tilskilda vinnuviku? M-iö þarf ekki aö hugsa sig um. Þaö svarar þessu öllu ját- andi — umhugsunarlaust. Auk þess hneykslast það á þvi að refsa mönnum, sem ekki mæti til vinnu. Þjóöviljinn vill nefni- lega verölaunamenn fyrir aö svikjast um og borga þeim jafnt þó aö þeir mæti illa? Eða hvað? Er þaö ekki réttlætið, sem M. boöar? 18. febrúar 1975 Halldór Kristjánsson. „Listin að lifa þjóðanna" í samfélagi Afmælishljómleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar: SINFÓNIUHLJÓMSVEIT Is- lands efndi til tuttugu og fimm ára afmælistónleika á fimmtu- dagskvöldið, og var hljómsveit, hljómsveitarstjóra og einleikara ákaflega vel fagnaö. A eftir var kaffiboöá Kjarvalsstööum á veg- um borgarstjóra, menntamála- ráöuneytis og Rikisútvarps. Þar fluttu þeir Gunnar Vagns- son og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráöherra ávörp. Mæltist menntamálaráöherra á þessa leiö: „Sinfóniuhljómsveit íslands hefur á ótviræðan hátt haslaö sér völl i menningarlifi þjóðarinnar. Hljómsveitin var formlega stofn- uö 1950, en grunnur aö starfi hennar var þá löngu lagöur. A siöustu hundraö árum hafa tslendingar endurheimt frelsi sitt i áföngum og stofnaö lýöveldi á ný. Jafnskjótt hefur þjóöir eflt atvinnuvegi sina, sem hafa fært henni björg, beizlaö orkulindir, reist bústaöi og þróaö marghátt- aöa menningu. tslendingar endurheimtu ekki sjálfstæði sitt meö vopnavaldi né heldur keyptu þaö viö fé. Vopn höföu þeir engin borið um aldir og landiö var snautt af veraldarauöi utan þeim, sem fólgin er i kjark- miklum kynstofni. Þetta fátæka fólk og fágæt menning þess var það bjarg, sem byggt var á. „Margs þarf búiö viö” — og þá ekki siöur litið samfélag, sem timanna rás setur á bekk hjá milljónaþjóöum. E.t.v. kemur þeim i stanz, sem þessar linur lesa, þegar ég nefni i sömu andrá fagrar listir og feita sauöi, tog- veiðar og tónmennt. En lifið er dularfullt og samslungiö ólikum strengjum. Listin aö lifa i samfé- lagi þjóöanna er að okkar hálfu i þvi fólgin að samstilla þá strengi og knýja þannig aö enginn hljómi falskt I voldugustu hljómkviðu ís- lands, i sjálfu mannlifi fámennr- ar en stórhuga þjóöar. Sinfóniuhljómsveitin hefur vaxiö úr grasi fyrir tilstuölan framvaröa i tónlistarmálum Is- lendinga og með nokkrum stuðn- ingi stjórnvalda. A tiu ára afmæl- inu 1960 sagði þáverandi mennta- málaráöherra, Gylfi Þ. Gislason, aö hljómsveitin væri „islenzkur lykill aö alþjóðlegri list”, og „boöberi islenzkrar tónmenntar gagnvart umheiminum”. — Það eru liöin 15 ár siöan og þessi um- sögn er enn i fullu gildi. Hljóm- sveitin er nú fastari i sessi en nokkru sinni fyrr. Þó mun enn mega styrkja stöðu hennar meö skynsamlegri lagasetningu. Þaö er a.m.k. ihugunarefni. A 25 ára afmæli Sinfóniuhljóm- sveitar Islands þakka ég lista- fólkinu þjóönýt störf, ber fram heillaóskir og lýsi einlægri von um velgengni afmælisbarninu til handa”. Söluskattur Viöurlög falla á söluskatt fyrir janúar- mánuð 1975, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga unz þau eru orðin 10% en siðan eru viðurlögin 11/2% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Aðalfundur Ferðafélags íslands verður haldinn mánudaginn 24. febrúar, kl. 20.30 i Tjarnarbúð. Venjuleg aðalfundarstörf. Lagábreyting- ar. Reikningarnir og tillögur um stjórn og lagabreytingar liggja frammi á skrifstof- unni. Félagsskirteini 1974 þarf að sýna við innganginn. Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.