Tíminn - 23.02.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 23. febrúar 1975
Sunnudagur 23. febrúar1975
íh
Vatnsberinn (20.
-18. febr.)
,ian.-
Þaö litur út fyrir, að loksins sé komiö aö þessu
mikla. Þú færö stoð og stuöning annarra og
viöurkenningu fyrir störf þin. Aö visu skyggir
þaö á gleöi þina, aö þetta vekur öfund ákveöinna
aöila, en viö þvi er ekkert aö gera.
Fiskarnir (19. febr.—20. mar .
Það er nú einu sinni svo, aö dagarnir geta verið
hver öörum llkir, og þú hefur veriö i
ládeyöu-timabili, sem enn er ekki á enda. Meöan
svo er, skaltu ekki slita þér út á þvi aö brambolta
eitthvaö, sem kemur ekki að neinu gagni.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Ef þaö er eitthvaö sérstakt, sem þú vilt endilega
koma fram, þá skaltu fara aö öllu meö gát og
ekki vera alltof hreinskilinn og opinskár um þaö,
sem þú ert aö gera, eöa hvaö þér finnst? Þaö
kemur þér bara i koll siöar.
Nautið (20. april—20. mai)
Þessi dagur er heppilegur til ritstarfa, og þá sér-
staklega til þess aösvara bréfum, og litur út fyr-
ir, aö sum þeirra séu jafnvel farin aö þrengja
svo aö þér, aö ekki veröi lengur undan komizt.
Hertu upp hugann.
Tviburarnir (21. mai—20. júni)
Þaö er eins og þetta veröi skemmtilegur dagur
fyrir þig. Aö visu verður talsvert um aö vera, en
það er óvist, aö þaö snerti þig nokkuö, að
minnsta kosti ef þú reynir aö láta þaö fara
framhjá þér. Astamálin eru hagstæö.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Það litur út fyrir, að það sé ekkert auövelt aö ná
sambandi viö þig þessa dagana, og jafnvel engu
likara en þú lokir þig inni i skel. Þetta skaltu
foröast, hrista af þér sleniö og lita bjartari aug-
um á umhverfiö og tilveruna.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Þú gerir skynsamlegast i þvi aö einbeita þér aö
skylduverkunum, þvi aö verkefnin sópast aö
þér, og þaö er um aö gera fyrir þig aö sýna nú,
hver dugur er I þér. Þaö verður vænlegast til
árangurs upp á framtiöina.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Það litur út fyrii; að einhverjum finnist þú.vera
anzi einráður og sjálfumglaður þessa dagana, en
það er ekki vist, aö þaö sé þaö allra versta I fari
manns, a.m.k. ekki i dag. Maöur þarf ekki alltaf
aö vera allra.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Þaö litur út fyrir, aö þetta veröi mikill annadag-
ur hjá þér, og þaö veröur svo mikiö aö gera hjá
þér, að i öllum önnunum hættir þér til aö gleyma
þinum nánustu, en viö þvi er sérstök ástæöa til
þess að vara þig i dag.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Þaö litur út fyrir, aö I dag gefist þér tækifæri til
þess aö hafa samband við fólk, sem hefur eitt-
hvaö aö segja og getur oröiö þér aö liöi viö aö
koma áformum þinum á framfæri. En til þess
þarftu aö láta á þér bera.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þú kemur málum þinum og fyrirætlunum langt i
dag, ef þú lætur orö og skoöanir annarra eins og
vind um eyrun þjóta og framkvæmir aöeins eft-
ir sannfæringu þinni og trú á þaö, sem þú ert aö
gera. Þá kemstu lika iangt.
Steingeitin (22. des.-19. jan)
I dag skaltu búast viö þvi, aö þú veröir fyrir
sterkum áhrifum af samtölum eða bréfum, og er
þó ekki þar meö sagt, aö þau kómi endilega i
dag, þau gætu veriö eldri. Lofaðu engu, sem þú
getur ekki staöiö viö.
Svarfdælingar —
fjær og nær
Árshátið samtakanna verður að Hótel
Sögu 1. marz. Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
Undarlegt AA
M skrifar leiöara þann sem
Þjóöviljinn birtir i dag en þaö er
vissulega athyglisverö grein. M
gerir kröfu til þess aö Stéttar-
samband bænda fái sér annan
formann, ef þaö vill ekki i einu
og öllu fallast á skoöanir for-
mannsins i sambandi viö efna-
hagsmál.
Þaö er fljótséö aö þetta eru
vanhugsaður kröfur, fjarlægar
hugsunarhætti félagshyggju og
lýöræöis. Hvernig geta f jölmenn
stéttarfélög valiö sér formann
innan þess ramma, sem M.
markar, ef hugsanafrelsi og
skoöanafrelsi á aö rikja? Sam-
kvæmt þessu geta ekki menn úr
mismunandi stjórnmálaflokk-
um veriö saman i stéttarsam-
tökum, þar sem þeir þurfa allir
aö játast undir pólitiskar
skoöanir formannsins.
Tilefniö sem M. hefur eru
svör Gunnars Guöbjartssonar
þegar Mbl. spuröi hann nýlega
ásamt fleiri um hvaö gera ætti i
efnahagsmálum. Gunnar sagöi
þar, aö á sérstökum erfiðleika-
timum væri rétt aö banna verk-
föll ákveöinn tima — 1-2 ár, og
láta alla hlita geröardómi, eins
og bændur og opinberir starfs-
menn geri. Svo skaut hann þvi
inn i aö þá sem ekki vildu hlita
gerðardómi mætti senda til
Rússlands eöa Kina.
M. hefur vitanlega ekki
klmniskyn til aö sjá, aö hér
eru nefnd lönd þar sem verkföll
eru aldrei leyfö — ekki aöeins
bönnuö 1-2 ár, þegar sérstak-
lega stendur á. Hann áttar sig
heldur ekki á þvi að auðvitaö
veit Gunnar Guöbjartsson aö
viö getum ekki sent fólk til ann-
arra rikja þó við vildum, nema
þau vilji taka viö þvi.
Þó var annaö atriöi i svörum
Gunnars, sem heföi átt aö
hjálpa mönnum til skilnings, þó
aö kimniskynið væri i slappara
lagi. Hann sagöi aö senda skyldi
talsmenn iönaðarins utan til aö
gera stóra sölusamninga um is-
lenzkar iönaöarvörur á þeim
mikla markaði, sem þeir vissu
svo mikið um, þegar viö geng-
um i Efta. Hann tók þaö fram,
aö þeir mættu ekki koma heim
aftur fyrr en þeir hefðu selt.
Hvernig stendur á þvi aö M.
býsnast ekki yfir þeirri fólsku
bænda aö formaður þeirra ætti
aö dæma ýmsa mestu iðnrek-
endur landsins i langvarandi út-
legö — jafnvel ævilangar? Eöa
er hann ef til vill aö geyma sér
þaö efni i næsta leiöara? Þaö
væri svo sem fyrirhyggja aö
geyma sér skot i byssuna i
næstu orustu.
Sumir fara nú að veröa lang-
eygir eftir nýjum skýrslum um
aukinn útflutning okkar til Efta-
landa — á 100 milljóna markaö-
inn.
Þvi var haldið fram á
Alþingi, aö Gunnar heföi boðað
kauplækkun. Þaö eru þó bein
ósannindi. Þvert á móti talaöi
hann um beina kauphækkun
fyrir alla sem heföu minna en 60
þúsund króna rauntekjur á
mánuði. Hins vegar talaöi hann
um aö hætta aö greiða hærra
kaup fyrir svokallaöa yfirvinnu.
Hlutfa 11 launagreiðslu fyrir
vinnu á ýmsum timum sólar-
hringsins er sérstakt mál og i
sjálfu sér hvorki kauphækkun
né kauplækkun. En menn eru
auövitað ekki viðtalshæfir, um
þaö, fyrr en þeir skilja um hvað
er að ræða.
Enn nefnir M. þaö sem óhæfu,
aö Gunnar vilji hafa vinnu-
vikuna 50 klst. Flestir munu
vilja vinna 50 st. á viku enda
var stytting vinnuvikunnar
fremur hugsuö sem
kauphækkun en minnkun vinnu.
M. ræöir ekki hugmyndir
Gunnars eins og þær liggja
fyrir, heldur gerirhróp aö þeim,
hártogar og rangfærir. Þaö
kann aö duga til að æsa ein-
hverja upp en slikt eru ekki
uppbyggilegar umræður. Vel
mætti þó ræöa hvern lið þeirra
út af fyrir sig og alla saman.
Er verra aö hlita gerðardómi
um launakjör eitt ár en lama
alla framleiöslu meö langvinn-
um verkföllum?
Er fráleitt aö reikna meö 50
stunda vinnuviku fyrir
fullhraust fólk?
Er fráleitt aö timakaup sé
alltaf á hóflegum vinnutima
jafnt, og menn ráði þvi sjálfir
hvaða yfirvinnu þeir leggja á
sigumfram tilskilda vinnuviku?
M-iö þarf ekki aö hugsa sig
um. Þaö svarar þessu öllu ját-
andi — umhugsunarlaust. Auk
þess hneykslast það á þvi að
refsa mönnum, sem ekki mæti
til vinnu. Þjóöviljinn vill nefni-
lega verölaunamenn fyrir aö
svikjast um og borga þeim jafnt
þó aö þeir mæti illa? Eða hvað?
Er þaö ekki réttlætið, sem M.
boöar?
18. febrúar 1975
Halldór Kristjánsson.
„Listin að lifa
þjóðanna"
í samfélagi
Afmælishljómleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar:
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT Is-
lands efndi til tuttugu og fimm
ára afmælistónleika á fimmtu-
dagskvöldið, og var hljómsveit,
hljómsveitarstjóra og einleikara
ákaflega vel fagnaö. A eftir var
kaffiboöá Kjarvalsstööum á veg-
um borgarstjóra, menntamála-
ráöuneytis og Rikisútvarps.
Þar fluttu þeir Gunnar Vagns-
son og Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráöherra ávörp.
Mæltist menntamálaráöherra á
þessa leiö:
„Sinfóniuhljómsveit íslands
hefur á ótviræðan hátt haslaö sér
völl i menningarlifi þjóðarinnar.
Hljómsveitin var formlega stofn-
uö 1950, en grunnur aö starfi
hennar var þá löngu lagöur.
A siöustu hundraö árum hafa
tslendingar endurheimt frelsi sitt
i áföngum og stofnaö lýöveldi á
ný. Jafnskjótt hefur þjóöir eflt
atvinnuvegi sina, sem hafa fært
henni björg, beizlaö orkulindir,
reist bústaöi og þróaö marghátt-
aöa menningu.
tslendingar endurheimtu ekki
sjálfstæði sitt meö vopnavaldi né
heldur keyptu þaö viö fé. Vopn
höföu þeir engin borið um aldir og
landiö var snautt af veraldarauöi
utan þeim, sem fólgin er i kjark-
miklum kynstofni. Þetta fátæka
fólk og fágæt menning þess var
það bjarg, sem byggt var á.
„Margs þarf búiö viö” — og þá
ekki siöur litið samfélag, sem
timanna rás setur á bekk hjá
milljónaþjóöum. E.t.v. kemur
þeim i stanz, sem þessar linur
lesa, þegar ég nefni i sömu andrá
fagrar listir og feita sauöi, tog-
veiðar og tónmennt. En lifið er
dularfullt og samslungiö ólikum
strengjum. Listin aö lifa i samfé-
lagi þjóöanna er að okkar hálfu i
þvi fólgin að samstilla þá strengi
og knýja þannig aö enginn hljómi
falskt I voldugustu hljómkviðu ís-
lands, i sjálfu mannlifi fámennr-
ar en stórhuga þjóöar.
Sinfóniuhljómsveitin hefur
vaxiö úr grasi fyrir tilstuölan
framvaröa i tónlistarmálum Is-
lendinga og með nokkrum stuðn-
ingi stjórnvalda. A tiu ára afmæl-
inu 1960 sagði þáverandi mennta-
málaráöherra, Gylfi Þ. Gislason,
aö hljómsveitin væri „islenzkur
lykill aö alþjóðlegri list”, og
„boöberi islenzkrar tónmenntar
gagnvart umheiminum”. — Það
eru liöin 15 ár siöan og þessi um-
sögn er enn i fullu gildi. Hljóm-
sveitin er nú fastari i sessi en
nokkru sinni fyrr. Þó mun enn
mega styrkja stöðu hennar meö
skynsamlegri lagasetningu. Þaö
er a.m.k. ihugunarefni.
A 25 ára afmæli Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands þakka ég lista-
fólkinu þjóönýt störf, ber fram
heillaóskir og lýsi einlægri von
um velgengni afmælisbarninu til
handa”.
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir janúar-
mánuð 1975, hafi hann ekki verið
greiddur i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga unz þau eru orðin 10% en
siðan eru viðurlögin 11/2% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá
og með 16. degi næsta mánaðar eftir
eindaga.
Aðalfundur
Ferðafélags íslands verður haldinn
mánudaginn 24. febrúar, kl. 20.30 i
Tjarnarbúð.
Venjuleg aðalfundarstörf. Lagábreyting-
ar.
Reikningarnir og tillögur um stjórn og
lagabreytingar liggja frammi á skrifstof-
unni.
Félagsskirteini 1974 þarf að sýna við
innganginn.
Stjórnin.