Tíminn - 23.02.1975, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 23. febrúar 1975
Manntafl i Laugardalnum á Þjóöhátíöinni 1974.
FRIÐRIK ÓLAFSSON Á
SKÁKMÓT í EISTLANDI
Friðrik Ólafsson, stór-
meistari er um þessar
mundir að leggja af stað
á skákmót, sem haldið
verður i borginni Tallinn
i Eistlandi. Þetta er ár-
legt skákmót og er talið
mjög sterkt, einkum
vegna þess að sovézkir
skákmenn keppa þar
gjarnan, og meðal
þeirra verða að þessu
sinni þeir Tal, Bronstein
og Spasski. Þarna verða
og eistneski skákmaður-
inn Nei, sem hér var i
fylgd Spasskis,
ennfremur Bilek, og
Hort, Timman, Keres og
Robert Byrne, svo fleiri
séu nefndir.
Við hittum Friðrik
Sendum gegn póstkröfii
hvert á land sem er.
OENDAN-
.. LEGIR
MOGULEIKAR
Þér finniö örugglega réttu
lausnina meö Hillu „Syst-
emi" frá Húsgagnaverzlun
Reykjavikur.
Skrifið eða hringið eftir
myndalista.
@
Húsgagiiaverslun
Reykjavíkur 0
BRAUTARHOLTI 2 SIMI 11940
Ólafsson að máli og báð-
um hann að segja ögn af
sinum högum og skák-
legum viðfangsefnum.
Rætt við
Friðrik Ólafsson
— Hefuröu teflt mikiö undan-
fariö?
— Nei, þaö getur varla talizt.
Að visu tók ég þátt i Reykjavikur-
meistaramótinu i skák, en i
sterku móti hef ég ekki verið sið-
an i júni i fyrra, enda átti ég við
lasleika að striða en er nú búinn
að ná mér að mestu. Þetta var
ólympiuskákmót og keppt var i
sveitum.
— Þú tekur þátt I Reykjavíkur-
skákmótinu. Var einhver sérstök
ástæöa til þess?
— Það stóð þannig á þvi að ég
átti að keppa á skákmóti á Spáni,
en það fórst fyrir og ég reyndi þá
að komast á mót, sem haldið var i
Hollandi, en það tókst ekki heldur
og þá ákvað ég að skella mér i
Reykjavikurmótið. Segja má að
rétt sé vegna skáklifsins hér, sem
maöur héfur skyldur við, að ég
keppti hér heima, en á hitt er að
lita, að þaö er ekki hagkvæmt
fyrir sterka skákmenn að taka
þátt i slikum mótum.
Skákmenn eru reiknaðir I stig-
um og svo getur auðveldlega far-
ið, að þeir missti stig við sllk mót.
Það þarf ekki annaö en að gera
jafntefli á sliku móti til þess að
missa alþjóðleg stig.
Alþjóðleg stigagjöf
hindrar sterka skák-
menn i þvi að taka þátt i
almennri skákkeppni
— Þetta kemur sér frekar illa
fyrir þá, sem halda uppi skáklifi
hér á landi, sem annars staðar,
þvi að það er nauðsynlegt fyrir
alla skákmenn að komast i tæri
við sterka menn i stað þess að
Frá Kandidatamóti, Gligoric og Friörik Ólafsson.