Tíminn - 23.02.1975, Page 15
Sunnudagur 23. febrúar 1975
TÍMINN
15
BANKASTRÆTI 9 — SÍMI 1-18-11
HERRAR
Finnsk föt
Finnskir blazerar
Wallys flauels- og
terylene buxur
Leðurjakkar, stuttir
og síðir
DÖMUR
Ný sending
Slétt flauels buxur,
grdar, brúnar, svartar,
vínrauðar
Terylene buxur
Blússur, bolir
Síð riffluð flauelspils
Leðurjakkar
Rætt við Friðrik Ólafsson
um þdtttöku hans
í skdkmótum og
„skdkvertíðina"
sem er framundan
berjast alltaf við þá sömu, þvi að
það heldur þeim kannski niðri i
vissum hring, sem þeir brjótast
ekki út úr svo glatt án þess að fá
sterka menn til keppni.
— Þú segir að allir skákmenn
séu reiknaðir út í stigum, tvisvar
á ári, er þá á að sýna styrkleika
þeirra. Hvað ert þú með mörg slfk
stig?
— Ég er með 2535, og hefi lækk-
að svolitið að undanförnu.
— Hvað eru menn eins og
Bobby Fischer, Larsen og Guð-
mundur Sigurjónsson með mörg
slik stig.
— Bobby Fischer er með 2700
stig, Larsen með um 2600 stig og
Guðmundur Sigurjónsson er með
um 2480 stig.
— Hvaða ávinningur er að sllku
stigakerfi?
' — Þetta er kerfi sem notað er til
að ákveða styrkleika skákmanna,
en það er of flókið til þess að fjalla
um það hér. Stigakerfið kemur aö
haldi þegar mönnum er raðað i
mót, og toppmenn þurfa ekki að
taka þátt i vissum keppnum, t.d.
fyrir heimsmeistarakeppni. Það
er þá byrjað á undanrásum, svo
koma millirásir, og það tekur
þrjú ár unz nýr áskorandi hefur
veriðfundinn. Þeir, sem eru mjög
háir i stigum, þurfa ekki að taka
þátt i undanrásum, svo eitthvað
sé nefnt. Þeir komast á stigunum
inn i siðari riðla slikrar keppni.
Friðrik i 15.-30. sæti á al-
þjóðamælikvarða
— Ef maður tekur þig sjálfan og
þessa röð. Hvar ertu staddur f
röðinni núna og hvar hefurðu
staðið, þegar bezt lætur?
— Það er nokkuð á reiki. Ætli ég
sé ekki í 30. sæti núna yfir heim-
inn, en hefi verið svona frá 15.-20.
þegar bezt lætur. Ég tapaði ein-
um 15 stigum á ólympiuskákmót-
inu. Þar var mikið af skákmönn-
um með mjög fá stig, eða engin,
og ef manni verður eitthvað á við
þær aðstæður þá hrapar maður
niður.
Þetta er einmitt eitt af þvi
slæma við stigakerfið að það
veröur til þess að sterkir skák-
menn forðast hreinlega „lélegri”
mót. Kerfið verður með öðrum
orðum til þess að staðfesta óeðli-
legt djúp milli sterkra skák-
manna og annarra sem fást við
skák. Menn telja sig hafa skyldur
við almennt skáklif i heimalandi
sinu a.m.k., en verða að halda að
sér höndum vegna stiga-
reikningsins.
Sterkt mót i Eistlandi
— Nú ertu að fara á skákmót I
Eistlandi. Hvers konar mót er
það?
Það er mjög sterkt mót og
þangað koma sterkir skákmenn
hvaðanæva að úr heiminum. Mest
munar þó um Rússana, sem
senda hóp stórmeistara og frægra
skákmanna. Mót þetta er haldið
árlega.
— Hvernig heldurðu að árang-
urinn verði?
— Það er of snemmt að spá um
það. Þetta er mjög sterkt
skákmót og ég vildi heldur tefla
þar en i einhverju öðru ekki eins
sterku, þótt vitaskuld hefðu þá
orðið meiri likur en þarna eru til
þess að verða ofarlega. Þetta er
nauðsynlegt vegna þeirrar miklu
æfingar er þarna fæst. Ég stefni
að þvi að taka þátt i svonefndum
„svæðamótum” i sumar, en þau
eru fyrsti liðurinn i næstu heims-
meistarakeppni ( eða þarnæstu)
en þau mót hef jast um likt leyti og
heimsmeistaraeinvigið milli
þeirra Fischers og Karpovs. Ég
stefni að þvi að verða I sem beztri
æfingu þegar þessi mót hefjast.
Skákmenn verða að
fylgjast með nýjungum
— Hvernig notar þú timann
milli keppna?
— Hann er notaður til ran
Fjölteflismynd frá Akureyri, mjög gömul.
Friðrik Ólafsson teflir við Hort árið 1969.
Bent Larsen — þeir Friðrik og
Beni hafa oft teflt saman.
Larsen að dala?
Það hefur
einhvernveginn
dregið af
honum...
Fermingardrengir
Vinsælu grófriffluðu jakkarnir komnir aftur
Vk
.......*.....
Sendum gegn póstkröfu hvert sem er
:::::::