Tíminn - 23.02.1975, Síða 19
Sunnudagur 23. febrúar 1975
TÍMINN
19
r
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I
Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif-
stofur f Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiösiusimi 12323 —
auglýsingasimi 19523.
Verö i lausasölu kr. 35.00.
Askriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f.
Furðulegar tölur
Þriðjudaginn i siðustu viku seldi'st áfengi i
þremur búðum i Reykjavik fyrir 6.223.790 krónur.
Samsvarandi þriðjudag i fyrra nam áfengissalan i
þessum sömu búðum 2.854.310 krónum. Viðskipta-
menn þessara þriggja búða hafa með öðrum
orðum ekki látið sig muna um að leggja á borðið
meira en tvöfalda þá fjárhæð, er þeir skiluðu á
sama stað i fyrra.
Þessar tölur hljóta að vekja talsverða athygli.
Þetta gerist samtimis og allir segjast vera að tapa
og allir telja sig hafa of litið fyrir sig að leggja.
Hvernig verður þvi komið heim og saman?
Þetta segir þó ekki alla söguna um það, hversu
miklum fjármunum er varið til drykkjuskapar.
Sumt af þessu áfengi hafa veitingahús trúlega
keypt, og þar kaupir fólk það aftur miklu hærra
verði en i búðunum. Flest kvöld eru langar
biðraðir við dyr slikra húsa, og ekki er að sjá, að
þær styttist neitt, þrátt fyrir efnahagsástandið i
landinu.
Af þessu verður aðeins ein ályktun dregin: Að
iskyggilega mikill hluti þjóðarinnar sé andvara-
litið fólk, sem lætur sig einu gilda, hvað snýr upp
og hvað niður i fjármálum. Kveinandi yfir dýrtið,
þröngum f járhag og kröppum kjörum skilar þetta
fólk meira en sex milljónum króna i þrjár áfengis-
búðir á einum degi i fyrri hluta viku i miðjum
mánuði, þegar nýbúið er að hækka áfengisverð til
muna.
í kjölfarið koma svo bakreikningarnir, sem
læknarnir og löggæzlumennirnir þekkja, vinnu-
tapið i verkstöðvum og skólum og margvisleg önn-
ur eftirköst.
Vatnsvæðing
Þótt viða spretti upp tærar lindir og lækir falli
um hliðar og dali, hafa margir orðið að búa við lé-
leg vatnsból. >, Kaupstaðir og þorp hafa ráðið
fram úr þessum málum fyrir löngu, þótt enn sé
vatnsgæðum sums staðar áfátt. 1 sveitum hefur
mönnum viða verið örðugra um vik, einkum þar
sem láglent er og flatlent. Þar hafa vatnsból meira
að segja stórversnað sums staðar á seinni árum
vegna aukinnar framræslu og lækkaðrar stöðu
grunnvatns af þeim sökum.
En nú er farið að bregðast við slikum
vandkvæðum á nýjan hátt. Þar kemur ekki aðeins
til, að bora má eftir vatni, þar sem áður náðist
ekki til þess, heldur einnig hitt, að heilar sveitir
eru nú teknar að sækja vatn á fjarlæga staði til
sameiginlegrar vatnsvæðingar.
Þannig efndu Landeyingar til vatnsvæðingar hjá
sér i samvinnu við Vestmannaeyinga, og Skeiða-
menn siðar. Og nú er að hefjast allsherjar vatns-
væðing allra lágsveita Árnessýslu.
Þessar framkvæmdir allar eru i senn menning-
armál og heilbrigðismál, auk þeirra þæginda, sem
vatnsvæðingunni fylgir. Þetta er framtak, sem
vert er að halda á loft. Og hér þarf stórhug til, þvi
að sjálfsögðu er vatnsveitukerfi, sem nær til allra
bæja i heilum sveitum, harla dýrt. Og enn eitt, sem
ekki sizt er vert að gefa gaum: Hér birtist
samhugur og samheldni, sem mikils er um vert.
Auðvelt væri að gera svo viðtæka framkvæmd að
deilumáli og þrætuepli, ef samstarf væri ekki sett
ofar skæklatogi og reipdrætti. Það ber því ótvirætt
vitni um mikinn félagsþroska, að vatnsvæðingu
heilla sveita er hrundið i framkvæmd án sviptinga
og sundurþykkju. Og það er einmitt þannig, sem
stórvirki eru unnin: Með samstöðu og
sameiginlegu átaki þeirra, sem saman búa og
saman eiga að starfa.— JH
ERLENT YFIRLIT
Thatcher dregur úr
ferðinni til hægri
Skuggaráðuneyti hennar líkar frekar vel
SIGUR Margaret Thatchers i
formannskjörinu hjá brezka
Ihaldsflokknum hefur nokkuö
almennt veriö túlkaður sem
hægri sveifla, þvi að hún hefur
veriö talin standa frekar til
hægri i flokknum, og naut
stuönings hægri manna viö
formannskjörið, þótt hún væri
ekki frambjóðandi þeirra.
Annars er ákaflega erfitt að
tala um hægri eöa vinstri i
brezka Ihaldsflokknum, eöa
t.d. aö telja Thatcher meira til
hægri en Heath. Einn blaða-
maður gerði sér það t.d. til
gamans og fróöleiks aö rifja
upp ræöurnar, sem Heath hélt
fyrir þingkosningarnar 1970 og
eftir aö hann tók viö stjórnar-
forustunni að þeim loknum.
Heath beitti þá nákvæmlega
sömu vigoröunum og That-
cher viö formannskjöriö nú.
Takmark okkar, sagöi Heath
þá, er algerlega frjálst þjóöfé-
lag, laust viö opinber afskipti,
þar sem hver og einn verður
aö standa á eigin fótum. Þann-
ig byggjum viö nýtt öflugt
þjóðfélag laust viö sósialisma.
Viö stöndum á timamótum.
Hér er aö hefjast nýr timi
frjálsræðis og ábyrgðar, sem
mun setja nýtt svipmót á þjóð-
ina, og breyting, sem fylgir
honum, mun ná inn i hvern af-
kima Stóra-Bretlands.
Þannig talaöi Heath, þegar
hann varö forsætisráöherra
Bretlands sumariö 1970. 1
þessum anda reyndi hann aö
stjórna tvö fyrstu árin. M.a.
lagði hann til atlögu viö verka-
lýöshreyfinguna og setti nýja
vinnulöggjöf i andstööu viö
hana. Þessi stefna aflaði
stjórn hans svo mikilla óvin-
sælda og gaf Frjálslynda
flokknum svo mikinn byr i
seglin, að hann reyndi aö
sveigja örlitiö i aöra átt. En
gamla stefnan kom aftur til
sögunnar, þegar hann lenti i
deilu viö kolanámumennina.
Heath reyndist þá svo þver og
óklókur foringi, aö hann rétti
Verkamannaflokknum raun-
verulega kosningasigurinn á
silfurbakka, en Verkamanna-
flokkurinn var svo klofinn og
sundurþykkur á þessum tima,
aö fariö var aö tala um, aö
hann yröi i stjórnarandstöðu
til aldamóta. Eftir þennan ó-
sigur íhaldsflokksins var ljóst,
aö hann myndi losa sig viö
Heath viö fyrsta tækifæri,
þrátt fyrir það, þótt hann ætti
ekkert álitlegt foringjaefni.
MARGARET Thatcher notaði
1 sambandi við formannskjör-
iönákvæmlega sömu vigoröin
og Heath 1970. Þeir, sem
mundu eftir ræöum Heath frá
þeim tima, voru lika i gamni
farnir að kalla hana Mrs.
Heath. En þótt Thatcher þætti
koma vel fyrir og halda vel á
máli sinu, voru það ekki þessi
vigorð, sem tryggöu henni sig-
urinn. Hún sigraði eingöngu
vegna þess, að flokkurinn vildi
losna viö Heath sem foringja
af persónulegum ástæöum.
Sigur flokksins var talinn von-
laus undir forustu hans.
Strax eftir formannskjörið
var Thatcher vöruð viö þvi aö
draga ekki fána hægri stefnu
aö hún. Alveg sérstaklega var
hún vöruö við þvi að gera
helzta leiötoga hægri stefn-
unnar Keith Joseph, að fjár-
málaráöherra i skuggaráðu-
neytinu. Hún var jafnframt
hvött til þess að mynda ráðu-
neyti sitt á sem breiðustum
grundvelli.
Eftir þessum leiöbeiningum
hefur hún bersýnilega fariö,
þótt ef til vill megi segja, að
Þessi mynd var tekin af Margaret Thatcher fyrir tveimur árum,
en þá sat hún enn i stjórn Heath's og fór vel á meö þeim.
Margir iita nú á þessa mynd sem fyrirboöa.
skuggaráöuneyti hennar beri
aö vissu leyti meiri hægri svip
en skuggaráöuneyti Heaths,
hefur hún bersýnilega dregiö
eins mikið úr feröinni til hægri
og henni var unnt eftir aö vera
komin til valda meö stuöningi
hægri manna.
Ráðuneyti Thatchers er
þannig skipaö, aö hún ætlar
bersýnilega tveimur mönnum
aö ganga næst sér aö völdum,
þeim William Whitelaw, sem
var aðalkeppinautur hennar
viö siöari umferö formanns-
kjörsins, og Keith Joseph.
Whitelaw veröur varaformaö-
ur og næstur henni aö völdum,
en Joseph mun fjalla sérstak-
lega um stefnumótun og rann-
sóknir i þvi sambandi. Næst
þeim Whitelaw og Joseph
kemur svo Reginald Maud-
ling, sem verður utanrikisráö-
herra skuggaráöuneytisins.
Hann keppti á sinum tima viö
Heath um formannsstööuna
og margir telja nú, aö flokkn-
um myndi hafa farnazt betur
undir forustu hans. Maudling
sagöi af sér sem innanrikis-
ráöherra 1972 vegna þess, að
hann var riöinn viö fyrirtæki
fjárbrallsmanns, sem varð
gjaldþrota, en engar sakir
hafa þó sannazt á Maudling og
almennt viröist álitiö, að
Maudling hafi hér þurft aö
greiöa smávægilega yfirsjón
of dýru veröi. Margt bendir til,
aö þaö sé sterkur leikur hjá
Thatcher aö tefla nú Maudling
fram og hann þykir ólikt álit-
legra utanrikisráöherraefni
en Rippon, sem gegndi þvi
starfi i skuggaráðuneyti
Heaths, en hann neitaði aö
taka sæti i r áðuneyti That-
chers, en Rippon er þó til
hægri i flokknum. Maudling
hefur hins vegar veriö talinn i
frjálslyndari armi flokksins.
Sæti fjármálaráðherra i
ráðuneyti Thatchers skipar
Geoffrey Howe, sem var einn
af keppinautum hennar viö
formannskjöriö. Hann er tal-
inn ihaldssamur i fjármálum,
en frjálslyndur i félags-
málum, og hefur þvi veriö tal-
inn til frjálslyndari arms
flokksins. Annar keppinautur
Thatchers viö formannskjör-
iö, James Prior, er atvinnu-
málaráöherra, en þvi starfi
fylgir m.a. aö stuöla aö nægri
atvinnu. Ian Gilmour, sem var
einn af stuöningsmönnum
Heaths, er innanrikisráð-
herra. Hann hefur veriö talinn
i frjálslyndari armi flokksins.
Varnarmdlaráðherra er
George Younger, sem hefur
þótt liklegur til mikils frama.
Irlandsmálaráðherra er Airey
Neave, en hann skipulagði
kosningabaráttuna fyrir That-
cher i sambandi viö for-
mannskjöriö. Heath hafnaöi
aö taka sæti i skuggaráöu-
neytinu.
Þaö viröist ljóst af þvi, sem
hér er rakið, að Thatcher
hefur leitazt viö að mynda
ráðuneyti sitt á sem breiðust-
um grundvelli og foröazt aö
hafa á þvi neinn sérstakan
hægri svip. Þaö hefur gilt um
marga formenn brezka
lhaldsflokksins, aö þeir hafa
byrjaö alllangt til hægri, en
færzt i hina áttina. Astæöan er
sú, aö Bretland býr viö
tveggja flokka kerfiö, og þvi
eru það oftast óháöu kjósend-
urnir, sem hvorki skipa sér
langt til hægri eða vinstri, sem
ráöa úrslitum. Skipan skugga-
ráöuneytis Margaret That-
chers gæti bent til þess, aö hún
hafi gert sér þetta ljóst, hvaö
sem öllum stefnuyfirlýsingum
liður.
Þ.Þ.