Tíminn - 23.02.1975, Qupperneq 19

Tíminn - 23.02.1975, Qupperneq 19
Sunnudagur 23. febrúar 1975 TÍMINN 19 r Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif- stofur f Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiösiusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö i lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Furðulegar tölur Þriðjudaginn i siðustu viku seldi'st áfengi i þremur búðum i Reykjavik fyrir 6.223.790 krónur. Samsvarandi þriðjudag i fyrra nam áfengissalan i þessum sömu búðum 2.854.310 krónum. Viðskipta- menn þessara þriggja búða hafa með öðrum orðum ekki látið sig muna um að leggja á borðið meira en tvöfalda þá fjárhæð, er þeir skiluðu á sama stað i fyrra. Þessar tölur hljóta að vekja talsverða athygli. Þetta gerist samtimis og allir segjast vera að tapa og allir telja sig hafa of litið fyrir sig að leggja. Hvernig verður þvi komið heim og saman? Þetta segir þó ekki alla söguna um það, hversu miklum fjármunum er varið til drykkjuskapar. Sumt af þessu áfengi hafa veitingahús trúlega keypt, og þar kaupir fólk það aftur miklu hærra verði en i búðunum. Flest kvöld eru langar biðraðir við dyr slikra húsa, og ekki er að sjá, að þær styttist neitt, þrátt fyrir efnahagsástandið i landinu. Af þessu verður aðeins ein ályktun dregin: Að iskyggilega mikill hluti þjóðarinnar sé andvara- litið fólk, sem lætur sig einu gilda, hvað snýr upp og hvað niður i fjármálum. Kveinandi yfir dýrtið, þröngum f járhag og kröppum kjörum skilar þetta fólk meira en sex milljónum króna i þrjár áfengis- búðir á einum degi i fyrri hluta viku i miðjum mánuði, þegar nýbúið er að hækka áfengisverð til muna. í kjölfarið koma svo bakreikningarnir, sem læknarnir og löggæzlumennirnir þekkja, vinnu- tapið i verkstöðvum og skólum og margvisleg önn- ur eftirköst. Vatnsvæðing Þótt viða spretti upp tærar lindir og lækir falli um hliðar og dali, hafa margir orðið að búa við lé- leg vatnsból. >, Kaupstaðir og þorp hafa ráðið fram úr þessum málum fyrir löngu, þótt enn sé vatnsgæðum sums staðar áfátt. 1 sveitum hefur mönnum viða verið örðugra um vik, einkum þar sem láglent er og flatlent. Þar hafa vatnsból meira að segja stórversnað sums staðar á seinni árum vegna aukinnar framræslu og lækkaðrar stöðu grunnvatns af þeim sökum. En nú er farið að bregðast við slikum vandkvæðum á nýjan hátt. Þar kemur ekki aðeins til, að bora má eftir vatni, þar sem áður náðist ekki til þess, heldur einnig hitt, að heilar sveitir eru nú teknar að sækja vatn á fjarlæga staði til sameiginlegrar vatnsvæðingar. Þannig efndu Landeyingar til vatnsvæðingar hjá sér i samvinnu við Vestmannaeyinga, og Skeiða- menn siðar. Og nú er að hefjast allsherjar vatns- væðing allra lágsveita Árnessýslu. Þessar framkvæmdir allar eru i senn menning- armál og heilbrigðismál, auk þeirra þæginda, sem vatnsvæðingunni fylgir. Þetta er framtak, sem vert er að halda á loft. Og hér þarf stórhug til, þvi að sjálfsögðu er vatnsveitukerfi, sem nær til allra bæja i heilum sveitum, harla dýrt. Og enn eitt, sem ekki sizt er vert að gefa gaum: Hér birtist samhugur og samheldni, sem mikils er um vert. Auðvelt væri að gera svo viðtæka framkvæmd að deilumáli og þrætuepli, ef samstarf væri ekki sett ofar skæklatogi og reipdrætti. Það ber því ótvirætt vitni um mikinn félagsþroska, að vatnsvæðingu heilla sveita er hrundið i framkvæmd án sviptinga og sundurþykkju. Og það er einmitt þannig, sem stórvirki eru unnin: Með samstöðu og sameiginlegu átaki þeirra, sem saman búa og saman eiga að starfa.— JH ERLENT YFIRLIT Thatcher dregur úr ferðinni til hægri Skuggaráðuneyti hennar líkar frekar vel SIGUR Margaret Thatchers i formannskjörinu hjá brezka Ihaldsflokknum hefur nokkuö almennt veriö túlkaður sem hægri sveifla, þvi að hún hefur veriö talin standa frekar til hægri i flokknum, og naut stuönings hægri manna viö formannskjörið, þótt hún væri ekki frambjóðandi þeirra. Annars er ákaflega erfitt að tala um hægri eöa vinstri i brezka Ihaldsflokknum, eöa t.d. aö telja Thatcher meira til hægri en Heath. Einn blaða- maður gerði sér það t.d. til gamans og fróöleiks aö rifja upp ræöurnar, sem Heath hélt fyrir þingkosningarnar 1970 og eftir aö hann tók viö stjórnar- forustunni að þeim loknum. Heath beitti þá nákvæmlega sömu vigoröunum og That- cher viö formannskjöriö nú. Takmark okkar, sagöi Heath þá, er algerlega frjálst þjóöfé- lag, laust viö opinber afskipti, þar sem hver og einn verður aö standa á eigin fótum. Þann- ig byggjum viö nýtt öflugt þjóðfélag laust viö sósialisma. Viö stöndum á timamótum. Hér er aö hefjast nýr timi frjálsræðis og ábyrgðar, sem mun setja nýtt svipmót á þjóð- ina, og breyting, sem fylgir honum, mun ná inn i hvern af- kima Stóra-Bretlands. Þannig talaöi Heath, þegar hann varö forsætisráöherra Bretlands sumariö 1970. 1 þessum anda reyndi hann aö stjórna tvö fyrstu árin. M.a. lagði hann til atlögu viö verka- lýöshreyfinguna og setti nýja vinnulöggjöf i andstööu viö hana. Þessi stefna aflaði stjórn hans svo mikilla óvin- sælda og gaf Frjálslynda flokknum svo mikinn byr i seglin, að hann reyndi aö sveigja örlitiö i aöra átt. En gamla stefnan kom aftur til sögunnar, þegar hann lenti i deilu viö kolanámumennina. Heath reyndist þá svo þver og óklókur foringi, aö hann rétti Verkamannaflokknum raun- verulega kosningasigurinn á silfurbakka, en Verkamanna- flokkurinn var svo klofinn og sundurþykkur á þessum tima, aö fariö var aö tala um, aö hann yröi i stjórnarandstöðu til aldamóta. Eftir þennan ó- sigur íhaldsflokksins var ljóst, aö hann myndi losa sig viö Heath viö fyrsta tækifæri, þrátt fyrir það, þótt hann ætti ekkert álitlegt foringjaefni. MARGARET Thatcher notaði 1 sambandi við formannskjör- iönákvæmlega sömu vigoröin og Heath 1970. Þeir, sem mundu eftir ræöum Heath frá þeim tima, voru lika i gamni farnir að kalla hana Mrs. Heath. En þótt Thatcher þætti koma vel fyrir og halda vel á máli sinu, voru það ekki þessi vigorð, sem tryggöu henni sig- urinn. Hún sigraði eingöngu vegna þess, að flokkurinn vildi losna viö Heath sem foringja af persónulegum ástæöum. Sigur flokksins var talinn von- laus undir forustu hans. Strax eftir formannskjörið var Thatcher vöruð viö þvi aö draga ekki fána hægri stefnu aö hún. Alveg sérstaklega var hún vöruö við þvi að gera helzta leiötoga hægri stefn- unnar Keith Joseph, að fjár- málaráöherra i skuggaráðu- neytinu. Hún var jafnframt hvött til þess að mynda ráðu- neyti sitt á sem breiðustum grundvelli. Eftir þessum leiöbeiningum hefur hún bersýnilega fariö, þótt ef til vill megi segja, að Þessi mynd var tekin af Margaret Thatcher fyrir tveimur árum, en þá sat hún enn i stjórn Heath's og fór vel á meö þeim. Margir iita nú á þessa mynd sem fyrirboöa. skuggaráöuneyti hennar beri aö vissu leyti meiri hægri svip en skuggaráöuneyti Heaths, hefur hún bersýnilega dregiö eins mikið úr feröinni til hægri og henni var unnt eftir aö vera komin til valda meö stuöningi hægri manna. Ráðuneyti Thatchers er þannig skipaö, aö hún ætlar bersýnilega tveimur mönnum aö ganga næst sér aö völdum, þeim William Whitelaw, sem var aðalkeppinautur hennar viö siöari umferö formanns- kjörsins, og Keith Joseph. Whitelaw veröur varaformaö- ur og næstur henni aö völdum, en Joseph mun fjalla sérstak- lega um stefnumótun og rann- sóknir i þvi sambandi. Næst þeim Whitelaw og Joseph kemur svo Reginald Maud- ling, sem verður utanrikisráö- herra skuggaráöuneytisins. Hann keppti á sinum tima viö Heath um formannsstööuna og margir telja nú, aö flokkn- um myndi hafa farnazt betur undir forustu hans. Maudling sagöi af sér sem innanrikis- ráöherra 1972 vegna þess, að hann var riöinn viö fyrirtæki fjárbrallsmanns, sem varð gjaldþrota, en engar sakir hafa þó sannazt á Maudling og almennt viröist álitiö, að Maudling hafi hér þurft aö greiöa smávægilega yfirsjón of dýru veröi. Margt bendir til, aö þaö sé sterkur leikur hjá Thatcher aö tefla nú Maudling fram og hann þykir ólikt álit- legra utanrikisráöherraefni en Rippon, sem gegndi þvi starfi i skuggaráðuneyti Heaths, en hann neitaði aö taka sæti i r áðuneyti That- chers, en Rippon er þó til hægri i flokknum. Maudling hefur hins vegar veriö talinn i frjálslyndari armi flokksins. Sæti fjármálaráðherra i ráðuneyti Thatchers skipar Geoffrey Howe, sem var einn af keppinautum hennar viö formannskjöriö. Hann er tal- inn ihaldssamur i fjármálum, en frjálslyndur i félags- málum, og hefur þvi veriö tal- inn til frjálslyndari arms flokksins. Annar keppinautur Thatchers viö formannskjör- iö, James Prior, er atvinnu- málaráöherra, en þvi starfi fylgir m.a. aö stuöla aö nægri atvinnu. Ian Gilmour, sem var einn af stuöningsmönnum Heaths, er innanrikisráð- herra. Hann hefur veriö talinn i frjálslyndari armi flokksins. Varnarmdlaráðherra er George Younger, sem hefur þótt liklegur til mikils frama. Irlandsmálaráðherra er Airey Neave, en hann skipulagði kosningabaráttuna fyrir That- cher i sambandi viö for- mannskjöriö. Heath hafnaöi aö taka sæti i skuggaráöu- neytinu. Þaö viröist ljóst af þvi, sem hér er rakið, að Thatcher hefur leitazt viö að mynda ráðuneyti sitt á sem breiðust- um grundvelli og foröazt aö hafa á þvi neinn sérstakan hægri svip. Þaö hefur gilt um marga formenn brezka lhaldsflokksins, aö þeir hafa byrjaö alllangt til hægri, en færzt i hina áttina. Astæöan er sú, aö Bretland býr viö tveggja flokka kerfiö, og þvi eru það oftast óháöu kjósend- urnir, sem hvorki skipa sér langt til hægri eða vinstri, sem ráöa úrslitum. Skipan skugga- ráöuneytis Margaret That- chers gæti bent til þess, aö hún hafi gert sér þetta ljóst, hvaö sem öllum stefnuyfirlýsingum liður. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.