Tíminn - 23.02.1975, Qupperneq 32
32
TÍMINN
Sunnudagur 23. febrúar 1975
Ingólfur Davíðsson:
DÝRIN Á BÆNUM
Á sveitabæjunum eru
mörg húsdýr. Þegar ég
var að alast upp á
Stóru-Hámundarstöðum
við Eyjafjörð voru þar
kýr og kindur, hestar,
hænsni, hundar og kett-
ir. Af kúnum man ég
bezt eftir henni Grá-
flekku, stórri og hnifl-
óttri. Ég kom oft með
iitla könnu i fjósið, þeg-
ar verið var að mjólka
og fékk spenvolga mjólk
úr Flekku, hún er svo
stór og hraust, það er
bezt að þú fáir mjólk úr
henni, sögðu mjalta-
stúlkurnar.
Flekka var foringi
kúnna, hún gekk á und-
an og hinar fylgdu á eft-
ir. Ef einhver var óþæg,
hnoöaði Flekka hana
bara um koll, þó hin
væri hyrnd, en Flekka
bara hnýflótt. Flekka
sótti mikið i túnið. Ég
átti að verja það fyrir
kúnum og varð stundum
reiður við þær. Sérstak-
lega varð að hafa gætur
á Flekku ef búið var að
þurrka hey og bera það
upp i sátur eða bólstra,
því að ef hún sá sér færi
á, kom hún á harða
spretti beint á sáturnar
og ruddist gegnum þær.
Henni þótti auðsjáan-
lega gaman að sundra
heyinu, og þeyta þvi i
kringum sig.
Naut eru stundum
mannýg og hættuleg, en
stóri grái boli var mein-
laus og skapgóður. Hann
var oft sóttur handa
kúm á öðrum bæjum og
Kýr á Stóru-Hámundarstööum.
t réttinni. Stórhyrndar ær og ein koliótt. Hrútur meö stóru hornin
sin. Lamb ris upp i þvögunni. Hún er I margar peysur ullin af
þessum kindum.
fór Kristinn vinnumaður
með hann. En þegar
fara skyldi heim aftur
lagði Kristinn taum-
bandið á bakið á bola og
fór sjálfur á hak eins og
á hesti. Grái boli labbaði
svo heim, alveg að fjós-
dyrum með Kristin á
bakinu.
Eitt óþurrkasumar
varð sumt af töðunni dá-
litið myglað og vildu
kýrnar helzt ekki eta
nema það bezta. En ef
kýr gat smeygt hausn-
um i jötuna hjá næstu
kú, þá át hún myglaða
töðu með beztu lyst, —
bara ef hún gat stolið
henni! hefur kannski
hugsað að það . væri
betra hey hjá hinni
kúnni. Svona höguðu
þær sér stundum skrýti-
lega, blessaðar kýrnar.
Ærnar voru oft 80—100
að tölu, flestar hvítar, en
sumar svartar, gráar,
mórauðar, flekkóttar,
höttóttar, botnóttar,
golsóttar, bildóttar
o.s.frv. Hafið þið séð
alla þessa liti á fénu?
Kannski geta foreldrar
ykkar eða kennarinn
lýst þessu öllu fyrir ykk-
ur. Pabbi þekkti allar
ærnar með nafni. Hann
þekkti þær af lit, svip og
fleiri einkennum. Ærnar
hafa hver sinn svip, rétt
eins og manneskjur.
DAN
BARRY
Hann brennir
jörðina!
Sonur Apollo! \ Við verðum að
Hann sagðiþá satt, Jsegja keisaranuml
hann er sendur af *
euðunum! n
tókst vel
Geiri. /