Tíminn - 01.06.1975, Side 5
Sunnudagur 1. júni 1975
TÍMINN
5
Prakkarinn orðinn ráðsettur
Mickey Rooney var dáður kvik-
myndaleikari allt þar til hann
náði tvitugsaldri, en þá sneru
kvikmyndaframleiðendur og
gæfan við honum bakinu. Nú er
hann farinn aö leika aftur og
framleiöa kvikmyndir. Mickey
Rooney lék í fjölmörgum mynd-
um á fjórða áratugnum, ávallt
hrekkjótta stráka, en þegar
hann náði fullorðinsaldri, var
hann ekki hæfur i slik hlutverk
lengur. Hann kvæntist hverri
konunni á fætur annarri, skatt-
heimtumennvoru á hælum hans
og fjárhagurinn eftir bví. Nú er
Mickey Rooney að leika i kvik-
mynd, sem heitir Maður Rakel-
ar, og er efnið sótt i Gamla
testamentið. Myndin er tekin i
ísrael, skammt frá landamær-
um Sýrlands og Libanon. A
stóru myndinni er Rooney i
hlutverki Labans, og inn i hana
er sett mynd frá velgengnisár-
um hans, en sú var tekin 1942. A
hinum myndunum sést israelsk-
ur hermaður á verði, þar sem
myndatakan fer fram, og á
hinni atriði úr Manni Rakelar.
Prakkarinn gamli er nú á
grænni grein, hann á búgarö i
Pennsylvaniu, yrkir ljóö og
dægurlagatexta, frámleiðir
hárlakk fyrir sköllótta, og siðar
i sumar mun hann fara aftur til
tsrael til að taka kvikmynd um
villta vestriö, og þar munu þrjú
af niu börnum hans fara með
hlutverk.
I
i