Fréttablaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 2
2 19. mars 2005 LAUGARDAGUR
Fullorðin kona varð uppvís að óvenjulegri smygltilraun á Keflavíkurflugvelli:
Faldi kókaín í hárkollunni
FÍKNIEFNASMYGL „Þetta er ein
djarfasta og ósvífnasta smygltil-
raun sem við höfum orðið vitni að,“
sagði Jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflugvelli,
en 12. mars síðastliðinn var 64 ára
gömul kona handtekin þegar hún
reyndi að smygla 800 grömmum af
kókaíni til landsins frá Amster-
dam.
Konan, sem er heyrnarskert,
var tekin í úrtaksleit en ekkert
fannst á henni við þá leit. Árvökull
tollgæslumaður veitti þá hári henn-
ar athygli og viðurkenndi hún þá að
vera með hárkollu. Styrktust þar
með grunsemdir og var hún hand-
tekin og færð til lögreglunnar í
Reykjavík. Þar kom í ljós að konan
var með sérsaumaða hárkollu sem
var saumuð föst á höfuð hennar en
þar undir voru fíkniefnin.
Konan, sem er bandarískur og
hollenskur ríkisborgari, hefur ver-
ið úrskúrðuð í gæsluvarhald til 1.
apríl og beinist rannsókn lögreglu
að því að finna samverkamenn
hennar hér á landi en telja má nær
öruggt að hún hafi ekki verið ein að
verki.
Talið er að andvirði efnanna sé á
bilinu 15-30 milljónir króna.
- jse
Viðbrögð Sjálfstæðisflokks við áformum R-listans um gjaldfrjálsan leikskóla:
Örvæntingarfullt útspil borgarstjóra
BORGARMÁL „Þetta er örvænting-
arfullt útspil borgarstjóra nú
þegar barnafólk hefur verið að
flýja til nágrannasveitarfélag-
anna vegna hárra skatta, gjalda
og lóðarskorts,“ segir Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins. Hann bendir á
að í stjórnartíð R-listans hafi
leikskólabörnum í Reykjavík
fækkað um fimm hundruð en á
sama tíma hafi þeim fjölgað um
fimm hundruð í Kópavogi .
Guðlaugur Þór telur að þessi
áform beri vott um valdabaráttu
innan R-listans. Steinunn Valdís
komi með þetta útspil til að
tryggja stöðu sína. Hann segist
eiga eftir að sjá nánari útfærslu
á gjaldfrjálsum leikskóla og enn
eigi eftir að ræða málið í borg-
arráði. Þó sé ljóst að miðað við
það sem hafi verið kynnt eigi
síðustu efndir að koma fram
þegar R-listinn verði ekki leng-
ur við völd. Vísar Guðlaugur
Þór þá til þess að síðasta skrefið
í breytingum á gjaldtöku vegna
leikskólanna komi eftir borgar-
stjórnarkosningarnar á næsta
ári.
Ólafur F. Magnússon, borgar-
fulltrúi F-listans, segist ánægð-
ur með áform R-listans. Hann
segist taka undir það með borg-
arstjóra að leikskólinn eigi að
vera almenn grunnþjónusta sem
samfélagið eigi að veita án
íþyngjandi gjaldtöku.
- jse
Sex fyrirtæki vilja
fjárfesta í álverum
Iðnaðarráðherra segir svigrúm til að reisa eitt álver til viðbótar á Íslandi. Færri
álfyrirtæki komist að en vilji. Hún segir að markaðssetning fyrir orkufrekan iðn-
að sé að skila sér. Talað sé um Ísland sem best varðveitta leyndarmál Evrópu.
IÐNÞING „Sex heimsþekkt álfyrir-
tæki hafa nú sýnt áhuga á að
fjárfesta í álverum á Íslandi.
Það er öllum ljóst að þau komast
ekki öll að. Sennilega er svig-
rúm til að reisa hér eitt álver til
viðbótar eða stækka önnur sem
því nemur,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, á Iðnþingi í gær.
Samkvæmt upplýsingum úr
iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
inu eru þetta Alcan og Alcoa
sem þegar eru með starfsemi
hér á landi, Century frá Banda-
ríkjunum, BHP Billiton og Rio
Tinto Aluminium frá Ástralíu og
Rusal frá Rússlandi. Valgerður
sagði í samtali við Fréttablaðið
að enn fleiri fyrirtæki hefðu afl-
að sér upplýsinga um rekstrar-
skilyrði hér á landi.
Ráðherrann sagði að um-
fangsmikil markaðsvinna á síð-
asta áratug við að vekja athygli
erlendra fjárfesta á ágæti
landsins til þess að reisa hér
orkufrekan iðnað hefði skilað
sér á undraverðan hátt. Nú væri
talað um Ísland sem best varð-
veitta leyndarmál Evrópu meðal
álframleiðenda. Væri þá vitnað
til þess hve aðstaða hér á landi
væri góð fyrir þess háttar fram-
leiðslu.
Valgerður sagði að í lok þessa
áratugar, þegar byggingu Fjarð-
aráls og stækkun Norðuráls yrði
lokið, myndi álframleiðsla vera
þrefalt meiri en nú er, eða 760
þúsund tonn á ári.
bjorgvin@frettabladid.is
Ísingarveður:
60 staurar
brotnuðu
VEÐUR Sextíu rafmagnsstaurar
brotnuðu í ísingarveðri sem gerði á
Austurlandi í gærmorgun.
Mestur skaði varð á Fljótsdals-
héraði, að sögn Ásmundar Erlings-
sonar, verkfræðings hjá Rafmagns-
veitum ríkisins á Austurlandi.
Rafmagnslaust varð að hluta til
á Fáskrúðsfirði, Norðfirði, Vopna-
firði, Seyðisfirði og Egilstöðum
klukkan hálf átta um morguninn en
rafmagn var komið á flesta staði
um tíuleytið, að sögn Ásmundar.
Viðgerðir hófust strax í gær og
taldi Ásmundur allt benda til þess
að kerfið yrði komið í lag á mánu-
daginn. - sgi
ÞOTA YFIR REYKJAVÍK
Icelandair-þota hljóp í skarðið fyrir Fokker-
inn í gær vegna langra farþegalista þar
sem ekki var flogið í fyrradag.
Flugfarþegar á Egilsstöðum:
Með þotu til
Reykjavíkur
FLUGUMFERÐ Hundrað og fjörutíu
farþegar voru fluttir með Boeing
757 þotu Icelandair frá Egilstöð-
um til Reykjavíkur í gær. Ástæð-
an var sú að Fokker-vélar Flug-
félags Íslands voru allar notaðar
til flytja fjölda manns til Akureyr-
ar en farþegalistinn þangað var
orðinn býsna langur þar sem ekki
var flogið norður í fyrradag
vegna óveðurs.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugfélagi Íslands kemur það fyr-
ir að þota Icelandair sé notuð í
innanlandsflugi þegar ástand sem
þetta kemur upp. - jse
FÁNINN DREGINN AÐ HÚNI
Nokkrir herklæddir sjíar fóru upp á þak
sendiráðs Jórdaníu með íraska fánann.
Íraskir sjíar:
Bálreiðir
Jórdönum
BAGDAD, AP Yfir tvö þúsund sjíar
fóru í mótmælagöngu í Bagdad í
gær og brutu nokkrir þeirra sér leið
inn í jórdanska sendiráðið.
Jórdönsk yfirvöld hafa lýst yfir
áhyggjum af uppgangi sjía í Írak og
Jórdani er í haldi lögreglu í Írak
grunaður um að hafa staðið á bak
við sprengjutilræðið í Hillah á
dögunum þar sem 125 létu lífið.
Enn ríkir stjórnarkreppa í Írak.
Kúrdar og sjíar hafa ákveðið að
taka sér frest til 26. mars til að
mynda ríkisstjórn. Kúrdar vilja
halda peshmerga-hersveitum sínum
og fá yfirráð yfir borginni Kirkuk
en það vilja sjíar ekki leyfa. ■
Subaru Legacy Wagon sjálfskiptur
28.396,-*
USD 58.54
JPY 0.56
EUR 77.74
330.000
2.590.000
2.790.000Ver› á›ur
Ver› nú
2.460.000Ver› nú
Gengi› rétt fyrir
lokun 18. mars
SPURNING DAGSINS
Bjarni, er skákinni þá lokið?
„Nei. Endataflið er eftir. Það á eftir að
samþykkja málið á Alþingi.“
Bjarni Benediktsson er formaður allsherjarnefnd-
ar Alþingis, sem samþykkti í gær að mæla með
því að skáksnillingnum Bobby Fisher verði veittur
ríkisborgararéttur.
JÓHANN R. BENEDIKTSSON
Man varla eftir jafn djarfri og ósvífinni
smygltilraun og þessari.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
IÐNAÐARRÁÐHERRA Á IÐNÞINGI
Valgerður Sverrisdóttir segir að umfangsmikil markaðsvinna á síðasta áratug hafi vakið
athygli erlendra fjárfesta.
Fyrirtæki flýja land
IÐNÞING „Hátt gengi krónunnar, óhóflegur vaxtamunur, sífelld
útþensla í ríkisrekstrinum og mjög hátt raungengi um þessar mundir
valda því að framleiðslu- og þjónustufyrirtæki leggja upp laupana
eða fara úr landi í stórum stíl,“ segir í ályktun iðnþings sem samþykkt
var í gær.
Í ályktuninni segir að nágrannaþjóðir okkar búi í haginn fyrir at-
vinnulíf sitt með stöðugum gjaldmiðli og aukinni áherslu á hátækni-
iðnað, menntun og rannsóknir. Haldbesta leiðin til að auka hér kaup-
mátt og velmegun í framtíðinni sé að feta sömu slóð.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
JEPPAR LENTU Í ÁREKSTRI Tveir
jeppar skullu saman á Norður-
landsvegi í Hrútafirði um
þrjúleytið í gær með þeim afleið-
ingum að þeir lentu báðir utan
vegar. Ökumennina tvo sakaði
ekki en önnur bifreiðin er ónýt
og hin talsvert skemmd.
ÖLVUNARAKSTUR Á AKUREYRI
Þrír menn voru teknir fyrir
ölvunarakstur aðfaranótt föstu-
dags á Akureyri. Að sögn lögregl-
unar er þetta óvenjumikið í miðri
viku.
M
YN
D
A
P
■ BANDARÍKIN
KONA LEIÐIR ÍSLAMSKA BÆNA-
STUND Amina Wadud, prófessor í
New York, leiddi í gær bæna-
stund múslima í samkomuhúsi í
borginni. Hún er sögð fyrsta kon-
an sem stýrir bænum fyrir söfn-
uð sem í eru bæði karlar og kon-
ur. Framtakinu var mótmælt
harðlega af múslimaleiðtogum
víða um heim.
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
Telur áform borgarstjóra um gjaldfrjálsan
leikskóla í framtíðinni vera örvæntingarfullt
útspil nú þegar barnafólk hafi flúið há gjöld
Reykjavíkurborgar í stjórnartíð R-listans.