Fréttablaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 4
Stúdentaráð:
Elías kosinn
formaður
KOSNINGAR Elías Jón Guðjónsson,
oddviti Háskólalistans, var kosinn
formaður Stúd-
entaráðs á skipta-
fundi ráðsins í
gær. Átján stúd-
entaráðsliðar sátu
hjá við kosning-
una og var hann
því kosinn með
einungis tveimur
atkvæðum.
Jarþrúður Ás-
mundsdóttir, fráfarandi formaður
SHÍ, segir að í ljósi þeirrar óvenju-
legu niðurstöðu sem varð í kosning-
um til Stúdentaráðs í febrúar, þar
sem engin þeirra þriggja fylkinga
sem buðu fram náði meirihluta, hafi
Vaka ákveðið að styðja formanns-
efni Háskólalistans með hlutleysi
sínu. Það hafi verið illskásti kostur-
inn í stöðunni. - sgi
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
58,55 58,83
112,26 112,80
77,92 78,36
10,46 10,52
9,57 9,63
8,56 8,61
0,56 0,56
89,70 90,24
GENGI GJALDMIÐLA 18.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
106,61 +0,05%
4 19. mars 2005 LAUGARDAGUR
Davíð Oddsson um Keflavíkurflugvöll:
Tökum á okkur auknar skyldur
VARNARSAMNINGURINN Davíð Odds-
son utanríkisráðherra segir að
Íslendingar muni að öllum lík-
indum þurfa að taka á sig aukn-
ar skyldur vegna rekstrar
Keflavíkurflugvallar. Viðræður
við Bandaríkjamenn um framtíð
Keflavíkurflugvallar munu fara
fram um miðjan apríl.
„Það er ekki hægt að segja til
um hvernig þær fara fyrr en við
horfum framan í þá,“ segir
Davíð. „Við vonumst til þess að
eftir fundi mína með forseta
Bandaríkjanna og fyrrverandi
utanríksráðherra Bandaríkj-
anna og samtöl og símtöl við nú-
verandi utanríkisráðherra sé
skilningur á því að hér þurfi að
vera lágmarksvarnir.“
Davíð segir að jafnframt sé
skilningur á því að hlutfall hins
viðskiptalega flugvallar annars
vegar og varnarflugvallarins
hins vegar hafi breyst hinum
almennu viðskiptum í hag.
„Við hljótum því að þurfa að
taka mið af því,“ segir Davíð.
- sda
Fischer verður
Íslendingur
Allsherjarnefnd samþykkti í gær einróma að mæla með því að Bobby Fischer
yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Stefnt er á flýtimeðferð á Alþingi.
Davíð Oddsson telur málið það sérstætt að það sé ekki fordæmisgefandi.
FISCHER Allsherjarnefnd Alþingis
samþykkti á fundi sínum í gær
að mæla með því við Alþingi að
veita skákmeistaranum Bobby
Fischer íslenskan ríkisborgara-
rétt.
„Við höfum áður haft málið
til umfjöllunar en á því stigi
taldi ég ekki fullreynt á það að
Bobby Fischer gæti losnað frá
Japan á grundvelli dvalarleyfis
og ferðaskilríkja frá Íslandi. Í
millitíðinni hefur hins vegar
verið látið reyna á það og komið
hefur í ljós að það dugði ekki til.
Það var eðlilegt að beiðnin væri
því ítrekuð fyrir nefndinni,“
sagði Bjarni Benediktsson,
formaður allsherjarnefndar.
Hann segir að ákvörðunin í
dag hafi byggst á því að full-
vissa hafi fengist um það að
Fischer losnaði úr haldi fengi
hann íslenskt ríkisfang. „Þegar
það lá fyrir var ekki annað að
gera en að taka ákvörðun í mál-
inu. Margt hafði áhrif á einróma
afstöðu manna í nefndinni; í
fyrsta lagi tengsl hans við land-
ið, en menn þekkja söguna í því.
Í öðru lagi það að stjórnvöld
höfðu áður gert tilraun til að
greiða leið mannsins til landsins
og í þriðja lagi mun íslenskur
ríkisborgararéttur verða til
þess að Fischer losnar úr haldi,
en honum er haldið föngum í
innflytjendabúðum í Japan. Því
voru ákveðin mannúðarsjónar-
mið þar að leiðarljósi,“ segir
Bjarni.
Bjarni vonast til að málið
verði tekið fyrir á Alþingi eftir
helgi.
„Ég á von á því að frumvarp
verði lagt fram á mánudaginn
og síðan býst ég við því að þing-
ið verði jákvætt fyrir því að
flýta afgreiðslu þessa máls.
Fischer gæti því fengið íslensk-
an ríkisborgararétt strax í
næstu viku,“ segir Bjarni.
Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra segist ekki þekkja nein
fordæmi fyrir máli Fischers.
„Hugsanlega væri hægt að
horfa til þess er Vladimír Ash-
kenazy var veittur ríkisborgara-
réttur, en ólíkt Fischer var hann
pólitískur flóttamaður. Við
höfum velt fyrir okkur fordæm-
issjónarmiðum en teljum að
þetta mál sé svo einstakt og
njóti slíkrar sérstöðu að það sé
ekki hægt að skapa undarlegt
fordæmi í því,“ segir Davíð.
sda@frettabladid.is
Bandaríkin:
Milljarður
flugfarþega
BANDARÍKIN, AP Yfir milljarður
manna mun árlega stíga um borð
í flugvél í Bandaríkjunum innan
áratugar, að því er fram kemur í
spá bandarísku flugmálastjórn-
arinnar. Þetta er nærri tvöföldun
á núverandi fjölda flugfarþega í
Bandaríkjunum.
Þetta vekur áhyggjur af því
að brátt reyni mjög á þanþol
flugumferðarkerfisins vestra.
Talsmenn flugmálastjórnarinnar
segjast þó bjartsýnir á að meðal
annars með tilkomu nýrrar
tækni verði unnt að leysa þau
vandamál sem fylgja aukning-
unni. ■
Mýrarljós
Sýning laugardagskvöld!
„Mýrarljós hefur allt til brunns að bera:
Drama, svartan húmor og lýtalausan leik.“
Grapevine, mars 2005
Pattstaða í Slésvík:
Simonis
segir af sér
ÞÝSKALAND, AP Heide Simonis, for-
sætisráðherra norður-þýska sam-
bandslandsins Slésvíkur-Holtseta-
lands, sagði af sér í gær eftir að
henni mistókst að fá meirihluta-
stuðning á nýkjörnu þingi í Kiel.
Þetta gerðist þrátt fyrir að jafnað-
armannaflokkur Simonis hefði
verið búinn að gera samkomulag
um meirihlutastamstarf við græn-
ingja og fulltrúa flokks danska
minnihlutans, SSW.
Héraðsleiðtogi kristilegra
demókrata, Peter Harry Carsten-
sen, hlaut jafnmörg atkvæði og
Simonis í endurtekinni atkvæða-
greiðslu í þinginu, 34. Einn þing-
maður sat hjá. Kristilegir
demókratar vilja mynda sam-
steypustjórn með jafnaðarmönnum
undir forystu Carstensens. ■
ÞRAUTAGANGA FISCHERS
18. mars Allsherjarnefnd ákveður að
mæla með því við Alþingi að Fischer fái
ríkisborgararétt.
17. mars Allsherjarnefnd fjallar um ríkis-
borgararétt með hraðferð fyrir Fischer.
15. mars Fischer kominn í einangrun á
nýjan leik.
9. mars Afmæli Bobby Fischer. Stuðn-
ingsmenn hans hóta japanska ríkinu lög-
sókn, verði honum ekki sleppt fyrir föstu-
dag. Mögulega höfðað mál í Bandaríkjun-
um.
7. mars Lögfræðingur Fischers fær vega-
bréf hans. Ljóst að hann fær ekki að fara
frá Japan.
4. mars Flugmiði fenginn fyrir Fischer.
Vonir um að koma honum úr landi fyrir
62 ára afmælisdaginn sinn 9. mars.
3. mars Fischer kominn í einangrun. Fær
ekki að hitta neinn.
28. febrúar Sæmundur Pálsson, vinur
Fischers, og fleiri stuðningsmenn hans
halda til Japans.
18. febrúar Sótt um vegabréf fyrir Fischer.
3. febrúar Stuðningsmenn Fischers
senda Alþingi bréf til að vekja athygli á
þessu mannúðarmáli.
27. desember 2004 Sæmundur Pálsson,
vinur Fischers, ræðir við hann fimm sinn-
um á dag í síma yfir jólahátíðirnar.
20. desember Stjórnvöld neita Banda-
ríkjamönnum um að draga til baka land-
vistarleyfi handa Fischer.
18. desember Fischer þiggur boðið um
að koma til Íslands.
17. desember Fischer gæti fengið útlend-
ingavegabréf. Davíð Oddsson segir brot
Fischers gegn viðskiptabanni Sameinuðu
þjóðanna á gömlu Júgóslavíu fyrnd sam-
kvæmt íslenskum lögum.
16. desember Bobby Fischer fær form-
legt boð um landvistarleyfi. Leyfið verður
tímabundið og felur ekki í sér atvinnu-
leyfi.
20. ágúst Japanir neita að fresta framsali
Fischers til Bandaríkjanna. Farið er fram á
að hann verði ekki framseldur strax.
6. ágúst Bobby Fischer vill afsala sér
bandarískum ríkisborgararétti. Vill verða
viðurkenndur sem flóttamaður.
3. ágúst Í haldi í þrjár vikur. Bandaríkja-
menn fara fram á að Fischer verði fram-
seldur. Sækir um hæli í Japan.
16. júlí Stjórnvöld í Japan handtaka
bandaríska skákmanninn Bobby Fischer.
Vegabréf hans er útrunnið. Fischer er
eftirlýstur eftir að hafa teflt við Boris
Spasskí í gömlu Júgóslavíu gegn alþjóða-
lögum. Japan er skuldbundið til að hand-
taka alla sem eru eftirlýstir af bandarísk-
um stjórnvöldum.
DAVÍÐ ODDSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA Í GÆR
Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að mál Fischers hafi ekki fordæmisgildi. „Við höf-
um velt fyrir okkur fordæmissjónarmiðum en teljum að þetta mál sé svo einstakt og njóti
slíkrar sérstöðu að það sé ekki hægt að skapa undarlegt fordæmi í því,“ segir Davíð.
ELÍAS JÓN
GUÐJÓNSSON
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
Á MIÐNESHEIÐI
Davíð Oddsson segir það líklegt að Íslend-
ingar þurfi að taka á sig auknar skyldur
vegna rekstrar Keflavíkurflugvallar.