Fréttablaðið - 19.03.2005, Qupperneq 8
1Hvað heitir nýkjörinn rektor HáskólaÍslands?
2Hvers konar verksmiðju á að reisa áHúsavík?
3Hvaða leikari var sýknaður af aðhafa myrt eiginkonu sína?
SVÖRIN ERU Á BLS. 62
VEISTU SVARIÐ?
8 19. mars 2005 LAUGARDAGUR
Ná til bænda frá Hellisheiði eystri að Skagafjarðarsýslu:
Eining um sameiningu
mjólkursamlaga
MJÓLKURFRAMLEIÐSLA Sameining
Mjólkursamsölunnar og Mjólkur-
bús Flóamanna var samþykkt á
aðalfundum fyrirtækjanna. Fund-
ur Mjólkursamsölunnar var á
fimmtudag þar sem sameining
var samþykkt samhljóða en á
fundi Mjólkurbús Flóamanna
samþykktu 36, einn var á móti og
tveir fulltrúar sátu hjá.
Bjarni Jónsson, formaður
stjórnar Mjólkurbús Flóamanna,
segir sameiningu fyrst geta
orðið um miðjan apríl. „Þetta
gengur þannig fyrir sig að öðru
félaginu er slitið og deildir þess
félags sem ákveðið er að slíta
þurfa að samþykkja samrun-
ann,“ segir hann.
Deildir Mjólkursamsölunnar
sameinast Mjólkurbúi Flóamanna
og fær félagið nýtt nafn. Vöru-
merkin MS og MBF verða áfram
notuð. Við sameiningu ná fyrir-
tækin til allra bænda frá Hellis-
heiði eystri og út Austur-Húna-
vatnssýslu. Einungis bændur við
Ísafjörð og nágrenni standa utan
við samsteypuna. Áætlað er að
ársvelta af sameinuðum rekstri
verði 7,6 til 8 milljarðar króna.
- gag
Yfirmanni raforkurisa Rússlands sýnt tilræði:
Hermaður yfirheyrður
RÚSSLAND, AP Rússneska lögreglan
yfirheyrði í gær fyrrverandi liðs-
foringa í hernum vegna tilræðis
sem Anatolí Tsjúbajs, yfirmanni
rússnesku rafmagnsveitnanna, var
sýnt í Moskvu á fimmtudag.
Embættismenn, sem ekki vildu láta
nafns síns getið, létu hafa eftir sér
að svo virtist sem tilgangurinn með
tilræðinu hefði verið að skjóta
Tsjúbajs skelk í bringu frekar en að
ráða hann af dögum.
Tilræðismennirnir sprengdu öfluga
sprengju og skutu síðan á bíl
Tsjúbajs á leið hans til vinnu. Til-
ræðið eyddi þeirri tálsýn að stöðug-
leiki væri að nást í viðskiptaum-
hverfinu í Rússlandi.
Tsjúbajs, sem komst ómeiddur
úr tilræðinu, sagðist hafa átt von á
að óvinir sínir reyndu eitthvað slíkt.
Tsjúbajs stýrði einkavæðingu
þjóðnýttra fyrirtækja í Rússlandi
fyrst eftir lok sovéttímans fyrir
rúmum áratug. Það kerfi hefur sætt
harðri gagnrýni fyrir að hafa komið
verðmætustu eigum ríkisins í hend-
ur vel valinna einstaklinga – við-
skiptajöfra með góð tengsl við ráða-
menn – á spottprís. ■
Undrandi á
fræðimönnum
Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Færeyja
gagnrýnir úttekt fjögurra hagfræðinga við Háskóla
Íslands á færeyska sóknardagakerfinu.
SJÁVARÚTVEGUR „Það kemur mér
mikið á óvart að heyra að vísinda-
og fræðimenn séu ábyrgir fyrir
úttekt af þessu tagi,“ segir Jörgen
Niclasen, fyrrverandi sjávarút-
vegsráðherra Færeyja. Að hans
mati koma fram ýmsar rang-
færslur í erindi fjögurra fræði-
manna við Háskóla Íslands um
muninn á færeyska sóknardaga-
kerfinu og íslenska kvótakerfinu.
Úttektin sem Jörgen gagnrýnir
er samantekt fjögurra hagfræð-
inga við Háskóla Íslands; þeirra
Axels Hall, Ásgeirs Jónssonar,
Sveins Agnarssonar og Tryggva
Þórs Herbertssonar, um stað-
reyndir og staðleysur um íslenska
kvótakerfið. Í úttektinni er gerður
samanburður á færeyska sóknar-
dagakerfinu og íslenska kvóta-
kerfinu og þar fara þeir að mati
Jörgens með slíkar rökleysur að
það minnir á áróður.
„Aðalatriðið er að þeir halda
því fram að fiskistofnar við Fær-
eyjar hafi verið ofnýttir allan
tíunda áratuginn. Slíka yfirlýs-
ingu geta þeir þó ekki sannað með
vísindalegum rökum og málið er
alls ekki svona einfalt. Staðreynd-
in er í stuttu máli að sá fiskur sem
veiddist kringum 1990 var afar
magur, sem benti til að æti væri
af skornum skammti. Á þessu
gekk næstu árin, fiskurinn minnk-
aði og þeim fækkaði þar sem fisk-
ar borða hvern annan ef ekkert
annað er á boðstólum. Fyrir því
eru aðeins tvær ástæður mögu-
legar. Í fyrsta lagi að mikill skort-
ur hafi verið á ljósátu, sem er ein
aðalfæða ungfiska. Sé það ástæð-
an er ómögulegt að kenna mannin-
um eða fiskiveiðistefnu um. Hin
ástæðan er sú að of margir fiskar
hafi verið um hituna og sé það
ástæðan er ekki hægt að kenna of-
veiði um heldur þvert á móti.“
Jörgen segir einnig að aðrar
staðreyndavillur séu í málatilbún-
aði hagfræðinganna úr Háskólan-
um. „Þar er sagt að Færeyingar
hafi tekið upp kvótakerfi 1992 og
sóknardagakerfi ári seinna. Þetta
er rangt. Kvótakerfið var tekið
upp 1994 og sóknardagakerfið tók
við 1996. Mér finnst eðlilegt að
fræðimenn hafi slík atriði á
hreinu þegar gerð er fræðileg út-
tekt á málum sem þessum.“
albert@frettabladid.is
Hraðlið ESB:
Vilja stytta
viðbragðsfrest
LÚXEMBORG, AP Varnarmálaráðherr-
ar Evrópusambandsríkjanna 25
sátu í gær á rökstólum um þá tillögu
að stytta um helming viðbragðstím-
ann sem það tekur að ræsa út sér-
sveitir sem sambandið á að geta
sent til að sinna bráðaverkefnum
utan landamæra sambandsins.
Nú þegar hefur verið komið á
fót alls 1.500 hermanna hraðliði
sem ESB getur ráðstafað til slíkra
verkefna. Eins og er á að vera hægt
að senda það á vettvang, svo sem til
að stilla til friðar á átakasvæði, með
tíu daga fyrirvara. Þennan frest
vilja menn nú stytta niður í fimm
daga. ■
■ DÓMSMÁL
Á Flú›um er tilvali› a› halda stefnumótunar- og vinnufundi fjarri
ys og flys borgarinnar en samt sem á›ur í flægilegri nálæg›
vi› hana. Veri› velkomin!
Sími: 486 6630
www.icehotels.is
100 KM TIL REYKJAVÍKUR
KYRRLÁTT UMHVERFI
NÁLÆG‹ VI‹ NÁTTÚRUPERLUR
GÓ‹AR VEITINGAR
Nordica • Loftlei›ir • Flughótel • Flú›ir • Rangá • Klaustur • Héra›
HÓTEL FLÚ‹IR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
2
4
7
fiEGAR HALDA Á GÓ‹AN FUND
DEILT UM FJÁRHÆÐ EIGNAR-
NÁMSBÓTA Íslenska ríkið var
dæmt til að greiða tæpar 1,3
milljónir króna í bætur vegna
verðrýrnunar lands sem tekið
var eignarnámi undir vega-
stæði. Var dómurinn í samræmi
við niðurstöðu héraðsdóms í
sama máli.
RÍKIÐ SÝKNAÐ Hæstiréttur
sýknaði ríkið af bótakröfu
manns sem sat um þriggja mán-
aða skeið í varðhaldi áður en
honum var tilkynnt að málið
hefði verið látið niður falla.
Ástæðan var framkoma manns-
ins við handtöku og skýrslugerð
og það hafi stuðlað að varðhald-
inu þótt í lengra lagi hafi verið.
SJÓFLUTNINGAR Jaxlinn, skip Sæ-
skips í Reykjavík, hefur hafið
strandsiglingar til hafna á Eyja-
fjarðarsvæðinu og til Húsavíkur.
Ragnar Traustason, fram-
kvæmdastjóri Sæskips, segir
Jaxlinn hafa verið í strandsigl-
ingum fyrir vestan í tæpt ár. „Nú
ætlum við að lengja rútuna og
erum byrjaðir á vikulegum sigl-
ingum til Dalvíkur, Siglufjarðar
og Húsavíkur en munum sigla á
aðrar hafnir fyrir norðan ef það
svarar kostnaði,“ segir Ragnar.
Sæskip hefur ekki uppi áform
um að sigla til hafna á Austur-
landi.
- kk
MJÓLKIN Í MJÓLKURSAMSÖLUNNI
Við sameiningu Mjólkursamsölunnar og
Mjólkurbús Flóamanna ná fyrirtækin til
bænda frá Vopnafirði og að Blönduósi.
Mjólkursamlag Ísfirðinga stendur eitt
óhaggað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Strandsiglingar:
Jaxlinn til Norðurlands
JAXLINN
Á þeim tíma sem Jaxlinn hefur siglt til
hafna á Norðurlandi hefur mest verið flutt
til Dalvíkur.
ANATOLÍ TSJÚBAJS
Höfundur einkavæðingar í Rússlandi stýrir
nú rafveiturisa landsins.
RANGFÆRSLUR
Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Færeyja segir úttekt íslenskra fræðimanna á færeyska
fiskveiðikerfinu bera þess merki að um áróður sé að ræða en ekki faglega úttekt.