Fréttablaðið - 19.03.2005, Page 10
19. mars 2005 LAUGARDAGUR
Utandagskrárumræður á Alþingi:
Óeðlileg samkeppni við Pólverjana
SKIPASMÍÐAIÐNAÐUR Alþingis-
menn vilja að kannað verði
hvort tilboð pólsku skipasmíða-
stöðvarinnar Morska í endur-
bætur á varðskipum Landhelg-
isgæslunnar samræmist reglum
á EES-svæðinu. Einnig er vilji
fyrir því að Ríkisendurskoðun
kanni endanlegan kostnað og
fari yfir það hvort endurbæt-
urnar verði hagstæðari þegar
upp er staðið en hefði verið á Ís-
landi.
Þetta kom fram í utandag-
skrárumræðum um stöðu ís-
lensks skipasmíðaiðnaðar á Al-
þingi. Jón Bjarnason, þingmað-
ur Vinstri grænna, óskaði eftir
umræðunni. Til andsvara var
Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra.
Valgerður fór yfir þróunina í
skipasmíðaiðnaði síðustu árin
og sagði að framkvæmdastjórn
ESB hefði samþykkt nýjar regl-
ur 2003 þar sem heimilt var að
greiða niður allt að 20 prósent af
þróunarkostnaði við nýsmíði.
Þetta gæti gert íslenskum skipa-
smíðastöðvum erfiðara fyrir.
Halldór Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, taldi að nýtt
styrkjakerfi Evrópusambands-
ins gæti nýst í óeðlilegri sam-
keppni við Slippstöðina á Akur-
eyri. - ghs
Jackson-réttarhaldið:
Hömlulaus ærsl á Neverland
BANDARÍKIN, AP Fyrrverandi hús-
hjálp á búgarði Michaels Jackson,
Neverland, sagði frá því fyrir
rétti að hún hefði kallað búgarð-
inn „unaðseyju Gosa“ vegna þess
að börn fengu að ærslast þar
hömlulaust án eftirlits fullorð-
inna.
Húshjálpin, Kiki Fournier, bar
vitni í máli Jacksons á fimmtudag,
en hann er ákærður fyrir að hafa
leitað kynferðislega á ungling.
Hún sagðist ítrekað hafa séð börn
láta þannig að álykta mætti að þau
væru undir áhrifum áfengis. Fo-
urnier, sem starfaði á Neverland á
tímabilinu 1991-2003, nefndi í
þessu sambandi níu drengi, sem
allir voru á aldrinum tíu til fjórtán
ára. Þar á meðal var barnastjarn-
an Macaulay Culkin, sem dvaldi
mikið á Neverland. Fournier sagð-
ist þó aldrei hafa orðið vitni að því
að Jackson gæfi börnum áfengi.
Hún lýsti Jackson sem mjög und-
anlátssömum gestgjafa og gaf í
skyn að börnin hefðu fært sér
undanlátssemi hans í nyt.
Fournier sagði drenginn, á
hvers vitnisburði ákæran gegn
Jackson er byggð, og bróður hans
hafa gengið berserksgang í her-
bergjum sínum áður en fjölskylda
þeirra flutti af búgarðinum fyrir
tveimur árum. Verjendur
Jacksons segja drenginn hafa
skáldað upp söguna um kynferðis-
legu áreitnina í hefndarskyni, en
fjölskylda hans hefði gert sér von-
ir um að geta búið til langframa á
Neverland þegar henni var gert
að flytja þaðan. ■
Bankaránstilraun
tölvuþrjóta
Breska lögreglan kom upp um tilraun tölvuþrjóta til að ræna andvirði millj-
arða króna af bankareikningum japansks banka í Lundúnum.
BRETLAND, AP Breska lögreglan
kom upp um tilraun tölvuþrjóta til
að stela andvirði mörg hundruð
milljóna króna af reikningum jap-
ansks banka í Lundúnum, að því
er greint var frá á fimmtudag. Að-
ferðin sem beitt var við þjófnað-
artilraunina var að sögn sú að
þrjótarnir brutust inn í tölvukerfi
bankans og gátu þannig safnað
upplýsingum um bankareikninga
með tilheyrandi aðgangs- og lykil-
orðum.
Lögregla í Ísrael handtók á
miðvikudag í samstarfi við breska
kollega sína mann sem grunaður
er um að hafa með þessum aðferð-
um reynt að ræna háum upphæð-
um af reikningum Sumitomo
Mitsui-bankans.
Lögregla í Lundúnum staðfesti
að gerð hefði verið „misheppnuð
þjófnaðartilraun“ í fyrra í Lund-
únaútibúi Sumitomo Mitsui, en
vildi ekki gefa upp hve háar upp-
hæðir hefði verið um að tefla né
hvaða aðferðum hefði verið beitt.
Talsmenn bankans staðfestu
einnig að tilraun til þjófnaðar
hefði verið gerð, en sögðu ekkert
nánar um aðferðina. Bankinn
hefði ekki orðið fyrir neinu fjár-
hagstjóni.
Í tilkynningu ísraelsku lögregl-
unnar segir að hinn handtekni,
sem er 32 ára gamall ísraelskur
ríkisborgari, væri grunaður um
að hafa reynt að „þvo“ 20 milljón-
ir evra, andvirði um 160 milljóna
króna. Hátækniglæpadeild
bresku lögreglunnar hóf rann-
sókn í október í fyrra, eftir að
tölvuþrjótar brutust inn í tölvu-
kerfi Sumitomo-bankans í Lund-
únum. Þeir reyndu að millifæra
219 milljónir evra, um 17,5 millj-
arða króna, af reikningum bank-
ans á tíu reikninga í bönkum víðs
vegar um heim, en handtekni
Ísraelinn kvað vera skráður fyrir
einum þessara reikninga.
Samkvæmt heimildum breska
blaðsins Financial Times reyndu
þjófarnir að ræna 220 milljónum
sterlingspunda, hátt í 25 milljörð-
um króna, af reikningum jap-
anska bankans. Að sögn blaðsins
notuðu tölvuþrjótarnir laumufor-
rit sem gerði þeim kleift að fylgj-
ast með öllu því sem notendur net-
bankaþjónustu bankans slógu inn
á lyklaborðið hjá sér. Þannig gátu
þeir komist yfir upplýsingar um
reikningsnúmer, aðgangsorð og
aðrar viðkvæmar upplýsingar.
Steve Purdham, forstjóri
SurfControl plc, sem sérhæfir sig
í öryggi netnotenda, segir að þessi
ránstilraun ætti að verða mönnum
áminning um hættuna sem stafi af
njósnaforritum. ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Iðnaðarráðherra styður þá hugmynd að
kannað verði hvort tilboð Pólverja í endur-
bætur á varðskipunum samræmist reglum
á EES-svæðinu.
SUMITOMO-BANKINN
Einn maður hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á tilraun tölvuþrjóta til stór-
fellds bankaráns.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
HÚSHJÁLP BER VITNI
Kiki Fournier mætir í réttarsal í Santa Maria í Kaliforníu