Fréttablaðið - 19.03.2005, Page 21
Margir telja að hagfræði og viðskipta-
fræði snúist einungis um peninga, en
það er langt í frá að svo sé. Jú, þessi
fræði fjalla að hluta til um peninga,
en stór hluti þeirra snýst um mann-
legt eðli. Fjármálakerfi heimsins
byggir á því að viðskiptavinir treysti
því að ef þeir leggja peninga inn í
banka geti þeir tekið þá út aftur.
Í fróðlegu erindi sem Gylfi Magnús-
son hélt nýlega um traust í viðskipt-
um kom fram að þótt manni finnist
augljóst að traust skipti miklu máli í
viðskiptum var það ekki fyrr en á sjö-
unda áratug síðustu aldar að hag-
fræðingar fóru að taka tillit til þess í
líkönum sínum. Fremstur í flokki fór
þar Nóbelsverðlaunahafinn Reinhard
Selten.
Gylfi ræddi meðal annars um mag-
hrib-kaupmennina. Þetta var hópur
gyðinga sem á miðöldum stunduðu
verslun við Miðjarðarhaf og náðu
ótrúlegum árangri í að koma á við-
skiptum milli fjarlægra landa, þar á
meðal Vesturlanda og landa í Araba-
heiminum. Í stuttu máli komu gyð-
ingarnir sér upp lokuðum félagsskap
kaupmanna og umboðsmanna. Þeir
áttu síðan viðskipti hver við annan og
réðu almennt ekki umboðsmenn
utan félagsskaparins. Þar sem við-
skiptin gengu vel var hagnaður af því
að vera í þessum félagsskap.
Það er fyrirtækjum mikilvægt að orð-
spor þeirra sé gott. Mörg fyrirtæki
leggja mikið upp úr viðskiptavild til
að tryggja að viðskiptavinurinn komi
aftur og aftur. Í Íslensku ánægjuvog-
inni er metin ánægja viðskiptavina
helstu fyrirtækja í nokkrum atvinnu-
greinum, en sterkt samband er á milli
ánægju viðskiptavinar og tryggð hans
við fyrirtækið. Í Íslensku ánægjuvog-
inni kom Ölgerðin Egill Skallagríms-
son best út við síðustu mælingu.
Meðal fjármálafyrirtækja fengu Spari-
sjóðirnir bestu einkunn og meðal
smásölufyrirtækja kom Olís best út.
Ég átti nýlega viðskipti við þjónustu-
fyrirtæki hér í bæ. Fyrirtækið, sem
auglýsir hraða þjónustu, reyndist ekki
standa undir nafni. Þegar ég reyndi
að ræða við starfsmenn fyrirtækisins í
tilraun til að leysa málið fór lítið fyrir
þjónustulund. Þjónustufyrirtæki lifir
ekki lengi án trausts, en eftir þessi
viðskipti var mitt traust horfið. Við
búum hins vegar í markaðshagkerfi
þar sem samkeppnin er til staðar og
næst vel ég annað fyrirtæki.
ÞJÓÐARBÚSKAPURINN
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
Traust í viðskiptum
21LAUGARDAGUR 19. mars 2005
Það er fyrirtækjum mikilvægt að orðspor þeirra sé gott. Mörg fyrirtæki leggja mikið upp
úr viðskiptavild til að tryggja að viðskiptavinurinn komi aftur og aftur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Össur Kristinsson, frumkvöðullinn
á bak við hátæknifyrirtækið Össur
hf., seldi í gær um helming hluta
sinna í fyrirtækinu. Hann á nú 9,3
prósent í félaginu.
Össur seldi alls þrjátíu milljón
hluti í Össuri og fóru viðskiptin
fram á genginu 80. Það þýðir að
hann fær 2,4 milljarða króna í sinn
hlut.
William Demant Invest, sem er
einn stærsti hluthafinn í Össuri,
keypti þrettán milljón hluti af Öss-
uri. Fjárfestingarfélagið Eyrir, sem
Þórður Magnússon á, keypti tvær
milljónir hluta og Mycenaean Hold-
ing, í eigu Hilmars Janussonar,
keypti einnig tvær milljónir hluta.
Eftir þessi viðskipti á William
Dement Invest 20,2 prósent í Össuri
hf. og Eyrir á 10,5 prósent.
Össur Kristinsson átti um 18,7
prósent í fyrirtækinu áður en við-
skiptin í gær áttu sér stað. - þk
Slæm afkoma af
tryggingarekstrinum
Rekstur tryggingafélaganna af vá-
tryggingastarfsemi var óviðunandi
í fyrra og skýrist gríðarlegur hagn-
aður þeirra fyrst og fremst af hag-
stæðri tíð á fjármálamörkuðum.
Tryggingafélög hagnast annars
vegar af því að selja tryggingar og
hins vegar af því að kaupa og selja
hlutabréf og önnur verðbréf.
Hagnaður Vátryggingafélags
Íslands af vátryggingum var þó
mun betri en hjá samkeppnisaðil-
unum, Sjóvá og Tryggingamiðstöð-
inni. Vátryggingastarfsemi VÍS
skilaði 1.077 milljóna króna hagn-
aði á móti 202 milljónum hjá TM og
77 milljóna tapi hjá Sjóvá.
Tjónaþunginn var mikill og á
síðasta fjórðungi 2004 var tap á
vátryggingastarfsemi allra félag-
anna.
Að mati Davíðs Rúdólfssonar,
hjá greiningardeild KB banka,
skýrist þessi slæma afkoma fyrst
og fremst af mikilli samkeppni á
tryggingamarkaðnum og hárri
tíðni tjóna en auk þess hefur
reynslan sýnt að tjónahlutfall
tryggingafélaganna er jafnan hátt
á þenslutímum sem þessum.
„Það er ljóst að afkoma af sjálf-
um vátryggingarekstri félaganna
er óviðunandi á síðasta ári og fátt
sem bendir til þess að veruleg
breyting verði í þeim efnum á
þessu ári,“ segir hann.
- eþa
TAP Á TRYGGINGASTARFSEMI Tæplega 3,6 milljarða hagnaður Sjóvá í fyrra segir ekki
alla söguna því afkoman af vátryggingastarfsemi var óviðunandi.
AFKOMA TRYGGINGA-
FÉLAGANNA 2004
Afkoma
af trygginga- Hagnaður
starfsemi alls
Sjóvá – 77 3.590
TM + 202 1.980
VÍS + 1.077 2.525
* Tölur í milljónum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Össur selur í Össuri hf.