Fréttablaðið - 19.03.2005, Qupperneq 26
Grænmetisstaðurinn Grænn kost-
ur er tíu ára í dag. Eigandi staðar-
ins, Hjördís Gísladóttir, segir að
margt hafi breyst á þessum tíu
árum varðandi mataræði Íslend-
inga og þeir séu farnir að borða
mun meira af grænmeti. Í tilefni
af afmælinu ætlar Hjördís að
selja rétt dagsins á 450 krónur en
það er sama upphæð og skammt-
urinn kostaði fyrir tíu árum síðan.
„Ég ætla líka að gleðja starfsfólk-
ið með því að fara með það út að
borða. Við ætlum að byrja í for-
drykk heima hjá Ölmu Olsen dótt-
ur minni og svo munum við
tromma niður á 101 hótel þar sem
við ætlum að fá okkur að borða,“
segir Hjördís, sem er mjög stolt á
þessum tímamótum. Kúnnarnir á
Grænum kosti eru langt frá því að
vera allir grænmetisætur heldur
fólk sem hefur bætt grænmetis-
fæði við mataræði sitt. Maturinn
á Grænum kosti hefur alltaf verið
ger-, hveiti- og sykurlaus og
mjólkurvörur hafa ekki verið
brúkaðar nema í sósur og þá
hefur AB mjólk orðið fyrir valinu.
Hjördís segir að grænmetisbuffin
hafi í gegnum tíðina verið vinsæl-
asti maturinn á staðnum en segir
að brokkolíbaksturinn sé að ná
miklum vinsældum núna.
„Í stað þess að nota mjöl í botn-
inn erum við farin að búa hann til
úr byggi, linsum og hrísgrjónum
sem gerir matinn kolvetnissnauð-
ari. Fólk er farið að spá svo miklu
meira í hvað það lætur ofan í sig.
Íslendingar eru mjög hrifnir af
grænmetisréttum með ítölsku
ívafi og því eru þystilhjörtu og
sólþurrkaðir tómatar mikið notað-
ir ásamt ítölskum kryddjurtum,“
segir hún. Uppáhaldsmatur Hjör-
dísar eru próteinbollur með
kasjúhnetusósu sem er nýr réttur
á matseðlinum. Aðspurð um
kúnnahópinn segir Hjördís hann
vera mun breiðari núna heldur en
hann var þegar staðurinn opnaði.
„Eldra fólk sást ekki hérna áður
fyrr en núna er það farið að sækja
staðinn og unglingsstúlkur eru
farnar að koma einar sem voru
vanar að koma með mömmum
sínum þegar þær voru litlar. Mér
finnst það skemmtileg þróun.
Lykilinn að velgengninni er að
vera alltaf með góðan mat, ein-
hverjar nýjungar og að passa vel
upp á hráefnið,“ segir Hjördís,
sem lítur björtum augum til fram-
tíðar og er langt frá því að setjast
í helgan stein. ■
26 19. mars 2005 LAUGARDAGUR
DAVID LIVINGSTONE (1813-1873)
fæddist þennan dag.
TÍMAMÓT:VEITINGASTAÐURINN GRÆNN KOSTUR ER TÍU ÁRA Í DAG
„Ég hef ákveðið að ég ætla ekki að nema staðar
fyrr en ég hef náð á leiðarenda og markmiði mínu.“
Frægastur er trúboðinn og landkönnuðurinn skoski frá Viktoríutímanum
fyrir orðin sem hrutu af vörum Henrys Mortons Stanley þegar fundum
þeirra bar saman í myrkviðum Afríku; „Doktor Livingstone, vænti ég“. Dag-
blaðið New York Herald hafði gert Stanley út af örkinni árið 1869 til að
finna Livingstone, sem hafði veikst og misst samband við umheiminn þar
sem hann leitaði að uppruna Nílar.
timamot@frettabladid.is
Hópur Argentínumanna flaggaði
þjóðfána sínum á bresku nýlend-
unni Falklandseyjum þennan dag
árið 1982.
Viðræður á milli þjóðanna höfðu
staðið yfir í New York í tvo mánuði
en þeim var ýtt til hliðar og Argent-
ínumenn sögðust ætla að reyna að
leysa málið á annan hátt.
Um fimmtíu manna hópur, sem tal-
inn var vera kominn til að hreinsa
upp brotajárn á eyjunni Suður-
Georgíu, reisti fána og lýsti yfir sjálf-
stæði eyjunnar. Bresk stjórnvöld
töldu í fyrstu að um auglýsinga-
brellu væri að ræða. Hópurinn var þó bara byrjunin á
því sem koma skyldi því tveimur vikum síðar réðst
argentínskur her inn í Port Stanley.
Bresk stjórnvöld létu ekki vita af
innrásinni í heimalandi sínu fyrr en
tveimur dögum eftir hana og
nokrum vikum síðar lést fyrsti Bret-
inn sem búsettur var á
Falklandseyjum í átökum við
argentínska herinn.
Þann 25. apríl kom breskur her til
Falklandseyja og létust 655 argent-
ínskir hermenn og 255 Bretar.
Fyrsta maí sama ár létu Breatar
sprengjum rigna yfir Port Stanley
og þann 14. júní gafst argentíski
herinn upp.
Argentínumenn kalla eyjurnar Islas
Malvinas og hafa gert tilkall til þeirra frá því að yfir-
ráðum Spánverja lauk þar. Bretar hertóku
Falklandseyjar árið 1833.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1859 Óperan „Faust“ eftir
Charles Gounod er frum-
sýnd í París.
1908 Bríet Bjarnhéðinsdóttir tek-
ur til máls á bæjarstjórnar-
fundi í Reykjavík, fyrst
kvenna. Tillaga hennar um
fjárveitingu til sundkennslu
fyrir stúlkur var samþykkt.
1917 Hæstiréttur Bandaríkjanna
staðfestir að vinnudagurinn
við lagningu járnbrauta
skuli vera átta tímar.
1925 Hveragos hefst á Reykja-
nesfjallgarði.
1953 Sjónvarpað er í fyrsta sinn
frá Óskarsverðlaunahátíð-
inni, gamanleikarinn Bob
Hope er kynnir.
1971 Tollstöðvarhúsið í Reykjavík
tekið í notkun.
1995 Snjóflóð fellur á verk-
smiðjuhús Vestdalsmjöls á
Seyðisfirði. Ellefu starfs-
menn sluppu naumlega.
Argentíski fáninn á Falklandseyjum
FRÁ FALKLANDSEYJUM
Vegna útfarar okkar ástkæra sonar, bróður,
barnabarns og frænda,
Árna Jens Valgarðssonar
viljum við þakka innilega fyrir allan þann samhug og kærleik sem
okkur hefur verið sýndur á þessum erfiðu tímum.
Með kærri kveðju.
Valgarður, Þóra, Guðmundur Elvar og Daníel frá Sigurðarstöðum
Melrakkasléttu, Brynja Vala, afar, ömmur og aðrir aðstandendur.
Matarvenjur hafa breyst mikið
Í dag verður efnt til mótmæla í
Reykjavík og á Akureyri undir
slagorðinu „Höfnum stríði!“ Til-
efni mótmælanna er að núna um
helgina eru liðin tvö ár liðin „frá
því að ólöglegt árásarstríð
Bandaríkjastjórnar og banda-
lagsríkja hennar í Írak hófst,“
eins og segir í tilkynningu. Þar
kemur fram að um heim allan
efni andstæðingar stríðsrekst-
urs og vígvæðingar til aðgerða
af þessu tilefni.
Í Reykjavík verður stutt dag-
skrá á Ingólfstorgi klukkan tvö,
en að öðru eru aðgerðirnar sagð-
ar táknrænar, þar sem athygl-
inni verður beint að þeim tug-
þúsundum sem látið hafa lífið
vegna stríðsins.
Áréttuð verður krafan um að
hernáminu í Írak ljúki tafar-
laust, írösku þjóðinni verði falin
stjórn eigin mála og refsað
verði fyrir þá stríðsglæpi sem
framdir hafa verið. „Á sama
tíma koma stríðsandstæðingar á
Akureyri saman á Restaurant
Karólína. Þar verður efnt til
fundar, þar sem Kristinn H.
Gunnarsson alþingsmaður og
Anna Rögnvaldardóttir mennta-
skólanemi flytja ávörp.“ Frekari
upplýsingar um aðgerðir dags-
ins er að finna á vefsíðunni
fridur.is/19mars/. ■
AFMÆLI
ANDLÁT
Einþór Jóhannsson, bifreiðarstjóri,
Heiðarvegi 8, Reyðarfirði, lést þriðjudag-
inn 15. mars.
Ari Magnússon, frá Miðhúsum, Strand-
götu 32, Neskaupstað, lést miðvikudag-
inn 16. mars.
Helga Sigríður Gísladóttir, Hæðargarði
2, Reykjavík, lést miðvikudaginn 16.
mars.
Gréta Emilía Júlíusdóttir, húsfrú,
Helgamagrastræti 19, Akureyri, lést
fimmtudaginn 17. mars.
JARÐARFARIR
11.00 Guðmunda Jóhannsdóttir, Hlíf 2,
Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísa-
fjarðarkirkju.
11.00 Hjalti Þórðarson, frá Reykjum á
Skeiðum, Engjavegi 43, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju.
13.30 K. Hartmann Antonsson, Ljós-
heimum á Selfossi, verður jarð-
sunginn frá Selfosskirkju.
14.00 Freddý Friðrik Þórhallsson, Rán-
argötu 10, Grindavík, verður jarð-
sunginn frá Grindavíkurkirkju.
14.00 Magnús Pálsson, Syðri-Steins-
mýri, Meðallandi, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju.
14.00 Magnússína Guðbjörg Nancy
Magnúsdóttir, frá Stapa í Vest-
mannaeyjum, Kambahrauni 30,
Hveragerði, verður jarðsungin frá
Þorlákskirkju.
16.00 Örn J. Jóhannsson, vélvirki,
Höfðastíg 8, Bolungarvík, verður
jarðsunginn frá Hólskirkju í Bol-
ungarvík.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1873
Max Reger, tónskáld.
1936
Ursula Andress,
leikkona.
1947
Glenn Close, leikkona.
1955
Bruce Willis, leikari.
1956
Alina Castro,
dóttir Fídels.
1969
Michael Bergin,
fyrirsæta og leikari.
1976
Rachel Blanchard, leik-
kona.
Sigurður Björnsson
óperusöngvari er 73 ára í
dag.
Friðrik Pálsson hótelhald-
ari er 58 ára í dag.
Leoncia India Martin
(Leoncie) söngkona er 52
ára í dag.
Valgerður Matthíasdóttir
(Vala Matt) arkitekt og sjón-
varpskona er 52 ára í dag.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir,
framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Am-
nesty International, er 51 árs í dag.
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í
stjórnmálafræði, er 47 ára í dag.
Björgólfur Thor Björgólfsson umbreyt-
ingafjárfestir er 38 ára í dag.
Kristján Rúnar Kristjánsson stærðfræð-
ingur er 35 ára í dag.
Sindri Páll Kjartansson kvikmyndagerð-
armaður er þrítugur í dag.
Jakobína H. Árnadóttir, verkefnisstjóri
tóbaksvarna hjá Lýðheilsustofnun, er 28
ára í dag.
Hjónin Bogi Pétursson, fyrrum for-
stöðumaður á Ástjörn, og Margrét
Magnúsdóttir bjóða vinum og fjöl-
skyldu til kaffisamsætis í sal Glerárkirkju
í dag frá klukkan fjögur til sex, í tilefni af
80 ára afmæli Boga hinn 3. febrúar og
75 ára afmæli Margrétar hinn 5. apríl.
WWW.MARCH19TH.ORG Á þessari vef-
síðu er fjallað um mótmæli vegna Íraks-
stríðsins sem fram fara um allan heim
núna um helgina í tilefni af því að tvö ár
eru síðan innrásin hófst. Upplýsingar um
mótmæli hér er að finna á slóðinni
fridur.is/19mars/.
Íraksstríðinu mótmælt í dag
HJÖRDÍS GÍSLADÓTTIR Stofnaði Grænan kost fyrir tíu árum. Hér er hún ásamt dóttur sinni, Ölmu Olsen, sem er rekstrarstjóri staðarins.