Fréttablaðið - 19.03.2005, Side 72
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands sl. fimmtudagskvöld voru flutt
verk eftir Engelbert Humperdinck,
Pjotr Tsjækofskí, Franz Liszt, Cesar
Franck, Anatoly Liadov og
Gustav Holst. Hljómsveit-
arstjóri var Owain Arvel
Hughes frá Bretlandi og
einleikari á píanó Liene
Circene frá Lettlandi.
Af upptalningunni hér
að ofan má sjá að efnis-
skráin var fjölbreytt. Hvað
telst klassísk tónlist er
stöðugum breytingum háð
og ræðst af því sem sam-
staða er um á hverjum
tíma. Nýtt verk getur ekki
talist klassískt því reynsla
er ekki komin á endingu
þess. Tónlistarsagan sýnir
að mjög algengt er að tón-
verk fái engar eða lélegar
undirtektir í upphafi, þótt
síðar sannfærist menn um að þau
séu klassísk. Hið öfuga er jafnal-
gengt. Það eru því góð rök fyrir því að
halda tónverkum í endurskoðun, þ.á
m. þeim sem telja má á jaðri hins
klassíska. Segja má að þetta hafi öðr-
um þræði verið viðfangsefnið á þess-
um tónleikum Sinfóníuhljómsveitar-
innar því sum af verkunum sem
þarna voru flutt eru ef till vill ekki
örugg um langlífi, enda þótt þau séu
vel þekkt.
Forleikur Humperdincks að óper-
unni Hans og Grétu er ekki sérlega
bragðmikill en lætur þekkilega í eyr-
um. Vel má vera að hann endist enn
um hríð því byggingin er góð og
samfelld. Það verður hins vegar ekki
sagt um Dauðadans Franz Liszt, sem
er heldur sundurlaust verk. Það er
kallað konsertmeistaramúsík þegar
ytra byrði og skraut kæfir lítið inni-
hald. Dauðadans er slík tónlist og
gildir um það sem sum önnur verk
hins mikla píanóleikara að þau eru
fyrst og fremst flutt vegna þess að
píanótækni Liszts er skyldufag í
píanóskólum heimsins.
Sú var tíðin að menn settu út á
Tsjækofskí, afgreiddu hann á klæð-
skeramáli og sögðu að saumarnir
sæust í verkum hans auk þess sem
hann væri útkjálkamaður. Tónlist
hans hefur fyrir löngu hrist allt slíkt af
sér. Ástæðan er einföld. Hún er sam-
in af ósvikinni snilligáfu eins og mátti
heyra í þáttunum úr ballettsvítunni
Þyrnirós sem þarna voru fluttir. Í
brúðardansinsum í fimmta þætti er
laglína af því tagi sem smýgur inn í
sál manns þegar í æsku og dvelur
þar. Þegar hún heyrist síðar á lífsleið-
inni er það eins og að hitta elskaðan
nákominn ættingja.
Les Djinn eftir Franck virðist skorta
skýrleika og virkni a.m.k. framan af. Ekki
fer þó milli mála að töluvert gutlar á höf-
undinum. Hið krómatíska tónamál hans
er heillandi og meginlaglínan í píanóinu
er frumleg og falleg. Ekkert slíkt verður
sagt um tónaljóðin tvö, Baba
Jaga og Töfravatnið, eftir Li-
adov. Hér er allt einfalt skýrt
og einkar þekkilegt, en í heild
heldur lítið við að vera fyrir
hlustandann. Miðbikið á ball-
ettinum úr óperunni Perfect
Fool eftir Holst hljómaði
einnig heldur tíðindalítið.
Upphafið og endirinn er að
sama skapi hressilegur og
áheyrilegur með svipuðum
hætti og hinar frægu Plánet-
ur hans, en þó engin viðbót
þar við.
Liene Circene lék ein-
leikshlutverkið í bæði Liszt
og Franck af glæsibrag
með öruggri tækni og
góðum tóni. Fróðlegt gæti
verið að heyra hana leika verk sem
meira reyndu á túlkunarhæfileika.
Hljómsveitin var óhrein á stöku stað
framan af en spilaði að öðru leyti vel
og óx ásmegin er á leið. Hljómsveit-
arstjórinn þekkti verkin vel og
stjórnaði af sannfæringu. Best
hljómaði Holst. Þar voru töluverð til-
þrif á köflum. ■
19. mars 2005 LAUGARDAGUR
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Í kvöld kl 20, Su 20/3 kl 20, Lau 9/4 kl 20,
Su 10/4 kl 20 Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Lau 2/4 kl 14 - Aukasýning
Su 3/4 kl 14 - Aukasýning
Lokasýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana.
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 15, Fi 24/3 kl 20,
Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20, Su 20/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA.
Su 20/3 kl 20, Su 3/4 kl 20
- Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson. Í samstarfi við
Hið lifandi leikhús.
Fi 31/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20
Síðustu sýningar
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Su 20/3 kl 21 BREYTTUR SÝNINGARTÍMI!
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 20,
Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 2/4 kl 20 UPPSELT,
Fi 14/4 kl 20, Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Í kvöld kl 20, Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20
Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - SÓLÓ
Tinna Þorsteinsdóttir Í dag kl 15.15
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
„Ég hef í nokkur ár haft mikinn
áhuga á þessu fyrirbæri sem er
kallað prepared piano,“ segir
Tinna Þorsteinsdóttir píanóleik-
ari. Hún ætlar að flytja nokkur
tuttugustu aldar píanóverk á tón-
leikum í Borgarleikhúsinu í dag,
og bera tónleikarnir yfirskriftina
„Hið vel undirbúna píanó“.
Undirbúningurinn felst í því að
ýmiss konar hlutir eins og til
dæmis skrúfur, boltar, plast,
gúmmí og strokleður eru settir á
milli strengjanna í hljóðfærinu,
þannig að hljómurinn verður allt
annar en sá sem venjulega kemur
úr píanói.
„Ég hef verið að koma mér upp
kittinu mínu, sem er safn af skrúf-
um og alls konar furðulegu dóti til
að nota við þetta. Það er voða
gaman fyrir píanóleikara að fást
við önnur hljóð en venjulega.
Píanóið verður þá eins konar slag-
verkshljómsveit.“
Á tónleikunum flytur hún verk
eftir John Cage, Christian Wolff,
Morton Feldman, Helmut Lachen-
mann og Giacinto Scelsi.
„Ég byrja á verkinu eftir
Lachemann, sem er óhefðbundn-
asta verkið. Þar er tónskáldið að
spyrja sig hvernig maður á að
spila á þetta hljóðfæri, og þar geri
ég eiginlega allt annað en að spila
á nótnaborðið. Ég er að berja það
að utan og gera alls konar hluti.“
Í næstu tveimur verkum, sem
eru eftir Cage og Wolff, spilar hún
reyndar á nótnaborðið, en þá
koma ekki nein hefðbundin píanó-
hljóð út úr hljóðfærinu vegna
þess hve vel hún hefur undirbúið
það.
„Síðan þoka ég mig loks ofur-
hægt yfir í venjulega tónlist, ef
það má kalla hana það. Það verður
spurning hvað hljómar eðlilega
eftir allt hitt.“
Tinna segist hafa óskaplega
gaman af því að útvíkka hljóð-
heim píanósins, sem hún segir
vera mjög lærdómsríkt fyrir
píanóleikara og víkka svolítið
sjóndeildarhringinn.
„Mér finnst til dæmis gaman
að ímynda mér hvað myndi gerast
ef píanó væri sett fyrir framan
einhvern sem kæmi úr öðrum
heimi. Hann sæi ekkert endilega
strax fyrir sér hvernig ætti að
spila á þetta stóra hljóðfæri.“ ■
Píanói breytt í slag-
verkshljómsveit
Ævintýraheimur H.C. Andersen
Ævintýraleg leikhúsveisla!
TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR Hefur gaman af að líta á píanóið sem framandlegt fyrirbæri
sem hægt væri að spila á með margvíslegum hætti.
■ TÓNLEIKAR
Bland í poka
TÓNLIST
FINNUR TORFI STEFÁNSSON
Liene Circene
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Niðurstaða: Liene Circene lék einleikshlut-
verkin af glæsibrag með öruggri tækni og
góðum tóni. Hljómsveitin var óhrein á stöku
stað framan af en óx ásmegin er á leið.
EINLEIKARINN Liene Circene lék einleik á píanó með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands á fimmtudaginn.