Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
● tíska ● ferðir ● heimili
Gylltir ömmuskór
og blúndupils
ARNBJÖRG HLÍF VALSDÓTTIR:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Hestafer›ir, gisting,
söfn og ævint‡rafer›ir
Á FARALDSFÆTI Í ALLT SUMAR:
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Opið í da
g
13-17
Sérfræðingur kallaður til:
Daví›
Oddssyni
var hóta›
LÖGREGLA Maður kom í utanríkis-
ráðuneytið í gær með böggul með-
ferðis og hafði í hótunum við Davíð
Oddsson utanríkisráðherra.
Aðstoðarmaður Davíðs sagði mann-
inn hafa litið út eins og hann gengi
ekki heill til skógar og því var
kallað á lögreglu.
Þegar lögreglan kom á staðinn
ákvað hún að kalla til sprengjusér-
fræðing til að kanna innihald bögg-
ulsins. Hann innihélt eingöngu
pappírsdrasl og var því lítil hætta á
ferðum. Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn sagði að Maðurinn væri
góðkunningi lögreglunnar og hefði
gert svipaðan óskunda áður. Hann
var fluttur í fangageymslur. -ghs/oá
BRETLAND Bretar ganga að kjör-
borðinu í dag og kjósa sér nýtt
þing. Þótt allt útlit sé fyrir ör-
uggan sigur Verkamannaflokks-
ins hefur lokasprettur kosninga-
baráttunnar verið snarpur.
Tony Blair forsætisráðherra
varaði í gær stuðningsmenn
Verkamannaflokksins við of
mikilli sigurvissu og sagðist ekki
vilja hugsa þá hugsun til enda ef
íhaldsmenn kæmust til valda.
Michael Howard, leiðtogi þeirra,
sagði hins vegar að „nýr kafli
vonar“ myndi hefjast í sögu
landsins næði hann kjöri.
Skoðanakönnun sem birt var í
dagblaðinu The Times í gær sýn-
ir að Verkamannaflokkurinn
fengi 41 prósent atkvæða, íhalds-
menn 27 prósent og frjálslyndir
demókratar 23 prósent. Þetta er
versta útreið íhaldsmanna í
könnunum fyrir þessar kosning-
ar.
Skoðanakannanir undanfarna
daga benda til að Verkamanna-
flokkurinn muni fá að minnsta
kosti áttatíu sæta meirihluta í
neðri deild þingsins, en
undanfarið kjörtímabil var
ríkisstjórnin með 161 manns
meirihluta.
Einnig benda skoðana-
kannanir til að fylgi Frjálslyndra
demókrata muni aukast til muna
og þeir fái vel yfir fimmtung
greiddra atkvæða.
Sjá nánar síðu 14
Bresku þingkosningarnar eru haldnar í dag:
Útlit fyrir stórsigur Tony Blair
LÍFEYRISMÁL Karl Steinar Guðnason,
forstjóri Tryggingastofnunar ríkis-
ins, segist telja skynsamlegt að
hækka þau tekjumörk sem öryrkj-
ar mega hafa án þess að örorku-
bæturnar skerðist. Tekjutrygging-
araukanum er þannig háttað nú að
hann skerðist frá fyrstu krónu sem
viðkomandi fær í tekjur.
„Við komumst ekkert í gegnum
almannatryggingar án þess að
hafa tekjutengingar,“ sagði Karl
Steinar. „Sprengjan sem varð með
örorkudómunum snerist mikið um
það að skerðingarmörkin voru allt
of lág. Ég hygg að það sé skyn-
samlegt að hækka þau, en hef ekki
myndað mér skoðun á því hversu
mikil sú hækkun ætti að vera.“
Karl Steinar sagði að þegar
rætt væri um mikla fjölgun ör-
yrkja nú mætti halda því til haga
að Tryggingastofnun hefði vakið
athygli á þeirri þróun í apríl á síð-
asta ári með skýrslu sinni. Hins
vegar væru það rangfærslur að
öryrkjar væru hlutfallslega fleiri
hér en á hinum Norðurlöndunum.
„Eigi að síður gefur þróunin
hér ástæður til að athuga málin í
heild og hafa uppi úrræði sem
duga til þess að forða fólki frá ör-
orku,“ sagði Karl Steinar.
„Þar er starfsendurhæfing
mikilvæg. Við tölum fyrir því að
reynt verði að hafa áhrif á þessa
þróun með aukinni slíkri endur-
hæfingu. Langvarandi atvinnu-
leysi er heilsuspillandi. Það er
nokkuð sem menn verða að átta
sig á.“
„Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að hvetja þurfi menn, en
ekki letja, til að fara út á vinnu-
markaðinn,“ sagði Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra. „Ef þetta
hlutfall er með þeim hætti að það
letur menn til að taka þátt í samfé-
laginu er það eitt af þeim atriðum
sem kæmu til skoðunar.“
Ráðherra kvaðst ekki geta sagt
neitt um ákvarðanir í þessum efn-
um og ekki geta breytt þessum
mörkum með einu pennastriki.
Það yrði að gerast í tengslum við
fjárlög og lagabreyting þyrfti að
koma til. -jss
FERÐIR INNANLANDS
73%
20-49 ára fólks á sv-
horninu lesa Fréttablaðið
á laugardögum.*
Hver vill ekki fá þetta fólk
í heimsókn í sína verslun?
*Gallup febrúar 2005
BJARTVIÐRI SYÐRA Smáskúrir eða slydduél
á Norður- og Austurlandi. Hiti 1-5 stig
nyrðra en allt að 10 stig syðra yfir miðjan
daginn. Kólnandi veður. VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
Haukar meistarar?
Haukar verja
Íslandsmeistaratitil
sinn í handknattleik
leggi þeir Eyjamenn
að Ásvöllum í kvöld.
ÍÞRÓTTIR 30
5. maí 2005 - 119. tölublað – 5. árgangur
Vor- og sumartískan
Er undir fjölþjóðleg-
um áhrifum með
víðum mynstruð-
um pilsum, afrísk-
um tréskartgripum
og hippalegum
indverskum
mussum.
FÓLK 40
VEÐRIÐ Í DAG
Fagnar fimmtugsafmæli
Pétur Þorsteinsson, prestur
Óháða safnaðarins, vill fá
smettissmér til að fylla upp í
hrukkurnar í afmælisgjöf.
TÍMAMÓT 22
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
H
Öryrkjar fái a› afla
sér hærri tekna
Karl Steinar Gu›nason, forstjóri Tryggingastofnunar, vill a› tekjumörk
öryrkja ver›i hækku›, flannig a› fleir hafi svigrúm til fless a› fóta sig
aftur á vinnumarka›i án fless a› örorkubæturnar sker›ist.
Satúrnus:
Tólf tungl
bætast vi›
GEIMURINN Stjörnufræðingar hafa
fundið tólf ný tungl sem eru á spor-
baug um Sat-
úrnus. Þekkt
tungl plánet-
unnar eru því
orðin 46.
Tunglin tólf,
sem vísinda-
menn við
Hawaii-háskól-
ann fundu með
sérlega öflug-
um sjónauka af
Subaru-gerð,
eru flest aðeins
3-7 kílómetrar í
þvermál. Þau
eru óregluleg í laginu og snúast í
gagnstæða átt við stóru tunglin.
Júpíter er þó enn sú reikistjarna
sem flest tungl hefur, 63 talsins, en
27 tungl hverfast um Úranus og
þrettán um Neptúnus. Þrátt fyrir
mismunandi stærð snýst svipaður
fjöldi smátungla um stóru reiki-
stjörnurnar fjórar og er sú stað-
reynd vísindamönnum ráðgáta. ■
UNDUR GEIMSINS 46
tungl eru nú talin snú-
ast um Satúrnus.Herða tökin á RÚV
Jón Ásgeir Sigurðsson útvarps-
maður segir nýtt frum-
varp um Ríkisútvarp-
ið til þess fallið að
herða kverkatak
stjórnmálamanna á
stofnuninni.
SKOÐUN 19
SPRENGJUSÉRFRÆÐINGURINN Arnór Eyþórsson, sprengjusérfræðingur hjá sérsveit lögreglunnar, ber böggulinn út úr utanríkisráðuneytinu.
01 Forsíða ok 4.5.2005 22:43 Page 1