Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 62
Ambrosini tryggði sigurinn
30 5. maí 2005 FIMMTUDAGUR
> Við hvetjum ...
... Hafnfirðinga og aðra íþrótta-
áhugamenn að fjölmenna á
Ásvelli í kvöld og fylgjast með
þriðja leik Hauka og ÍBV í
úrslitum DHL-deildar
karla í handbolta.
Haukar geta innbyrt
Íslandsmeistaratitilinn
með sigri í kvöld.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... íslensku unglinga-
landsliðunum í
körfubolta sem hófu
leik á Norðurlanda-
mótinu í Svíþjóð í
gær. Sér í lagi liði drengja
fæddum 1987 og síðar
sem unnu frækinn sigur á
Svíum 79–77. Brynjar Þór
Björnsson átti stórleik og
var með þrefalda tvennu.
Heyrst hefur...
... að áhrifamenn innan handknatt-
leikshreyfingarinnar séu að skoða
þann möguleika hvort hægt sé að
bjarga stórskyttunni Tite Kalandadze
um íslenskan ríkisborgararétt enda
vantar íslenska landsliðið
tilfinnanlega mann eins og Tite í
liðið. Ekki er þó vitað hvort Tite hafi
yfir höfuð áhuga á að gerast
íslenskur ríkisborgari.
Tveir leikmenn eru til skoðunar hjá
Landsbankadeildarliði ÍA en þeir hyggj-
ast styrkja lið sitt fyrir komandi átök í
Landsbankadeildinni. Annar leikmann-
anna er Scott Cassie sem boðaði komu
sína til Akranes í lok janúar en hefur nú
loks skilað sér enn hinn er huldumaður
með frægt ættarnafn.
Cassie getur bæði leikið sem miðju-
maður og sóknarmaður og ætti það að
gefa Skagamönnum nýja vídd enda
hafa þeir verið að leita að sóknarmanni.
Að sögn Eiríks Guðmundssonar, for-
manns meistaraflokksráðs ÍA, vita menn
minna um hinn leikmaninn sem ættað-
ur er frá Senegal. „Sá er víst sóknar-
maður og hefur spilað í Frakklandi en
er Senegali og heitir Cissé, meira veit
ég ekki,“ sagði Eiríkur en Cissé kemur
fyrir milligöngu Mihajlo Bibercic sem
lék með ÍA á árum áður. Ekki er vitað
hvort hann sé tengdur hinum fræga
framherja Liverpool, Djibril Cissé.
Aðspurður sagði Eiríkur að óvíst
væri með komu leikmanna frá
enska 1.deildarliðinu Reading. „Þau
mál eru enn óljós þar sem Rea-
ding vill ekki gefa okkur svar
fyrr en ljóst er hvort þeir
fari í umspil eða ekki, það
gæti jafnvel verið of
seint fyrir okkur,“
bætti Eiríkur við.
Bæði Cassie og Cis-
se munu leika æfingaleik
með ÍA á morgun gegn Víkingi upp á
Skipaskaga. Eiríkur sagði jafnframt að
allar líkur væru á því að félagið semdi
við Igor Pesic sem hefur verið til reynslu
hjá félaginu. „Ég á von því að við
semjum við Pesic, hann spilar einnig
með okkur á morgun og það eru all-
ar líkur á því að honum verði boð-
inn samningur“. Það
verður forvitnilegt
að sjá hvort
þessir leik-
menn
koma
til
með
að styrkja lið
Skagamanna sem
hafa verið einkar
óheppnir með út-
lendinga undanfar-
in ár.
Eftir a› li›smönnum PSV Eindhoven haf›i tekist hi› ómögulega og ná› a› vinna upp forskot AC
Milan eftir fyrri leik li›anna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar kom mark Massimo
Ambrosini á lokamínútum leiksins eins og blaut tuska í andlit Hollendinganna.
SKAGAMENN STYRKJA SIG FYRIR SUMARIÐ: MEÐ TVO STERKA MENN TIL REYNSLU
Cissé kominn til Skagamanna
FÓTBOLTI Síðari leik PSV
Eindhoven og AC Milan í undan-
úrslitum Meistaradeildar Evrópu
lauk með 3–1 sigri fyrrnefnda
liðsins. Það dugði þó ekki til því
AC Milan, sem vann fyrri leikinn
á heimavelli 2–0, komst áfram á
marki skoruðu á útivelli. Það var
Massimo Ambrosini sem skoraði
mark AC Milan í gær í lok
venjulegs leiktíma.
Kóreumaðurinn Ju-Sing Park
kom sínum mönnum yfir á 9.
mínútu leiksins með frábæru
marki og skoraði Philip Cocu
annað mark PSV eftir sendingu
frá öðrum Kóreumanni, Young-
Pyo Lee. Allt útlit var fyrir að
leikurinn yrði framlengdur en
mark Ambrosini gerði út um
vonir heimamanna. Jafnvel þótt
Philip Cocu bætti við þriðja marki
PSV í uppbótartíma lá ljóst fyrir
að það myndi ekki duga til.
Einbeittur sigurvilji PSV
Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan,
reyndi fyrir leikinn að byggja á
því forskoti sem liðið hafði eftir
fyrri leikinn og pakkaði þétt á
miðjuna og var með Andriy
Shevchenko einan í framlínunni.
Vörn AC Milan hefur staðið sig
afbragðs vel í vetur og var það
ekki óvarlega áætlað fyrirfram.
En leikmenn PSV mættu gífurlega
einbeittir til leiks og lögðu allt í
sölurnar. Það borgaði sig strax á 9.
mínútu leiksins og skömmu áður
hafði Jan Vennegor Hesselink átti
hættulega bakfallsspyrnu.
Eftir markið átti Hasselink
annað hættulegt skot að marki
eftir aukaspyrnu Mark van
Bommel en skotið hafnaði í slánni.
AC Milan átti einnig sín færi
en sigurmarkið kom ekki fyrr en
rétt undir lok leiksins.
Ancelotti hafði þá bætt við
sóknarkraft AC Milan og sett inn
á Jon Dahl Tomasson sem skoraði
í uppbótartíma í fyrri leik liðanna.
Guus Hiddink, þjálfari PSV, hafði
einnig sett inn sóknarmann, hinn
brasilíska Robert, en allt kom
fyrir ekki. Ambrosini stóð óvald-
aður í teignum þegar hann skall-
aði fram hjá Gomes í marki
heimamanna.
Mark van Bommel var vitan-
lega allt annað en kátur í leikslok.
„Við áttum skilið að vinna því við
vorum betra liðið. Við getum sjálf-
um okkur um kennt því við leyfð-
um þeim að skora mörkin sín þrjú
í lok þriggja af þeim fjórum hálf-
leikjum sem í rimmunni voru.“
Vorum heppnir
Þjálfari AC Milan viðurkenndi að
heilladísirnar hefðu verið á bandi
sinna manna. Varnarjaxlinn Jaap
Stam samsinnti því og bætti við að
„PSV lék mjög vel í leiknum og
áttum við bara eitt tækifæri í hon-
um – en það dugði til.“
Úrslitaleikur AC Milan og
Liverpool fer fram í Istanbúl í
Tyrklandi 25. maí næstkomandi.
Milan vann þennan titil fyrir
tveimur árum þegar liðið vann
Juventus í vítaspyrnukeppni á
Old Trafford í Manchester. Var
það í sjötta sinn sem Milan lyfti
Evrópumeistaratitlinum en úr-
slitaleikurinn gegn Liverpool
verður sá tíundi sem liðið leikur.
eirikurst@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Miðvikudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
17.00 KR og Þróttur mætast í
úrslitum deildabikars karla í knattspyrnu
en leikið er í Egilshöll.
19.40 Haukar og ÍBV mætast á
Ásvöllum í úrslitum DHL-deildarinnar í
handknattleik.
■ ■ SJÓNVARP
13.25 Formúlukvöld á Rúv.
13.50 HM í íshokkíi á Rúv.
17.50 Olíssport á Sýn.
19.05 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
19.35 Íslandsmótið í handbolta á
Rúv. Bein útsending frá þriðja leik Hauka
og ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn.
20.00 Inside the US PGA Tour
2005 á Sýn.
20.30 Þú ert í beinni! á Sýn.
22.00 Bikarmótið í fitness 2005 á
Sýn.
23.15 Þú ert í beinni! á Sýn.
00.10 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
Verða Haukar Íslandsmeistarar í kvöld?
ÍBV er komi› upp a› vegg
HANDBOLTI Haukar taka á móti
ÍBV í þriðja leik úrslitanna um
Íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik. Með sigri í leiknum
geta Haukar tryggt sér titilinn en
staðan er 2-0 liðinu í vil.
Fyrstu tveir leikir rimmunnar
voru hnífjafnir og þurfti til að
mynda að grípa til framlengingar
til að ná fram úrslitum í þeim síð-
asta. Geir Sveinsson, fyrrum
landsliðsmaður í handknattleik,
sagði að merkilegt hefði verið að
sjá Eyjamenn springa á limminu
í síðasta leik eftir að hafa haft
leikinn í hendi sér. „Það kom mér
mjög á óvart því ég hélt að þeir
yrðu sterkari á sínum heimavelli
en þarna spilaði inn í reynsla
Haukanna því þeir hafa jú verið í
þessari stöðu áður,“ sagði Geir.
„ÍBV er núna komið upp að vegg
en ég neita að trúa því að Eyja-
menn séu búnir að gefast upp.
ÍBV hefur unnið Hauka á Ásvöll-
um í deildinni í vetur þannig að
ég hef alveg trú á því að liðið geti
klórað aðeins í bakkann og unnið
útileikinn. Ég spái því og þá aðal-
lega handboltans vegna til að
halda lífinu í þessu.“
Fari Haukar með sigur af
hólmi í kvöld verður það í fyrsta
sinn sem karla- og kvennalið fer
taplaust í gegnum úrslitarimmu
gegn sama félagi. Geir taldi ÍBV
hafa alla burði til að vinna og
halda keppninni gangandi. „Svo
verður það að koma í ljós hvort
Eyjamenn standast þrýstinginn
þegar á hólminn er komið,“ sagði
Geir Sveinsson. - sj
HVAÐ GERIR TITE? Tite Kalandadze hefur farið á kostum með ÍBV í úrslitakeppninni þótt
oft hafi hann verið tekinn mjög hörðum tökum. Hann þarf að ná toppleik ásamt
félögum sínum í kvöld ef ÍBV vill halda lífi í einvíginu við Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
GLEÐI OG VONBRIGÐI Leikmenn AC Milan fagna eftir að í ljós kom að síðbúið mark Massimo Ambrosini hefði tryggt farseðilinn í úrslita-
leik Meistaradeildar Evrópu þar sem Ítalirnir mæta Liverpool. Vonbrigði leikmanna PSV Eindhoven leyndu sér ekki eftir leikinn. AP
Enska úrvalsdeildin:
Newcastle
sigra›i
FÓTBOLTI Einn leikur var á dagskrá
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Fulham tók á
móti Newcastle á heimavelli sín-
um Craven Cottage og þurftu að
sætta sig við 3-1 tap. Sigurinn var
Newcastle nokkuð auðveldur og
eftir að Darren Ambrose hafði
komið gestunum yfir í fyrri hálf-
leik, gerðu þeir Patrick Kluivert
og Shola Ameobi út um leikinn í
síðari hálfleiknum með hvor sitt
markið. Tomasz Radzinski minnk-
aði muninn fyrir Fulham fjórum
mínútum fyrir leikslok, en það
var liðinu lítil sárabót.
Newcastle er í tólfta sæti deild-
arinnar með 43 stig, en þetta var
fyrsti sigur þeirra í síðustu sjö
leikjum og fyrsti útisigur þeirra
síðan í nóvember. ■
62-63 (30-31) Sport fyrri 4.5.2005 22:26 Page 2