Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 2
2 5. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála:
Sjóvá grei›i 27 milljónir
SAMKEPPNISMÁL Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála staðfesti í gær
úrskurð samkeppnisráðs um að
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
skuli greiða 27 milljóna króna
stjórnvaldssekt vegna brots á 10.
grein samkeppnislaga.
Málið kom upphaflega fram í
júlí 2002 þegar starfsmaður bíla-
réttingafyrirtækis tjáði Sam-
keppnisstofnun að VÍS, TM og
Sjóvá væru öll að setja upp svo-
kallað Cabas-tjónamatskerfi til að
staðla þá vinnu sem unnin er við
réttingar og sprautun á tjónabif-
reiðum og að öll félögin settu upp
sama verðið samkvæmt kerfinu.
Bæði VÍS og TM gengust við
því að hafa brotið á 10. grein sam-
keppnislaga og náðu sáttum við
samkeppnisráð um sektargreiðsl-
ur, VÍS upp á 15 milljónir og TM
upp á 18,5 milljónir. Sjóvá gekkst
hinsvegar ekki við brotinu og
þurfti því stjórnvaldsúrskurð
samkeppnisráðs til. Samkeppnis-
ráð sektaði Sjóvá-Almennar um
27 milljónir. Þeim úrskurði var
áfrýjað til áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála sem staðfesti úr-
skurðinn í gær. Sjóvá hefur nú
mánaðarfrest til að greiða sektina
en getur engu að síður farið með
málið fyrir almenna dómstóla. -oá
Olíufélögin hafa öll borgað:
Synja› um bankaábyrg›
OLÍUSAMRÁÐ Bæði Ker, eignar-
haldsfélag Essó og Olís hafa nú
fylgt í fótspor Skeljungs og lok-
ið við að borga stjórnvaldssekt
vegna ólöglegs samráðs olíu-
félaganna. Þetta ákváðu félögin
að gera eftir að fjármálaráðu-
neytið synjaði beiðni þeirra um
að fá að leggja fram bankaá-
byrgð þar til niðurstaða dóm-
stóla liggur fyrir í málinu.
Kristinn Hallgrímsson, lög-
maður Kers, sagði þó fyrirvara
hafa verið settan við greiðsluna
þar til endanleg niðurstaða ligg-
ur fyrir í málinu. Eins sagði
hann í viðtali við Fréttablaðið að
honum þætti furðulegt að ráðu-
neytið hefði synjað olíufélögun-
um um bankaábyrgð þar sem
fordæmi fyrir slíku lægju fyrir
og því væri skyndilega ný
stefna komin upp í fjármála-
ráðuneytinu.
Alls hafa olíufélögin því
greitt rúman einn og hálfan
milljarð í sekt.
Málið verður að öllum líkind-
um þingfest í héraði snemm-
sumars. -oá
Stimpilgjaldi› áfram
Jóhanna Sigur›ardóttir segir rá›herraræ›i kæfa gó›an vilja Péturs Blön-
dal til a› afgrei›a frumvarp um afnám stimpilgjaldsins. Pétur segir hana
brjóta trúna› í störfum nefndarinnar og kve›st ekki hafa lofa› neinu.
STIMPILGJALDIÐ Jóhanna Sigurðar-
dóttir, þingmaður Samfylkingar-
innar, segir að Pétur Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
og formaður efnahags- og við-
skiptanefndar, hefði haft góð orð
um að frumvarp um afnám stimp-
ilgjalds vegna skuldbreytinga
yrði afgreitt fyrir þinglok. „Það er
ljóst að formaður nefndarinnar
hefur verið gerður afturreka í sín-
um eigin þingflokki. Þingræðið er
ofurselt ráðherraræðinu í þessu
máli sem öðrum,“ segir Jóhanna.
Pétur Blöndal
kveðst engu hafa
lofað um málið
þótt hann hafi vilj-
að marka þá
stefnu að skoða
þingmannafrum-
vörp með velvilja
í nefndinni. „Það
er ljóst að ég mun
hugsa mig tvisvar
um ef ég sæti fyr-
ir það ámæli af
hálfu stjórnarand-
stæðinga,“ segir Pétur. Hann telur
Jóhönnu hafa brotið trúnað varð-
andi umræður í efnahags- og við-
skiptanefnd með ummælum sín-
um á Morgunvakt Ríkisútvarps-
ins í gærmorgun. Jóhanna biður
Pétur um að finna þessu stað. Hún
hafi hvergi talað um loforð heldur
góðan vilja formannsins til að
koma málinu áfram. „Ég hef að-
eins brugðist við því sem Pétur
hefur sagt í fjölmiðlum.“
Pétur segir stimpilgjaldið vit-
lausan skatt og óréttlátan. „Það
sem mælir móti afnámi hans í
einu lagi er að það er skylda ríkis-
valdsins að gæta að ákveðnum
stöðugleika. Þessar miklu upp-
greiðslur, sérstaklega hjá Íbúða-
lánasjóði, fela í sér ákveðna
hættu, bæði varðandi stöðu hans
og stöðugleika en einnig gagnvart
íbúðaverði. Það kann að hækka
enn frekar með afnámi gjaldsins.
Þannig að stimpilgjaldið hefur
virkað sem ákveðin bremsa á
þetta.“
Pétur segir að síðast en ekki
síst sé nauðsynlegt að hafa stöðu
ríkissjóðs í huga. „Þessu má ekki
gleyma, sérstaklega þegar búið er
að fella niður eignaskatt og lækka
tekjuskatt og erfðaskatt. „Það
stóð heldur ekki til af minni hálfu
að gera þetta strax, heldur mögu-
lega frá næstu áramótum og gera
það þá í þrepum til þess að ógna
ekki stöðugleika,“ segir Pétur
Blöndal.
Árlegar tekjur ríkissjóðs af
stimpilgjaldinu nema um sex
milljörðum króna. Frá september
í fyrra fram í febrúar á þessu ári
voru tekjur ríkissjóðs af stimpil-
gjöldum um 2,7 milljörðum meiri
en á sama tímabili ári áður.
johannh@frettabladid.is
RÚV-frumvarpið:
Stefnt a›
afgrei›slu
ÞINGSTÖRF Gunnar I. Birgisson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
og formaður menntamálanefndar
Alþingis, segir enn stefnt að því
að afgreiða frumvarp um Ríkisút-
varpið á yfirstandandi þingi. „Við
höldum áfram vinnu við frum-
varpið í nefndinni fyrir og eftir
helgi og gerum breytingar á því
reynist það nauðsynlegt.“
Skiptar skoðanir eru um frum-
varpið í óbreyttri mynd, einnig
meðal stjórnarliða. Þá hefur
frumvarpið verið gagnrýnt meðal
annars í umsögnum BHM og
BSRB. -jh
Auglýsingar Og1:
Engin
athugasemd
SAMKEPPNISMÁL Samkeppnisstofn-
un gerði engar athugasemdir við
Og1 auglýsingar Og Vodafone en
Landssíminn kvartaði yfir því að
auglýsingarnar væru ólögmætar.
Landssíminn taldi að ekki hafi
komið fram með nógu skýrum
hætti í auglýsingunum hvað
áskriftarleiðin Og1 kostaði og
taldi þær þar með brot á 21. grein
samkeppnislaga en þar stendur:
„Óheimilt er að veita rangar,
ófullnægjandi eða villandi upplýs-
ingar í auglýsingum...“
Samkvæmt úrskurði Sam-
keppnisstofnunar eru allar slíkar
upplýsingar nægilega skýrar í
auglýsingu Og Vodafone. -oá
Nýr safnstjóri valinn:
Einróma álit
LISTASAFN REYKJAVÍKUR Hafþór
Yngvason hlaut í gær einróma til-
nefningu menningar- og ferða-
málaráðs Reykjavíkurborgar í
stöðu safnstjóra Listasafns
Reykjavíkur. Þar með samþykkti
ráðið tillögu ráðgjafahóps sem
mælti með Hafþóri í stöðuna með
fulltingi ráðningarskrifstofu IMG
Mannafla Liðsauka. Alls voru tutt-
ugu umsækjendur um stöðuna.
Hafþór er 47 ára gamall og hef-
ur lokið tveimur mastersgráðum,
í heimspeki og listfræði, báðum
frá bandarískum háskólum.
Hafþór tekur við stöðunni 1. sept-
ember næstkomandi og sam-
kvæmt samþykkt Reykjavíkur-
borgar er honum heimilt að gegna
embættinu í allt að átta ár. -oá
Sjávarútvegsráðherra:
Bæta stjórn
úthafsvei›a
SJÁVARÚTVEGUR Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra tók þátt í
fundi sjávarútvegsráðherra
sautján ríkja sem fór fram í
Kanada 1.-3.1 maí. Á fundinum
samþykktu ráðherrarnir yfir-
lýsingu um mikilvægi þess að
bæta stjórn úthafsveiða.
Ráðherrarnir voru sammála
um að nauðsynlegur lagalegur
rammi um úthafsveiðar væri nú
þegar til staðar og lýstu þeir vilja
til að tryggja framkvæmd þeirra
samninga og aðgerðaáætlana sem
gerðar hefðu verið á síðustu
árum. -ghs
SPURNING DAGSINS
Kristinn, hver er nógu feitur
til a› leika Erlend?
„Ég sting upp á Hjalta Rögnvaldssyni eða
Sigurði Skúlasyni.“
Kristni Kristjánssyni, foringja Hins íslenska glæpa-
félags, finnst Ingvar E. Sigurðsson ekki nógu feit-
ur til að leika Erlend í Mýrinni.
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Ráðherraræðið
ríkir yfir þingstörf-
unum.
ALLIR BÚNIR AÐ BORGA Bæði Essó og Olís hafa nú greitt stjórnvaldssektir vegna ólöglegs
samráðs. Skeljungur greiddi sína sekt á mánudag, daginn sem greiðslufresturinn rann út.
HÖFUÐSTÖÐVAR SJÓVÁR-ALMENNRA Áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála staðfesti úr-
skurð samkeppnisráðs um að trygginga-
félaginu Sjóvá beri að greiða stjórnvalds-
sekt vegna brots á samkeppnislögum.
PÉTUR BLÖNDAL: „Hefði viljað afnema stimpilgjaldið í þrepum frá næstu áramótum.“
VÉLARVANA BÁTUR Báturinn
Litla-Nes varð vélarvana skammt
frá Þórshöfn á Langanesi um
fjögurleytið í gær. Báturinn varp-
aði akkerum og það hélt þar til
báturinn Draupnir kom að og dró
Litla-Nes í land á Þórshöfn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Össur Skarphéðinsson:
Opnar
bókhaldi›
SAMFYLKINGIN Stuðningsmenn
Össurar Skarphéðinssonar hafa
birt milliuppgjör vegna framboðs
hans til formannskjörs í Samfylk-
ingunni. Framboð Össurar hafði
fram til 1. maí eytt um 1,2 milljón-
um króna. Peningarnir koma frá
einstaklingum og félögum, allt frá
þúsund krónum upp í 100 þúsund
krónur, eftir því sem fram kemur í
fréttatilkynningu.
Starfsstöð stuðningsmanna
Össurar stefnir að því að birta loka-
uppgjör vegna framboðsins í byrj-
un júní en úrslitin í formannskjör-
inu verða kunngjör á landsfundi
Samfylkingarinnar 21. maí. -oá
LISTASAFN REYKJAVÍKUR Hafþór Yngvason
mun taka við sem safnstjóri Listasafnsins.
02-03 ok 4.5.2005 22:45 Page 2