Fréttablaðið - 05.05.2005, Page 46
14 ■■■ { FERÐIR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Síðustu þrjú til fjögur árin hefur
verið aukinn áhuga á hestaferðum
meðal Íslendinga. Þeir eru komnir
langleiðina með að vera næst-
stærsti hópurinn okkar á eftir Þjóð-
verjum. Áður fyrr voru aðeins um
tíu til fimmtán Íslendingar sem fóru
með okkur í hestaferðir yfir sumar-
ið en síðan við byrjuðum að aug-
lýsa þessar sleppiferðir á heimasíð-
unni okkar hefur síminn ekki
stoppað,“ segir Einar G. Bollason,
framkvæmdastjóri Íshesta.
Farnar verða tvær sleppiferðir í
sumar, annars vegar þriggja daga
ferð á svæðinu milli Ytri-Rangár og
Þjórsár 10. júní og hins vegar fjög-
urra daga ferð í nágrenni Snæfells-
jökuls og Eldborgarhrauns 15. júní.
Ferðirnar eru kallaðar sleppiferðir,
því þær eru farnar á þeim tíma sem
fólk er að sleppa hestum sínum út
og því tilvalið fyrir hestafólk að
sleppa hestunum og fá góðan fé-
lagsskap í leiðinni.
„Þessar ferðir eru sérstaklega
sniðnar að þörfum hestamanna sem
eiga hesta þó að allir séu auðvitað
velkomnir. Sumir eru ef til vill að
byrja í hestamennsku, eiga bara tvo
til þrjá hesta og geta ekki farið í
ferðir en sumir eiga nóg af hestum
en kunna ekki að fara í ferðir. Við
viljum því bjóða þessu fólki í
sleppiferðir með okkur,“ segir Einar
sem hefur nokkrar skýringar á
auknum áhuga Íslendinga á hesta-
ferðum. „Það er margt sem spilar
inn í en í fyrsta lagi er mikil aukn-
ing í hestamennsku og mikið af
fólki sem vill láta halda í höndina á
sér til að byrja með. Í öðru lagi er
mikið af fólki sem á ekki hest en
átti einhvern tímann hest eða hefur
alltaf langað í hest sem langar að
láta drauminn rætast. Í þriðja lagi
eru þaulreyndir hestamenn sem
hafa gefist upp á að sjá um ferðir
og skipuleggja allt í kringum þær
og vill hafa meiri huggulegheit og
einhvern til að sjá um allt fyrir þá.
Svo í fjórða lagi hefur fólk það mun
betra nú en áður. Fólki fannst
hestaferðir mjög dýrar en gleymdi
að taka með inn í reikninginn að
það eyðir ekki krónu í ferðunum
sjálfum.“
Í fjögurra daga ferðinni um Snæ-
fellsnes er gist í uppábúnum rúmu á
huggulegum sveitabæ og er verðið
58.000 krónur á mann. Í þriggja
daga ferðinni er verðið 39.000 krón-
ur en gist er í svefnpokaplássi. Nán-
ari upplýsingar er að finna hjá Ís-
hestum á Sörlaskeið 26 í Hafnarfirði
og á heimasíðu þeirra, ishestar.is.
Fjölskyldan saman í fallegum bæ!
Velkomin í Stykkishólm!
Hótel - heimagistingar - farfuglaheimili - tjaldstæði - veitingastaðir - verslanir
Austur-Flói er hið láglenda svæði
milli Ölfusár-Hvítár og Þjórsár,
neðan Merkurhrauns. Valdimar
Össurarson er ferðamálafulltrúi þar.
Hann býr nærri félagsheimilinu
Þjórsárveri og er stoltur af sínum
flatlenda Flóa. „Við eigum okkar
hundaþúfur og Himmelbjerg hér en
engin há fjöll sem skyggja á útsýn-
ið, þessvegna getum við líka státað
af mesta víðsýni á landinu. Við
Þjórsárver hefur verið settur upp
útsýnispallur og fræðsluskilti og
þar geta menn sannreynt þetta.“
Valdimar nefnir söguslóðir austan
til í Flóanum sem örnefnin Orustu-
dalur og Skotmannshóll eru til vitn-
is um. Þar hefur verið merkt göngu-
leið um og í sumar á að merkja
mjög fallega leið meðfram Hvítá,
upplýsir hann. Flóaáveitan er eitt af
trompunum, sem hann nefnir en
hún var stærsta mannvirki í Evrópu
á sinni tíð. „Auk þess erum við með
hrekkjóttasta mórann, hann Kamp-
holtsmóra sem er enn í miklu fjöri,“
segir hann grallaralegur.
Valdimar vill endilega koma á
framfæri hátíð sem nefnist Fjör í
Flóanum og verður haldin í lok
maí. Reyndar verður hún boðuð
með axarboði sem hann segir hafa
verið einu löglegu leiðina til að
boða mannfundi fyrr á öldum.
„Menn hafa sameinast um að gley-
ma siðnum og týna öxunum en við
ætlum að rifja þetta upp og lista-
konan Sigga á Grund er að skera út
axir fyrir okkur. Svo er verið að
þjálfa fornmenn í stórum stíl,“ seg-
ir Valdimar kampakátur.
Einari ásamt dóttur sinni Bryndísi, framkvæmdastjóra hestamiðstöðvar Íshesta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Þar sem víðsýnið blasir við af palli
Með stærsta hraun í heimi undir fótum, lengstu á á landinu við hlið sér og vatnsmesta
fossinn við bæjardyrnar.
Það er fallegt um að litast á Snæfellsnesi og gaman að ríða út.
Hestum sleppt í góðum félagsskap
Íshestar ehf. hafa boðið upp á lengri hestaferðir á sumrin út um allt land í 23 ár en í
sumar setur fyrirtækið nýjung á markaðinn, svokallaðar sleppiferðir – hestaferðir sem
hannaðar eru fyrir Íslendinga.
Valdimar er vestfirskur galdramaður sem kemur ýmsum hlutum í verk í Flóanum.
550 5600
Nýtt símanúmer
hjá dreifingu:
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf
14-15 ferðir lesið OK 4.5.2005 16:33 Page 2