Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 15
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Siemens hefur ákveðið að selja
taívanska fyrirtækinu BenQ far-
símarekstur sinn. Áður hafði ver-
ið talið að fyrirtækin tvö myndu
sameinast um reksturinn. Verðið
fæst ekki gefið upp.
Siemens hefur verið í miklum
vandræðum með farsímarekstur-
inn en hlutabréf í fyrirtækinu
hækkuðu þó um 2,3 prósent við
söluna.
BenQ er stærsti farsímafram-
leiðandi Taívana og selur síma
undir eigin nafni í Kína. BenQ
framleiðir jafnframt síma fyrir
fyrirtæki á borð við Motorola og
NEC.
,,Með kaupunum á Siemens
færumst við nær því takmarki
okkar að verða meðal stærstu
farsímaframleiðenda heims,“
sagði forstjóri BenQ, K.Y. Lee.
BenQ hyggst áfram nota
Siemens-nafnið. - jsk
BenQ kaupir Siemens
Þú þarft ekki tölvudeild
Þú færð fulla þjónustu hjá ANZA
Rekstur ANZA er í samræmi við vottað öryggiskerfi sem byggist á staðlinum ISO 17799 um stjórnun upplýsingaöryggis.
Hornsteinn ANZA er starfsfólk með framúrskarandi þekkingu og hæfni.
ANZA · Ármúla 31 · 108 Reykjavík · Sími 522 5000 · Fax 522 5099 · www.anza.is
ANZA sér um öll tölvumál fyrir fjölda íslenskra
fyrirtækja. Það er sérgrein okkar.
ANZA sér um tölvukerfið þitt, allan sólarhringinn,
alla daga ársins. ANZA fer aldrei í sumarfrí og er
aldrei fjarverandi vegna veikinda.
Kynntu þér málið með því að hafa samband við
ANZA í síma 522 5000 eða anza@anza.is
AR
GU
S
- 0
5-
03
22
Í sumar starfa tveir fulltrúar með
Verslunarráði Íslands að verkefn-
um, annars vegar frá spænsk-ís-
lenska og hins vegar fransk-ís-
lenska verslunarráðinu, sem
miða að auknum viðskiptum milli
landanna.
Að sögn Þórs Sigfússonar,
framkvæmdastjóra Verslunar-
ráðsins, hafa þau nú þegar komið
á sambandi milli íslenskra fyrir-
tækja og spænskra og franskra
og að hans mati býður samstarf
af þessum toga upp á mikla
möguleika. „Við myndum vilja
sjá miklu fleiri svona verkefni og
fyrirtæki sem hafa áhuga á
tengslum við frönsk, spænsk eða
portúgölsk fyrirtæki ættu að nýta
sér tækifærið og hafa samband
við Verslunarráðið,“ segir Þór.
KÍNVERJAR Á NETINU Kínverskum net-
notendum er gert að skrá vefsíður sínar á
lista hjá yfirvöldum, að öðrum kosti verða
þeir sektaðir.
Vafrarar
í vanda
Yfirvöld í Kína hafa hótað um-
sjónarmönnum vef- og blogg-
síðna í landinu sektum, skrái þeir
ekki síður sínar á sérstakan lista
upplýsingaráðuneytisins fyrir
30. júní næstkomandi.
Sektirnar nema allt að átta
milljónum króna. Talsmaður upp-
lýsingaráðuneytisins sagði 74
prósent notenda hafa skráð síður
sínar: „Það fylgja internetinu
mörg vandamál. Til að mynda
klám og óæskilegar upplýsingar
sem eitrað geta huga fólks,“
sagði talsmaðurinn.
Í Kína eru 87 milljónir inter-
netnotenda, aðeins eru fleiri í
Bandaríkjunum. -jsk
Cathay
best í heimi
Cathay Pacific er besta flug-
félag í heimi, samkvæmt
könnun breska ráðgjafafyrir-
tækisins Skytrax. Tólf millj-
ónir manna frá 94 löndum
tóku þátt í könnuninni og fór
hún að mestu fram gegnum
netið.
,,Þetta er viðamesta könn-
un á flugfélögum til þessa og
tekur til allra gerða ferða-
manna, hvort sem um er að
ræða bakpokaferðalanga eða
ráðstefnugesti,“ sagði tals-
maður Skytrax.
Cathay Pacific, sem hefur
aðsetur í Hong Kong, var
hrósað sérstaklega fyrir þjón-
ustulipurð auk þess sem
fyrsta farrými í flugvélum fé-
lagsins þótti bera af.
Hvorki Icelandair né
Iceland Express komust á
topp tíu listann. - jsk
ÚR FARSÍMAVERKSMIÐJU SIEMENS Siemens hefur nú selt taívanska fyrirtækinu BenQ
farsímarekstur sinn.
Auka tengsl við Spán og Frakkland
Tekið hefur verið upp nýtt stjórn-
skipulag Odda og Gutenberg.
Stefnt er að því að sameina skrif-
stofuhald og fjármálastjórn
prentsmiðjustarfseminnar.
Einnig á að skilja á milli móður-
félagsins og einstakra afkomu-
eininga. Á þetta ferli að vara til
ársloka.
Þorgeir Baldursson, forstjóri
Odda, segir verið að straumlínu-
laga stjórnskipulagið og ná fram
meiri samlegð í rekstrinum.
Sóknarfærin séu víða og verið sé
að sækja harðar fram á ákveðn-
um mörkuðum. Meðal annars var
opnuð ný verslun Odda með
skrifstofuvörur í Borgartúni 23.
apríl síðastliðinn.
Oddi sækir fram
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
PHILIPPE SHALON FRÁ FRAKKLANDI OG IRIA MELON FRÁ SPÁNI Starfa með
Verslunarráði Íslands í sumar við að koma á tengslum milli fyrirtækja á Íslandi og í Frakk-
landi, Spáni og Portúgal.