Fréttablaðið - 08.06.2005, Side 48
Fjör í FIH
Mikið fjör var í FIH í Kaup-
mannahöfn síðastliðinn föstu-
dag þegar KB banki hélt svo-
kallaðann markaðsviðskipta-
dag. Hópur Íslendinga sótti
fundinn ásamt fjölmörgum er-
lendum banka- og fjölmiðla-
mönnum. Má áætla að í kring-
um hundrað manns hafi mætt
til að hlusta á erindi æðstu
stjórnenda KB banka. Tony She-
arer, forstjóri Singer&Fried-
lander, byrjaði sitt erindi á því
að spila kafla úr lagi með Elvis
Presley, sem vakti kátínu gesta.
Seinna spilaði hann brot úr lag-
inu „If I Can Dream“ með
Kónginum og sagði það viðeig-
andi áður en hann fjallaði um
yfirtöku KB banka. Virtist sem
honum líkaði vel að fá hina nýju
herra KB banka inn á kontór til
sín.
Er launamisrétti?
Karlar og konur fá ekki jöfn
laun, allar kannanir hafa sýnt
það. En þær sýna mjög misjafn-
ar niðurstöður um hversu mikill
munurinn er og virðist þetta
mál vera eins og mörg önnur
þar sem fólk horfir á þær tölur
sem það vill sjá. Jákvæða fólkið
sér átta prósenta launamun,
sem er sá launamunur sem er
milli kvenna og karla meðal við-
skipta- og hagfræðinga. Þessi
launamunur fæst þegar búið er
að leiðrétta gagnvart öllum
þáttum líkt og starfi, menntun
og starfsaldri. Sem ættu auðvit-
að að ráða meiru um laun fólk
en kyn.
Lág stjórnarlaun
Lífeyrissjóðirnir eru lykilstofn-
anir í samfélaginu að mörgu
leyti. Mikilvægt er að að þar sé
vel til verka unnið, enda skiptir
sköpum að ná sem hæstri ávöxt-
un hverju sinni. Eins og kemur
fram í Markaðinum í dag eru
árslaun framkvæmdastjóra allt
frá sjö og upp í 23 milljónir
króna. Það eru ekkert hærri
laun en gengur og gerist meðal
stjórnenda stærstu fyrirtækj-
anna hér á landi. Hins vegar
vekja stjórnarlaun nokkra at-
hygli; ekki vegna þess hversu
há þau eru heldur hvað þau eru
lág. Stjórnarformenn sjóðanna
eru með mánaðarlaun frá 60
þúsund krónum og upp í 180
þúsund á mánuði. Miðað við
þær skyldur og það eftirlits-
hlutverk sem þeir bera getur
þetta kaup vara talist mikið.
Nema að þeir mæti aðeins á
fundi til að drekka kaffi.
7,2 2 9,5prósent – leiðréttur launamunur kynjanna meðalviðskipta- og hagfræðinga samkvæmt könnunFélags viðskipta- og hagfræðinga. ný hlutafélög í Kauphöllina í júní. Stýrivextir Seðlabankans voru hækkaðirum 0,5 prósent í 9,5 prósent fyrir helgiog spá markaðsaðilar 10 prósenta vöxt-
um í haust.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum
netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á
mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
B A N K A H Ó L F I Ð