Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 2
2 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Hvorki íslenska né þýska fjármálaeftirlitið tjáir sig um mál Hauck & Aufhäuser: fi‡ski bankinn svarar engu VIÐSKIPTI „Við höfum það sem reglu að tjá okkur ekki um mál af þessu tagi,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftir- litsins, um það hvort málefni þýska bankans Hauck & Aufhäuser séu til athugunar hjá Fjármálaeftirlitinu. Umræða hefur að undanförnu staðið um það hvort þýski bankinn hafi verið raunverulegur eigandi bréfanna í Búnaðarbankanum sem það keypti í byrjun árs 2003. Þýski bankinn sendi frá sér fréttatilkynningu á mánudag þar sem engu var svarað um hvort bankinn hafi verið raunveruleg- ur eigandi bréfanna í Búnaðar- bankanum. Þar kom fram að bankinn hefði fært bréfin í eigið bókhald en í íslenskri þýðingu var þess getið að bréfin væru færð í ársreikning. Ekkert er hins vegar að finna um eignar- haldið í ársreikningi hvorki fyr- ir árið 2003 né 2004. Hjá þýska fjármálaeftirlitinu fengust sömu upplýsingar og hjá því íslenska, að ekki væri heimilt að tjá sig um hvort mál- efni einstakra banka væru til meðferðar hjá því. Þá svöruðu forsvarsmenn þýska bankans ekki skilaboðum Fréttablaðsins í gær. -hb Landsbankinn hafnar bótakröfu Lífeyrissjóðs bankamanna: Segja ábyrg›ina vera ríkisins LÍFEYRISMÁL Stjórnendur Lands- bankans telja bankann enga ábyrgð bera á hækkun lífeyris- skuldbindinga Lífeyrissjóðs bankamanna vegna launahækk- ana eftir einkavæðingu bankans. Eðlilegt sé að krafan um bak- ábyrgð beinist að ríkinu en ekki Landsbankanum. Í yfirlýsingu bankans segir að samið hafi verið um fullnaðarupp- gjör Landsbankans við sjóðinn árið 1997, áður en Landsbankinn var einkavæddur. Þegar gengið hafi verið frá þessu samkomulagi hafi bakábyrgð bankans á skuld- bindingum lífeyrissjóðsins fallið niður og Lífeyrissjóður banka- manna eigi ekki lengur lögvarða kröfu á hendur Landsbankanum. „Ástæður þess að eigur Lífeyr- issjóðs bankamanna nú nægja ekki að fullu fyrir metnum skuld- bindingum sjóðsins eru meðal annars þær að laun hafa hækkað og kaupmáttur aukist meira en forsendur sjóðsins gerðu ráð fyr- ir,“ segir í yfirlýsingunni. „Þá hef- ur sú ánægjulega þróun átt sér stað að lífaldur fólks fer hækk- andi og fólk kýs að hætta vinnu fyrr og þar með verða lífeyrisár sjóðfélaga fleiri en áður var reiknað með. Þessar ástæður eru almennar og eiga við fleiri lífeyr- issjóði.“ ■ Fengu tíu milljónir króna í eingrei›slu VIÐSKIPTI Eigendur stofnfjár í Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem hafa samþykkt að selja bréf sín að fengnu samþykki stjórnar, hafa fengið 10 milljón króna ein- greiðslu samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Talið er að um 30 stofnfjáreigendur hafi fallist á að selja bréf sín, þar á meðal nokkr- ir sem kusu ekki núverandi stjórn á síðasta aðalfundi. Stjórn Sparisjóðs Hafnar- fjarðar fundaði í gær í fyrsta skipti eftir að fréttist að sala stofnfjárhluta væri hafin. Ekki er vitað til þess að hún hafi af- greitt framsöl á stofnfjárhlutum en engar slíkar óskir lágu fyrir á þriðjudaginn. Fyrir fundinum lá beiðni frá fimm stofnfjáreigendum undir forystu Helga Vilhjálmssonar í Góu um að stjórnin kalli saman fund stofnfjáreigenda og skýri frá gangi mála varðandi sölu á stofnfjárhlutum. Páll Pálsson, stjórnarformað- ur SPH, vildi ekkert tjá sig um efni fundarins. Þótt margir stofnfjáraðilar hafi sett sig upp á móti kaupun- um er sennilega hægt að komast yfir sjóðinn annars vegar með því að einn og sami kaupandinn eignist nær alla stofnfjárhluti, og nái þar með um 95 prósenta eign- arhlut, eða, sem teljast verður líklegra, að nokkrir aðilar kaupi stofnféð undir merkjum eignar- haldsfélaga sem hvert um sig á um fimm prósent. Sú leið hefur gefist vel innan SPRON. Til þess þurfa 32 stofnfjáreig- endur að selja bréf sín þannig að stór meirihluti hafi myndast sem geti breytt samþykktum sjóðsins. Væntanlega þarf þó fleiri til þess að tryggja endanlega yfirtöku. Ekki er þó útilokað að Fjár- málaeftirlitið myndi skoða gaum- gæfilega hvort tengsl eigenda þessara félaga væru það mikil að þeir teldust einn og sami aðilinn og hefðu því aðeins fimm pró- senta atkvæðishlut. Deilurnar sem stóðu um yfir- ráð á Sparisjóði Skagafjarðar á dögunum sýndu að yfirtaka á sparisjóði er nánast ómöguleg ef hópur stofnfjáreigenda setur sig upp á móti áformum meirihluta og óskar eftir rannsókn Fjár- málaeftirlitsins. Í gær rann út sá frestur sem stofnfjáreigendur hafa til þess að skila inn svörum til Fjármálaeft- irlitsins varðandi hugsanleg framsöl á stofnfjárhlutum. Lögmenn munu hafa ráðlagt stofnfjáreigendum að svara bréf- inu. Línur gætu því skýrst mjög fljótlega um það hver eða hverjir vilji komast yfir SPH. eggert@frettabladid.is Hringróðurinn: Kominn til fiórshafnar RAUFARHÖFN Kjartan Jakob Hauks- son, róðrakappinn sem ætlar að róa hringinn í kringum landið til styrkt- ar Sjálfsbjörg, kom til Þórshafnar á Langanesi síðdegis í gær. „Það hef- ur allt gengið vel síðustu tvo daga þrátt fyrir hálfgert grautarpottasjó- lag í gær,“ segir Kjartan. Vel var tekið á móti Kjartani við komuna til Raufarhafnar síðast liðið þriðjudagskvöld og var verslunin Urð opnuð sérstaklega svo Kjartan gæti keypt nesti til að nærast á í róðrinum fyrir Þistilfjörð. Næsti viðkomustaður Kjartans er Bakka- fjörður. -kk Barnabókaverðlaun: Hei›ru› fyrir Sver›berann VERÐLAUN Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra af- henti í gær Ragnheiði Gestsdóttur rithöfundi Norrænu barnabóka- verðlunin 2005 í Þjóðmenningar- húsinu. Ragnheiður hlýtur verðlaunin fyrir feril sinn sem rithöfundur og myndlistarmaður með sér- stakri áherslu á unglingabókina Sverðberann sem kom út síðast- liðið haust. - sgi                               !"#$%&'( SPURNING DAGSINS Lú›vík, ertu viss um a› Dirty Harry hreinsi til eftir sig? „Já, er hann ekki vanur að hreinsa ræki- lega til þar sem hann fer um.“ Lúðvík Geirsson er bæjarstjóri Hafnfirðinga sem hefur gefið Clint Eastwood leyfi til að kvikmynda í Krýsuvík. Dirty Harry er eitt frægasta hlutverk Eastwoods. SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR Magnús Ægir Magnússon sparisjóðsstjóri stendur hér við sparisjóðinn. Lögmenn hafa ráðlagt stofnfjáreigendum að svara fyrirspurnum Fjármálaeft- irlitsins. RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR Tók við Norrænu barnabókaverlaununum úr hendi menntamálaráðherra. FJÖLMIÐLAR Flugfélagið Iceland Express hættir frá og með deg- inum í dag að selja blöðin DV og Hér og nú í sínum vélum. „Við sem stöndum að félaginu teljum ritstjórnarstefnu blað- anna ógeðfellda og viljum ekki tengja okkur við þau. Við erum með 160 manns í vélunum og okkur finnst það ekki vera gott fyrir okkur sem vörumerki að tengja okkur við svona lagað. Við getum notað plássið sem fer undir blöðin til að selja aðra vöru,“ segir Birgir Jónsson framkvæmdastjóri Iceland Ex- press. -óá Á RAUFARHÖFN Fjöldi Raufarhafnarbúa tók á móti Kjartani við komuna þangað. BRUSSEL, AP Loksins sjá Tyrkir fyrir endann á að áratugabaráttu fyrir inngöngu í Evrópusambandið sé að ljúka því í gær gaf sambandið út yf- irlýsingu um að það sé tilbúið til þess að setjast að samningaborði með Tyrkjum. Þessi yfirlýsing er í takt við samkomulag leiðtoga ESB- ríkjanna sem náðist í desember. Ekki er gert ráð fyrir því að Tyrkir gangi í sambandið fyrr en í fyrsta lagi árið 2014, að sögn Olla Rehn, sem fer með stækkunarmál í framkvæmdastjórn ESB. Hann leggur líka áherslu á að ekki sé sjálfgefið að Tyrkir fái inngöngu, þótt opnað hafi verið á viðræður. ■ Aðildarviðræður í bígerð: Tyrkjum bo›i› til samninga PÁLL GUNNAR PÁLSSON Tjáir sig ekki um mál þýska bankans. STARFSMENN LANDSBANKANS Stjórnendur Landsbankans vísa kröfu Lífeyrissjóðs banka- manna um bakábyrgð vegna lífeyrisskuldbindinga á bug. LÖGREGLUFRÉTTIR ÁKÆRT FYRIR SKYRSLETTUR Þre- menningunum sem slettu skyri yfir ráðstefnugesti á ráðstefnu á Hotel Nordica verður birt ákæra í dag. Skaðabótakrafa hótelsins hljómar upp á 2,8 milljónir og brotin geta varðað allt að sex ára fangelsi. Bylgjan greindi frá. GRUNAÐUR UM SÖLU Maður á fertugsaldri var í gær handtek- inn í Reykjavík vegna gruns um fíkniefnasölu. Húsleit var gerð á tveimur stöðum og lagði lögregla hald á mismunandi fíkniefni í það miklu magni að líklegt má telja að efnin hafi verið ætluð til sölu. Bylgjan greindi frá. Iceland Express: Selja ekki DV og Hér & nú Kaupendur SPH-hlutanna eru hársbreidd frá flví a› komast yfir sjó›inn. Tveir eigendur flurfa hugsanlega a› selja í vi›bót. Stofnfjáreigendur sem samflykkt hafa a› selja bréf sín hafa flegar fengi› eingrei›slu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.