Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 8
1Hvað heitir formaður kjördæmisráðsVinstri-grænna í Reykjavík? 2Hvar verður fyrsta kjarnasamrunaverheims reist? 3Hvað heitir framkvæmdastjórinn semStoke rak í fyrradag? SVÖRIN ERU Á BLS. 58 VEISTU SVARIÐ? 8 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR0 Miklu munar á hvað kostar að gista á tjaldsvæðum landsins: Frítt í Fjar›abygg› og á Patreksfir›i TJALDGISTING Í nýrri könnun verð- lagseftirlits ASÍ á tjaldsvæðum kemur fram að gisting í tvær næt- ur fyrir fjölskyldu með tvö börn, 12 og 15 ára, getur kostað allt að 4.800 krónur. Gjaldtaka var skoð- uð á tæplega 60 stöðum og af þeim var kostnaðurinn á 15 stöðum 4000 krónur eða hærri en einung- is var frítt á eitt tjaldsvæði, á Pat- reksfirði, en auk gistingar er þar aðeins boðið upp á salerni. Í könn- uninni var gerður samanburður á verði fyrir gistingu á tjaldsvæð- unum en ekki borin saman sú þjónusta sem boðið er upp á. Tjaldsvæðin í Fjarðabyggð voru ekki tekin með í könnuninni en þar er gisting, og öll þjónusta, án endurgjalds. Jón Björn Hákon- arson, upplýsingafulltrúi Fjarða- byggðar, segir að á tjaldsvæðinu í Neskaupstað séu salerni, sturtur, þvottavél og þurrkari og í júlí verði boðið upp á sama aðbúnað á tjaldsvæðinu á Reyðarfirði. „Á tjaldsvæðinu á Eskifirði eru nú salerni og sturtur og við erum að íhuga að setja þar upp þvottavél og þurrkara í sumar. Gisting, og allur aðbúnaður, er ókeypis á öll- um þremur stöðunum,“ segir Jón Björn. -kk Sjávarútvegsráðuneytið greiddi Félagi hrefnuveiðimanna 32 milljónir: Styrktu hvalvei›imenn í banni HVALVEIÐAR Sjávarútvegsráðu- neytið veitti Félagi hrefnuveiði- manna átta milljóna króna styrk á ári frá árinu 1998 til ársins 2001 en hrefnuveiðar voru bann- aðar á þessum árum. Samtals námu styrkirnir 32 milljónum sem félagið fékk frá ráðuneyt- inu á þessum fjórum árum. Í bókhaldi ráðuneytisins eru þess- ar greiðslur skráðar sem styrk- ur til hrefnuveiðimanna. Árni Mathiesen sjávarút- vegsráðherra vildi ekki tjá sig um málið í gær þegar hann var spurður eftir því hvort hval- veiðimenn væru á greiðslum þegar á hvalveiðibanni stæði. Einnig hefur ráðuneytið látið rúmar tvær milljónir króna af hendi rakna á sama tímabili til norsku samtakanna High North Alliance sem stofnuð voru til að berjast gegn hvalveiðibanninu. Í bókhaldinu eru þær greiðslur skráðar sem greiðslur til mark- aðs- og kynningarstarfs. -jse E N N E M M / S ÍA / N M 16 0 15 HAGKVÆMUR KOSTUR FYRIR GOLFARA GOLFKORT KB BANKA Golfkort KB banka er fullgilt kreditkort sem veitir kylfingum fjölmörg frí›indi sem tengjast golfi og getur flannig spara› fleim umtalsver›ar fjárhæ›ir. Allir geta sótt um Golfkort, hvort sem fleir eru í vi›skiptum vi› KB banka e›a ekki, á golfkort.is, í síma 444 7000 e›a næsta útibúi KB banka. TJALDSVÆÐIÐ Á ESKIFIRÐI Upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar segir að þrátt fyrir kalt veður í júní hafi aðsókn á tjaldsvæðin í Fjarðabyggð verið meiri í ár en í meðalári. HVALVEIÐAR Hvalveiðimenn eru hér að störfum. Ekki fengust svör hjá sjávarútvegsráð- herra um það hvers vegna Félag hrefnuveiðimanna fékk átta milljónir á þeim árum þegar enga hrefnu mátti veiða. BANDARÍKIN, AP Frelsisturninn sem rísa á í stað Tvíburaturnanna sem hrundu til grunna í New York 11. september 2001 hefur tekið miklum breytingum frá því sem upphaflega var lagt upp með. Þar sem fyrstu hugmyndir þóttu ekki uppfylla kröfur sem gerðar voru til öryggis var hann hannaður upp á nýtt og á að vera sterkbyggðasti og öruggasti skýjakljúfur í heimi. Búið er að birta nýjar teikn- ingar af skýjakljúfnum sem virð- ist nú loksins vera að rísa, horn- steinn hans var lagður á þjóðhá- tíðardag Bandaríkjanna í fyrra. Frelsisturninn rís frá grunni sem þakinn verður glansandi málmklæðningu. Klæðningin er ekki síður valin fyrir sakir ör- yggis en fegurðar, þar sem gert er ráð fyrir því að hún veiti góða vörn gegn bílasprengjum og öðr- um sprengjum. Efsti hluti turns- ins verður aftur á móti spírallaga og upplýstur. „Á dulinn en mikilvægan hátt er þessi bygging minnisvarði þeirra sem við misstum,“ sagði aðalarkitektinn David Childs. Stefnt er að því að taka turn- inn í notkun árið 2010. ■ Frelsisturninn á að koma í stað Tvíburaturnanna: Sterkbygg›asti og örugg- asti sk‡jakljúfur í heimi MANHATTAN FRAMTÍÐARINNAR Þessi tölvugerða teikning sýnir nýja Frelsisturninn eins og hann kemur til með að líta út árið 2010.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.