Fréttablaðið - 30.06.2005, Síða 19
FIMMTUDAGUR 30. júní 2005 19
Starfshópur gegn listaverkafölsunum:
Opinberar a›ger›ir duga ekki
LISTAVERK Ekki er hægt að beita op-
inberum aðgerðum til að koma í
veg fyrir listaverkafalsanir. Það
er álit starfshóps sem skipaður
var af menntamálaráðherra til að
fjalla um fölsun listaverka og
hvernig hægt er að bregðast við
þeim vanda. Hins vegar telur
starfshópurinn hægt að búa
þannig um hnútana, með fræðslu
og fyrirbyggjandi aðgerðum, að
erfitt verði að bjóða fölsuð verk
til sölu á markaði. „Starfshópur-
inn skilaði af sér greinargerð í
gær og leggur í henni fram tillög-
ur, meðal annars nokkuð veiga-
miklar tillögur um lagabreyting-
ar,“ segir Þorgerður Katrín Guð-
mundsdóttir, menntamálaráð-
herra.
Í tillögum starfshópsins er gert
ráð fyrir því að kaupendur geti
gert kröfur um áreiðanleika
þeirra upplýsinga sem seljendur
láta í té um verkin. Með hertum
lagaskilyrðum og aukinni upplýs-
ingagjöf, nái markaðurinn jafn-
vægi og fölsuðum verkum verði
ýtt út af honum. Jafnframt er talið
nauðsynlegt að gerðar verði ráð-
stafanir til að efla rannsóknir á ís-
lenskri listasögu, enda verði það
til þess að fækka fölsuðum mál-
verkum í umferð. - íös
Björgunarskipið Björg:
Dró skútu
til hafnar
SJÓVÁ Björgunarskipið Björg á
Rifi sótti um miðjan dag í fyrra-
dag franska skútu sem flækt
hafði netadræsu í skrúfu hjá sér.
Að sögn Landsbjargar var veður
gott og sóttist björgunin vel, en
skútuna hafði rekið nokkuð
nærri landi þegar að var komið.
Tveir voru í áhöfn skútunnar
sem er um sex metra löng. Þetta
er í annað sinn á nokkrum dögum
sem björgunarsveitin á Rifi að-
stoðar franska skútu.
-óká
LÖGREGLUFRÉTTIR
A
. J
ac
ob
se
ns
B
ok
tr
. A
S,
3
95
0
B
re
vi
k.
Útsala
30%-50%
TIMBERLAND SHOP
Kringlunni – Sı́mi: 53 32 290
Breytingar á löggjöf:
fieim hæfustu
veitt landvist
DANMÖRK Danska ríkisstjórnin
íhugar að breyta innflytjendalög-
gjöf sinni með það fyrir augum að
laða til landsins fleiri vel menntaða
útlendinga.
Stjórnin ræðir hvort taka eigi
upp punktakerfi til að meta þá út-
lendinga sem vilja flytja til landins.
Umsækjendur fengju punkta fyrir
þætti á borð við menntun, tungu-
málakunnáttu og atvinnumöguleika
og nái þeir tilskildum punktafjölda
fá þeir atvinnu- og dvalarleyfi.
„Það er ljóst að við þurfum á
fleiri hæfum starfskröftum að
halda til þess að geta mætt aukinni
samkeppni,“ sagði Bendt Bendtsen,
atvinnumálaráðherra. ■
SAFNIÐ GLJÚFRASTEINN Á sjöunda þús-
und manns hafa heimsótt safnið sem er
tileinkað nóbelsskáldinu.
Heimsóknir í Gljúfrastein:
Mest
Íslendingar
SÖFN „Aðsóknin hefur verið nokk-
uð góð frá því að safnið var opn-
að,“ segir Guðný Dóra Gestsdótt-
ir, forstöðumaður Gljúfrasteins,
safns sem tileinkað er minningu
nóbelsskáldsins Halldórs Lax-
ness.
„Síðan safnið var opnað 4. sept-
ember í fyrra hafa á sjöunda þús-
und gestir komið í heimsókn.“
Guðný segir að Íslendingar séu
í miklum meirihluta gestanna,
þótt erlendir gestir séu þó nokkr-
ir. „Í vor hefði maður samt viljað
sjá fleiri ferðmenn, en svipaða
sögu segja allir sem eru í ferða-
mannaþjónustu.“ ■
STÚLKUM BJARGAÐ ÚR SJÁLF-
HELDU Fimm ungum stúlkum var
í gær bjargað úr sjálfheldu í
bröttum skriðum í Húsavíkur-
fjalli. Björgunarsveit og lögregla
voru send á staðinn og aðstoðuðu
stúlkurnar við að komast klakk-
laust niður af fjallinu. Stúlkurnar,
sem eru um þrettán ára gamlar,
voru í gönguferð en skriðurnar
sem þær festust í eru býsna
brattar og að sögn lögreglu mjög
lausar í sér.
MAÐUR DATT AF HJÓLI Maður á
fimmtugsaldri slasaðist nokkuð
þegar hann datt af hjóli á hafnar-
svæðinu á Húsavík. Slysið átti
sér stað fyrir utan veitingastað-
inn Gamla Bauk stuttu eftir mið-
nætti í gær. Maðurinn slasaðist
nokkuð og var fluttur á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri til
frekari skoðunar.
VERK EIGNAÐ KJARVAL Þetta er ein af þeim myndum sem styr stóð um í málverkafölsun-
armálinu.