Fréttablaðið - 30.06.2005, Síða 54
„Mig hefur langað lengi til þess
að verða prestur,“ segir hin 29
ára Sjöfn Þór, spennt yfir skipun
sinni til sóknarprests í Reykhóla-
prestakalli. Sjöfn ákvað það strax
eftir fermingu að hana langaði að
verða prestur en afi hennar var
séra Þórarinn Þór, sem einmitt
var sóknarprestur á Bæ á Reyk-
hólum og Patreksfirði.
Sjöfn segir þjónustuna vera
mest heillandi við prestsstarfið.
„Ég hef mjög sterka trú og langar
til að þjóna bæði guði og mönn-
um,“ segir Sjöfn, sem telur að
hún hafi fengið köllun strax á
unga aldri.
„Ég held að góður prestur
þurfi fyrst og fremst að hlusta og
taka þátt í samfélaginu, vera
góður í mannlegum samskiptum
og hafa einlæga trú,“ segir Sjöfn,
sem hlakkar til að búa á lands-
byggðinni þar sem allt sé miklu
rólegra og tími gefist til að sinna
sóknarbörnum. Hún þekkir
landsbyggðarlífið af eigin raun
enda uppalin á Patreksfirði
Sjöfn hefur starfað lengi að
æskulýðsmálum Þjóðkirkjunn-
ar. „Ég vil vera með blómlegt
barna- og æskulýðsstarf og laga
það að sveitinni,“ segir Sjöfn.
Hún gerir sér vel grein fyrir því
að prestsstarfið geti verið erfitt
og snúist um að deila bæði sorg
og gleði.
„Ég vil líka leggja áherslu á
það að eiga samskipti við alla,“
segir Sjöfn, sem er einstæð móðir
og finnst spennandi kostur að ala
dóttur sína, sem byrjar í skóla í
haust, upp í fámenninu.
Sjöfn mun búa á Reykhólum í
prestbústað sem var byggður
þegar afi hennar var prestur á
staðnum. Hún ætlar að flytja
þangað um leið og hægt er en hún
býst við að taka við starfinu 1.
september þó sú dagsetning sé
ekki á hreinu.
„Ég er svo heppin að fá að
vinna við áhugamálið mitt,“ segir
Sjöfn en að starfa með börnum
og unglingum er henni mjög
hugleikið. „Þá hefur blundað í
mér hestabaktería,“ segir hún en
hana hefur Sjöfn ekki fengið að
rækta í lengri tíma. Líklega mun
hún þó eiga hægara um vik þegar
hún er komin í sveitina. ■
34 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
OTTO VON BISMARCK (1815-1898)
lést þennan dag.
Tekur við starfi afa síns
SJÖFN ÞÓR: SKIPUÐ SÓKNARPRESTUR REYKHÓLAPRESTAKALLS
„Aldrei trúa neinu í pólitík fyrr en því hefur
verið neitað opinberlega.“
-Prins Otto af Bismarck var einn merkasti leiðtogi nítjándu aldar. Hann
var forsætisráðherra Prússlands, sameinaði Þýskaland í nokkrum vel
heppnuðum stríðum og var fyrsti kanslari þýska heimsveldisins.
timamot@frettabladid.is
13.00 Alda Jóhanna Stangeland,
Barðavogi 3, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju.
13.00 Unnur Aðalsteinsdóttir, Gilja-
landi 29, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
13.00 Sigurveig Björgvinsdóttir,
Hamrahlíð 40, Vopnafirði, verður
jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju.
13.00 Þórarinn Sigurgeirsson pípulagn-
ingameistari, Árskógum 6, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju.
14.00 Ingólfur Jóhannsson, Iðu, Bisk-
upstungum, verður jarðsunginn
frá Skálholtskirkju.
15.00 Rúnar Gunnarsson, Kleppsvegi
106, Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
PRESTUR Sjöfn Þór er einstæð móðir og hlakkar til að ala dóttur sína upp í fámenni
landsbyggðarinnar.
Þennan dag árið 1971 fundust
þrír sovéskir geimfarar látnir í
geimhylki geimfarsins Sojúz 11
eftir það sem virtist vera fullkom-
in lending í Kasakstan. Georgi
Dobrovolsky, Vladislav Volkoj og
Viktor Patsajev sátu allir í sætum
sínum um borð í geimfarinu og
virtust ekki hafa hlotið neina lík-
amlega áverka. Sovésk yfirvöld
fyrirskipuðu strax að rannsókn
yrði gerð á slysinu.
Áhöfnin hafði dvalist í 24 daga í
geimnum en það var lengsti tími
sem nokkur hafði dvalið í þyngd-
arleysi. Á sínum tíma var talið að
það gæti hafa átt þátt í dauða
geimfaranna. Þeir urðu einnig
þeir fyrstu í heiminum til að
dvelja í geimstöð og höfðu
stundað rannsóknir og athuganir
á geimstöðinni Saljút eitt.
Síðar kom í ljós að dauði geim-
faranna varð vegna of hás blóð-
þrýstings sem hlaust af því að
klefi þeirra afþrýsist. Ástæða
þessa var sú að súrefni fór út um
gat sem myndaðist þegar lend-
ingarhylkið losnaði frá aðalfarinu.
Í raun má segja að áhöfnin hefði
aldrei átt að fara út í geim en
hún var kölluð til þegar geimfari í
aðaláhöfninni varð veikur.
Slysið kom í kjölfar þó nokkurra
slysa sem tengdust Sojúz-
geimskutlum en tvö ár liðu áður
en Sovétmenn sendu mannað
geimfar út í geim.
Geimfararnir þrír voru jarðaðir í
Kreml við hlið Júrí Gagarín, fyrsta
geimfarans, og voru útnefndir
hetjur Sovétríkjanna.
30. JÚNÍ 1971
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1856 Napóleon prins, bróður-
sonur Napóleons keisara
Frakka, kemur til Reykja-
víkur á herskipi.
1862 Eldgos hefst vestan Vatna-
jökuls og stendur í rúm
tvö ár.
1874 Skólapiltar úr Lærða skól-
anum halda brennu á Mel-
unum til þess að láta í ljós
andúð sína á latneska
stílnum.
1910 Fyrsta íslenska konan út-
skrifast frá Menntaskólan-
um í Reykjavík.
1968 Kristján Eldjárn er kjörinn
forseti Íslands.
1974 Kvenlögregluþjónar taka í
fyrsta sinn þátt í löggæslu.
1990 Kvennahlaup ÍSÍ haldið í
fyrsta sinn.
1992 Margrét Thatcher tekur
sæti í lávarðadeild breska
þingsins.
Undarlegur dau›i geimfara
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér a› ofan
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is
e›a hringja í síma
550 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Fanney Halldórsdóttir
frá Sviðningi, Skagabyggð,
verður jarðsungin frá Hofskirkju, Skagabyggð, föstudaginn 1. júlí
kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Sonur minn og bróðir okkar,
Rúnar Gunnarsson
Kleppsvegi, 106 Reykjavík,
lést 21. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 30. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd systkina og annarra ættingja,
Gunnar R. Pétursson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Guðný Guðmundsdóttir byrjaði
snemma að passa börn eins og venj-
an var á þeim tíma. Minnisstæðasta
starfið tengdist þó ekki börnum.
„Mest spennandi var þegar ég var í
öðrum bekk í gagnfræðaskóla og
hætti við að fara í vorferðina þar
sem mér bauðst að spila með
Sinfóníunni,“ segir Guðný, sem
telur að hafa verið frekar óvenju-
legt að standa frammi fyrir því að
þurfa að velja milli skemmtiferðar
með vinum sínum eða vinnu.
Hún valdi að spila með hljóm-
sveitinni og sér ekki eftir því. „Á
þeim tíma vantaði mikið af fólki í
hljómsveitina,“ segir Guðný, sem
var komin langt í námi þrátt fyrir
ungan aldur. Kennari henna,r sem
var fyrrverandi konsertmeistari,
treysti henni til að spila Schubert
sinfóníuna. „Ég æfði mig alveg eins
og brjálæðingur,“ segir Guðný, sem
lagði nótt við dag til að standast
væntingar.
Guðný varð konsertmeistari
Sinfóníunnar rúmum tíu árum síðar
eftir strangt nám erlendis en var þó
viðloðandi hljómsveitina allan
tímann.
Guðný fékk að sjálfsögðu
borgað fyrir starf sitt þennan dag
enda var þegar á þeim tíma búið að
stofna stéttarfélag sem sá til þess
að nemendur væru ekki notaðir í
staðinn fyrir atvinnufólk til að
spara pening. Guðný man ekki
eftir því hvað hún gerði við
hýruna. „Ætli maður hafi ekki
farið í fatabúð daginn eftir út-
borgun,“ segir hún og hlær. ■
FYRSTA STARFIÐ: GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR KONSERTMEISTARI
Skemmtifer› e›a Schubert
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Konráð Gíslason
frá Frostastöðum, Furulundi 4, Varmahlíð,
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 2. júlí
kl. 11.00 fyrir hádegi.
Bálför fer fram síðar og jarðsett verður í Flugumýrarkirkjugarði.
Helga Bjarnadóttir,
börn, tengdabörn og afabörn.
JAR‹ARFARIR