Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 59

Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 59
FIMMTUDAGUR 30. júní 2005 Kevin Phillips, framherji Sout-hampton, er nú sagður á leiðinni til enska úrvals- deildarfélagsins Aston Villa. Phillips, sem hefur ekki náð sér á strik hjá Southampton, lék áður með Sunderland og var þar mikill markahrókur. Harry Redknapp vill ólmur halda Phillips en ekki er talið líklegt að það gangi eftir. Phillips er einn af launahæstu leikmönnum Sout- hampton, þrátt fyrir að hafa lækkað mikið í launum þegar hann fór frá Sunderland til Southampton á sín- um tíma. Mamadou Niang, leikmaðurStrazbourg, er nú undir smásjá West Ham United, sem þurfa að styrkja sig mikið fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni á næsta ári. Alan Pardew, knatt- spyrnustjóri West Ham, verður að styrkja framlín- una hjá sér, þar sem erfitt getur verið að reiða sig á markskorun hins þrjátíu og níu ára gamla Teddy Sheringham. Stjórn West Ham, sem fyrir nokkrum árum seldi marga af bestu ungu leikmönnunum sínum, hefur ekki gengið sem skildi á leikmannamark- aðnum í sumar og þarf nauðsynlega á liðsstyrk að halda. Kieron Dyer, leikmaðurNewcastle United og enska landsliðsins, mun fljótlega skrifa undir nýjan samning við félagið. Graeme Sou- ness, knatt- spyrnustjóri Newcastle, sagð- ist fullviss um að félagið næði saman við hann. „Dyer hefur stað- ið sig vel síðan ég kom hingað. Hann er góður leikmaður sem við getum vonandi haft hjá okkur lengi.“ Dyer lenti í slagsmálum við Lee Bowyer, félaga sinn hjá Newcastle í fyrra og hefur síðan ekki verið vinsæll hjá stuðn- ingsmönnum félagsins. Alex Ferguson, knattspyrnustjóriMancheser United, leggur nú mikla áherslu á að Cristiano Ron- aldo, Portúgalinn snjalli, verði áfram hjá félaginu en illa hefur gengið að fá guttann til þess að skrifa undir nýjan samning við félagið. „Hann mun skrifa undir. Við getum ekki látið svona hæfi- leikaríkan dreng fara frá okkur. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum og það er ekkert sem mun standa í vegi fyrir því að hann end- urnýji hann.“ Ferguson sér Ronaldo fyrir sér sem lykilmann hjá Manchester United næstu árin, ásamt enska landsliðsmanninum Wayne Rooney en Sir Alex telur þá geta leitt lið næstu kynslóðar hjá Man. Utd. Boudewijn Zenden, leikmaðurMiddlebrough, er á leiðinni til Liverpool. Rafael Benitez, knatt- spyrnustjóri Liverpool, leitar nú að leikmönn- um sem hafa reynslu að því að spila í úrvalsdeild og hafa að auki náð góðum ár- angri í Evrópu- keppni. Zenden, sem leikið hefur með stórliðum eins og Barcelona, PSV og Chelsea, spilaði vel á síðasta tímabili en hann lék þá inni á miðri miðjunni ásamt landa sínum frá Hollandi, George Boateng. Mörg félög hafa borið víurnar í Zenden eftir tímabilið enda lék Hollendingurinn hreint frábærlega og vilja margir meina að hann hafi aldrei verið betri en síðasta vetur en síðustu tímabil þar á undan voru slök hjá kubbaða vængmanninum. ÚR SPORTINU Julio Arca, bakvörður Sunderland, hefur trú á liðinu: Sunderland fellur ekki FÓTBOLTI Forráðamenn Sunder- land, sem komst upp í ensku úr- valsdeildina eftir að hafa endað í efsta sæti í fyrstu deildinni, reyna nú hvað þeir geta til þess að styrkja leikmannahóp sinn fyrir keppnistímabilið sem hefst í haust. Julio Arca, Argentínumaður- inn snjalli hjá Sunderland, er viss um að liðið hafi alla burði til þess að halda sér uppi í deildinni. „Sunderland er með fínt lið sem á eftir að verða ennþá betra með til- komu nýrra leikmanna. Ég hef leikið með Sunderland í úrvals- deildinni og veit því vel við hverju er að búast. Við erum kannski ekki með lið sem verður í toppbar- áttunni, en mér finnst eðlilegt að stefna á það að vera um miðja deild.“ - mh JULIO ARCA Argentíski vinstri bakvörðurinn spilaði stórt hlutverk þegar Sunderland tókst að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.