Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 64
Lögfræðingurinn Páll Skúlason
hefur um 15 ára skeið gefið út
blaðið Skjöld þar sem hann skrif-
ar greinar um ýmis hugðarefni
sín svo sem bókmenntir, sögu og
þjóðlegan fróðleik en áður hafði
hann gefið út blöð sem báru önnur
nöfn. Í vikunni bættist við átta-
hundruðasti áskrifandi Skjaldar
og er Páll afar stoltur af því.
„Hugmyndin hjá mér er að
skrifa skemmtilegar fræðigreinar
fyrir almenning því mörg rit sem
gefin eru út hér er á landi eru ein-
ungis ætluð fyrir fræðimenn en
ég vil skrifa greinar sem allir geta
skilið. Tilgangurinn er eiginlega
tvíþættur, að halda til haga ýms-
um fróðleik sem annars hefði fall-
ið í gleymsku og eins að veita
mönnum ákveðna skemmtun. Það
er ástríðan og sköpunargáfan sem
heldur mér gangandi í þessari út-
gáfustarfsemi þó oft sé þetta
erfitt fjárhagslega. Ef ég hef ein-
hverja lífsskoðun þá byggist þessi
lífsskoðun á menningararfi okkar
Íslendinga. Ég er alinn upp við
þennan menningarf sem er mér
svo kær og ég held að ef við eyði-
leggjum hann þá deyi eitthvað í
þjóðinni,“ segir Páll og bætir því
við að Skjöldur sé ætlaður öllu
venjulegu fólki sem hefur áhuga á
þessum menningararfi þjóðarinn-
ar.
„Þegar ég var bókavörður hjá
Birni Sigúfssyni þá sagði hann við
mig: Páll Skúlason, þú verður
alltaf að skrifa þannig að öll al-
þýða þjóðarinnar geti skilið þig,
en svo fór ég að skrifa lögfræði og
enginn gat skilið mig. Þá hugsaði
ég með mér hvað ég gæti gert og
þá datt mér hug að skrifa fagur-
fræði til að fá léttari stíl og svo
þegar var búinn að því þá fannst
mér að ég yrði að fara að gefa út
blað þar sem ég skrifaði greinar
fyrir fólk með svipuð áhugamál
og ég,“ segir Páll.
„Mér finnst vanta þennan þjóð-
lega kjarna í íslensk dagblöð í dag
sem var í Lesbókinni og meira að
segja í Þjóðviljanum gamla, þar
voru geysilega góðir blaðamenn
eins og Guðjón Friðriksson, og
svo voru alltaf einhverjir karlar
þarna eins og Flosi Ólafsson sem
gerðu það að verkum að það var
alltaf gaman að fletta Þjóðviljan-
um,“ segir Páll og er ómyrkur
máli í garð tíðarandans í samfé-
laginu sem hann segir ganga út á
svik og pretti því allir virðist vera
að svíkja alla alltaf hreint. „Það á
að byggja allt þjóðfélagið upp á
heiðarleika, þú sérð það sjálfur að
svo er því ekki farið um okkar
samfélag í dag,“ segir Páll.
„Hugsunin er mikilvægust, það
má aldrei skrifa hugsunarlaust
heldur þarf að hugsa allt í þaula
áður en maður skrifar, stundum
þarf maður að hugsa það sem
maður vill segja í marga daga
áður en það er skrifað. Að orða
hugsun sína vel og skýrt það er
það sem skiptir máli, það er göf-
ugt,“ segir Páll.
Páll hefur gaman að því að
yrkja og kann mikið af vísum eft-
ir aðra og sjálfan sig sem hann fer
gjarnan með. Eftirfarandi vísu
samdi hann á servíettu á bar í
Kaupmannahöfn árið 1980, stuttu
áður en hann trúlofaðist eigin-
konu sinni Elísabetu Guttorms-
dóttur. „Þegar núverandi konan
mín heyrði vísuna sagði hún: Ort-
ir þú þetta Palli minn, og svo
kyssti hún mig á kinnina og við
trúlofuðum okkur skömmu síðar,“
segir Páll.
En hvað lífið er mér gott
og allir hlutir.
Glatt er nú í geði mínu
geymdu mig í hjarta þínu.
Þeir sem vilja gerast áskrif-
endur að Skildi geta hringt í síma
5520868 og 5628542.
44 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
...brúðusýningu Rúnu Gísla-
dóttur á Bókasafni Seltjarnar-
ness sem verður opin til 10 júlí.
...tónleikum Brasilíukvintetts Ife
Tolentino og Óskars Guðjóns-
sonar sem leikur í Iðnó á föstu-
dagskvöld klukkan 21:30.
...tónleikum Megasar og Súkkat
Megasukk á Grand Rokk á laug-
ardagskvöldið klukkan 23:00.
Síðustu tvær vikurnar hafa tvær íslenskar bæk-
ur verið á þýska metsölulistanum yfir skáld-
sögur í kiljuformi. Bók Arnaldar Indriðasonar,
Bettý, fór beint í 15. sæti þýska metsölulistans
og bók Viktors Arnar Ingólfssonar, Flateyjar-
gáta, fór beint í 42. sætið. Metsölulistinn hefur
nú verið uppfærður fyrir vikuna 8. júlí og og er
bók Arnaldar komin í 7. sæti listans og bók
Viktors í 27.
„Þetta kemur mjög á óvart því ég veit ekki til
þess að unnið hafi verið eitthvað sérstaklega
mikið kynningarstarf í Þýskalandi og bókin
kom bara út í síðustu viku,“ segir Viktor Arnar
Ingólfsson höfundur Flateyjargátu. „Þetta er sá
listi sem allir horfa á í kiljunum og þeir hjá
Eddu segja mér að ekki hafi gerst áður að
tvær íslenskar bækur hafi verið á sama tíma á
svo stórum lista í jafn stóru landi og Þýska-
landi,“ segir Viktor en þýska þýðingin á bók
hans er sú fyrsta sem gefin hefur verið út eftir
hann á erlendu tungumáli.
Auk þessara tveggja bóka er bók Arnaldar
Napóleónsskjölin í fimmtugasta sæti listans.
Hægt er að skoða listann á netslóðinni
http://harenberg.de.synkron.corpex-net.de/sw1300.asp.
Öll þriðjudagskvöld í sumar eru tónleikar á
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar og bera tón-
leikarnir yfirskriftina Sumartónleikar í Sig-
urjónssafni. Næstkomandi þriðjudagskvöld
mun Tríó Trix, sem skipað er þeim Sigríði
Bjarneyju Baldvinsdóttur fiðluleikara, Vig-
dísi Másdóttur víóluleikara og Helgu Björgu
Ágústsdóttur sellóleikara, leika verk eftir
Ernö Dohnányi og Max Reger og hefjast tón-
leikarnir klukkan 20:30. Dagskrá tónleikar-
aðarinnar er hægt að nálgast á netsíðunni
www.lso.is/tonl-i.htm.
menning@frettabladid.is
Íslenskar bækur á þýska metsölulistanum
PÁLL SKÚLASON Lögfræðingurinn og ritstjórinn Páll Skúlason á skrifstofunni sinni í Grafarholtinu þar sem Skjöldur verður til. Páll hefur
að undanförnu verið að safna ljóðum og kvæðum sem íslensk skáld hafa ort á dönsku og er það vegna hugdettu Haraldar heitins Blön-
dal sem lést á síðasta ári. Stefnt er að því að úrval þessara ljóða komi út innan árs.
„Að orða hugsun sína vel
er það sem skiptir máli“
Páll Skúlason hefur síðastliðin 15 ár gefið út málgagn sitt Skjöld þar sem hann birtir ýmsan þjóðlegan
fróðleik sem hann hefur áhyggjur af að sé að falla í gleymsku með árunum. Hann ætlar að halda
útgáfustarfinu áfram meðan hann lifir.
!
■ ■ TÓNLEIKAR
21.30 Blúskompaní Magnúsar Ei-
ríkssonar spilar Í Ketilshúsinu á Ak-
ureyri á Heitum fimmtudegi.
22.00 Hljómsveitin Malus spilar á
Pravda Bar fimmtudaginn 30. júní.
Aðgangur ókeypis.
22.00 Hljómsveitin Deep Jimi and
The Zep Cream leikur á Grandrokk.
■ ■ ÚTIVIST
20.00 Kvöldgöngur frá Kvosinni
Útilistaverk - augljós og falin, sýnileg
og illsýnileg útlistaverk í Kvosinni
skoðuð. Lagt upp frá gamla Geysis-
húsinu Aðalstræti 2, Vesturgötumegin.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
14-18 mánudaga - laugardaga 12-18 sunnudaga Lokað 2. og 3. júlí.
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu
Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14
VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON Þýsk þýðing á bók
hans Flateyjargáta fór beint inn í 42. sæti þýska met-
sölulistans yfir skáldsögur í kiljuformi í síðustu viku.
Bók Arnaldar Indriðasonar fór einnig beint inn í 15.
sæti sæti sama lista.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
27 28 29 30 1 2 3
Fimmtudagur
JÚNÍ
SKJÖLDUR Forsíða nýjasta tölublaðs
Skjaldar sem er það 51. í röðinni en sex
tölublöð koma út á ári. Myndin er eftir
Harald Guðbergsson og er myndefnið tek-
ið úr Þrymskviðu. Í tölublaðinu er meðal
annars að finna viðtal Páls við Davíð Er-
lingsson bónda og fræðimann á Ströndum
sem heitir Um gys að fornu og nýju, auk
umfjallana um Eddukvæði, legsteinana í
Bræðratungukirkjugarði og brota úr endur-
minningum Þuríðar Kvaran.
Eftirfarandi textabrot er úr
greininni Voru Eddukvæði
ort til þess að líkna sjúk-
um? eftir Pál Skúlason
sem birtist í 51. Tölublaði
Skjaldar:
„En Jón Steffensen taldi
að það hefðu ekki aðeins
verið galdraþulur sem
menn kváðu yfir sjúkum.
Eddukvæðin mörg hver
eru frásagnir, og sum
þeirra all dramatísk, og vel
til þess fallin að dreifa
huganum þegar sársauki
og sjúkdómar voru yfir-
þyrmandi. Kvæðin hafa
verið kveðin yfir sjúkum
til þess að lina þjáningar
þeirra og gegndu því svip-
uðu hlutverki og deyfilyf
eða svefnlyf.“