Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 30.06.2005, Qupperneq 66
46 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Brynhildur Sigurðardóttir heim- spekinemi nefndi tvær sumarlegar og safaríkar uppskriftir sem sínar uppáhalds. Hún segir þær passa mjög vel saman þó þær standi fyllilega undir sér hvor fyrir sig. „Ég nota sjaldan uppskriftir þegar ég elda og fer bara eftir innsæinu, en vinur minn sem er listakokkur eldaði þetta fyrir mig síðasta sum- ar og þessar uppskriftir hafa verið í uppáhaldi síðan. Núna elda ég þetta alltaf þegar sólin skín,“ segir Brynhildur og hlær. Hún kann sitthvað fyrir sér í eldamennsku, byrjaði að elda að- eins tíu ára gömul og hefur komið nálægt matargerð í sinni vinnu. Henni finnst mikilvægast að eiga gott salt, hvítlauk, lauk og vand- aða ólífuolíu í matargerð. „Mér finnst skemmtilegast að elda grænmetisrétti og spila þá bara af fingrum fram þó ég fái innblástur af uppskriftum.“ HEILSTEIKT BLEIKJA með límónu, graslauk og villisveppum Bleikja 2 límónulauf 1 msk graslaukur 2 msk kantarellusveppir 2 dl hvítvín 1 dl rjómi Skafið allt slím af fisknum og þerrið vel. Stráið salti yfir fiskinn og látið standa í 10-15 mín. Penslið hann síðan með ólífuolíu og steikið í vel heitu smjöri í 3-5 mín. á hvorri hlið, allt eftir stærð fisksins. Saxið límónu- laufin, graslaukinn og sveppina. Sjóðið upp límónulaufið í þurru hvítvíni og setjið því næst sveppina útí og svo rjómann. Kryddið með salti og pipar. Sjóðið niður uns hæfilegri þykkt er náð. Stráið gras- lauk út í að lokum og smyrjið síðan blöndunni inn í fiskinn. RÆKJUSÚPA SUMARSINS 2003 500 g rækjur 2 msk tómatpúrre 3 hrærðar eggjarauður 3 dl þeyttur rjómi 2 msk. koníak 1 dl þurrt hvítvín 1 tsk. karrý salt og pipar eftir smekk 2 laukar 2 gulrætur 1/2 sellerírót 1 búnt steinselja 2 hvítlauksrif 1tsk. karrý Skelflettið rækjurnar, hreinsið skelina vel og kreistið ullabjakkið úr hausnum undir kaldri vatns- bunu. Brúnið laukinn, gulræturn- ar, sellerírótina, steinseljuna og hvítlaukinn í olíu eða smjöri og bætið við einni teskeið af karríi – allt á að vera gróft skorið. Þegar grænmetið hefur brúnast vel, hellið þá tveimur lítrum af köldu vatni yfir og kryddið með salti og pipar. Látið sjóða í 40 mín. Því næst er allt saman sigtað í gegn- um sigti sem fóðrað er með viska- stykki eða bleiuklút. Hitið pottinn og brennið tómatpúrrið í honum. Hellið soðinu út í. Bætið við hvítvíninu. Takið pottinn af hitan- um og hrærið út í koníaki, eggjar- auðu og rjóma. Saxið kóríander og stráið út á diskinn þegar súpan er borin fram. Ristið rækjurnar í brúnuðu hvítlaukssmjöri á pönnu. Látið nokkrar í hvern súpudisk. TERRALIS: Eitt ódýrasta kassavínið BRYNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR Hefur góða tilfinningu fyrir matargerð og segist elda mikið úr heilu korni og baunum. Ofninn hitaður í 200°C. Gulræturnar skafnar eða flysjaðar og toppurinn skorinn af. Rauðlaukurinn flysjaður og skorinn í geira. Olíu, sírópi, engifer, pipar og salti blandað saman í eldföstu móti og gulrótunum og lauknum velt upp úr leginum. Sett í ofninn, appelsíninu hellt í mótið og bakað í 30-40 mínútur, eða þar til gulræturnar eru meyrar (best að stinga í þær með hnífsoddi). Bætið við meira appelsíni eða vatni eftir þörfum, svo að gulræturnar brenni ekki. Þær eru mjög góðar með alls konar steiktu og grilluðu kjöti. 500 g gulrætur 1-2 rauðlaukar 2 msk. olía 2 tsk. hlynsíróp eða sykur 1 tsk. engifer, fínsaxaður eða rifinn, nýmalaður pipar salt 200 ml appelsínulímonaði nokkrar greinar af fersku timjani (má sleppa) Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S G RA 2 85 65 06 /2 00 5 gljáðar gulrætur með rauðlauk og engifer Hvaða matar gætir þú síst verið án? Morgunsjeiksins míns. Hann samanstendur af sojamjólk, öllum ávöxtum og djús sem ég á og stundum bæti ég hveitiklíði og hörfræjum við. Fyrsta minningin um mat? Að hafa þurft að pína ofan í mig karrýsósu og rúgbrauðssúpu. Ég er alin upp á heima- vistarskóla þar sem faðir minn var skólastjóri og því þurfti ég alltaf að sýna gott fodæmi og borða allt. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Pekingöndin á Mayflower-veitingastaðnum í London. Ég myndi fljúga út eingöngu fyrir hana og koma aftur um kvöldið – ef einhver splæsti. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Ég borða helst ekki svínakjöt nema bara hamborgarhrygginn á jólunum. Leyndarmál úr eldhússkápnum? Já, ristuð sesamfræ. Ég get breytt vondum mat sem ég elda, eins og baunaréttum, í prýðilega góðan með því að setja þau út á. Hvað borðar þú þegar þú þarft að láta þér líða betur? Ef ég er á leiðinni í djúpt þunglyndi þá kaupi ég fjórar kókosbollur og treð þeim í andlitið á mér. Svo líður mér auðvitað enn verr á eftir. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Djús og ávexti. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt myndir þú taka með þér? Á eyjunni væri ekkert rafmagn til að gera morgunhrist- inginn svo ég myndi bara reyna að bjarga mér og finna ávexti og græn- meti. Svo myndi ég ná mér í söl úr sjón- um og örugglega lifa lengi á því. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Þegar ég var mjög ung smakkaði ég snigla, froskalappir og kanínur og fannst það stórskrítið. Nú í seinni tíð er það undarlegasta samt krókódílakjöt og strútur. MATGÆÐINGURINN EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR LEIKKONA Trivento er annar stærsti vínútflytjandi frá Argentínu og hefur lengi verið mest selda argentínska vínið í Vínbúðunum, þar sem frábær gæði hafa ávallt mætt mjög hagstæðu verði. Terralis, kassa- vínið frá Trivento, er þar engin undan- tekning. Vínið er blanda af tveimur þrúgum sem reynast mjög vel í Argent- ínu, shiraz og malbec. Shiraz er á þess- um slóðum berjarík en frekar mild og létt krydduð, malbec gefur góða fyllingu og er eðalþrúgan þar í landi. Úr þessum tegundum verður dökkt vín með miklu af sólríkum ávöxtum og léttri stemmu. Vegna þessa er þetta frábært vín með mat, sérstaklega í útilegu þegar það er sjálfkrafa aðeins kælt. Ekki spillir fyrir að þetta ódýra vín er á kynningarverði á sumardögum í Vín- búðum og kostar því aðeins 2.930 kr. Geri aðrir betur! Kynningarverð á sumardögum í Vínbúðum 2.930 kr. Grillilmurinn, einn af helstu vorboðum Ís- lands, syngur um góðan mat með góðum vin- um. Þegar hópur fólks er samankominn henta Sunrise-vín einstaklega vel, enda eitt vinsælasta rauðvín á Íslandi og mest selda flöskuvín landsins. Með kjötinu er Sunrise Merlot gott val, enda leikur það sér vel við íslenska lambið, en er einnig afbragð með grís og kjúklingi. Ef fiskur verður á grill- inu mun Sunrise Chardonnay ekki valda vonbrigðum, enda hvítvín með góðri fyll- ingu og í mjög góðu jafnvægi. Sunrise-vín- in eru úr vínhúsinu Concha y Toro frá Chile, sem var valið vínhús ársins í Nýja heiminum árið 2004. Verð í Vínbúðum 990 kr. Píndi í sig karr‡sósu og rúgbrau›ssúpu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A SUNRISE: Frá vínhúsi ársins í Nýja heiminum Brynhildur Sigur›ardóttir spilar af fingrum fram í matarger›. Safaríkir sjávarréttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.