Fréttablaðið - 20.07.2005, Side 58
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 10.20 B.i. 10 ára
Sýnd kl. 4
★★★ ÓÖH DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40
Sýnd í lúxus kl. 10.40 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 • Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 8
Sýnd kl. 8 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 3.30 og 5.45
Þorir þú í bíó?
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það fangarnir
gegn vörðunum!
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11
Sýnd kl. 5.30 B.i. 10 áraSýnd kl. 10.10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Þorir þú í bíó?
„SVALASTA MYND ÁRSINS
OG BESTA MYND ÞESSA
SUMARS“
★★★★★ Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
★★★★★ BLAÐIÐ
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það fangarnir
gegn vörðunum!
2. sýn. fim. 21/7 kl. 19, sæti laus
3. sýn. sun. 24/7 kl. 14, uppselt
4. sýn. þri. 26/7 kl. 19, sæti laus
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
5/7, 11/7, 12/7, 13/7 kl. 14-18 6/7, 7/7, 8/7, 14/7, 15/7, 17/7, 22/7, 28/7 kl. 14-20
10/7, 17/7 kl. 12-18 LOKAÐ 18/7 - 21/7, 23/7-27/7, 29/7-11/8
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu
Lau 13/8 kl 14, Su 14/8 kl 14, Lau 20/8 kl
14, Su 21/8 kl 14
ÖRLAGAEGGIN-SÖNGLEIKUR
6. sýning 22/7, 7. sýning 24/7 og
lokasýning 28/7
Voces Thules í dómkirkjum Íslands
Voces Thules heldur röð
tónleika næstu mánuði
þar sem þeir flytja Þor-
lákstíðir en síðastliðin 13
ár hafa þeir unnið að
heildarflutningi söngv-
anna sem koma út á
geisladiskum á Þorláks-
messu, 23. desember.
Sönghópurinn Voces Thules hefur
yfirreið sína um dómkirkjur lands-
ins sem kallast Yfirreið undir
verndarvæng dýrlings með tónleik-
um í Skálholtsdómkirkju klukkan
21 í kvöld. Voces Thule flytur þar
tíðasöngvana Þorlákstíðir, sem
heita eftir Þorláki Þórhallssyni sem
var biskup í Skálholti á 12. öld og
var gerður að dýrlingi innan kaþ-
ólsku kirkjunnar árið 1198.
Tíðasöngur er nokkurs konar
kyrrðarsöngur. Flutningur tónlistar
af þessu tagi er með innilegasta til-
beiðslu-og hugleiðsluformi sem
kristin kirkja hefur innan sinna vé-
banda.
Voces Thules skipa þeir Eggert
Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur
Hreinn Helgason, Guðlaugur Vikt-
orsson, Sigurður Halldórsson og
Sverrir Guðjónsson.
Yfirreið Voces Thules nær frá
Þorláksmessu á sumri, sem er í dag,
fram að Þorláksmessu 23. desem-
ber sem er dánardagur Þorláks
biskups en þá verða Þorlákstíðir
gefnar út á fjórum geisladiskum í
sérstökum hátíðabúningi. Á tíma-
bilinu halda Voces Thules tónleika í
Skálholti, á Hólum, í Kristskirkju í
Landakoti, Dómkirkjunni og í Hall-
grímskirkju þar sem tónlistin var
tekin upp.
Þorlákstíðablöðin eru á handriti
frá því um 1400 og er grunntexti
þeirra á latínu. Þau voru varðveitt í
Kaupmannahöfn þar til í nóvember
1996, en voru þá send til Íslands og
eru nú varðveitt í Árnastofnun í
Reykjavík.
Undirbúningur Voces Thules að
heildarflutningi Þorlákstíða hófst í
lok árs 1993, á 800 ára dánarafmæli
Þorláks biskups hins helga og hefur
staðið yfir síðan. „Við fluttum allt
verkið á 36 klukkustundum í Krists-
kirkju á Listahátíð í Reykjavík árið
1998. Þar vorum við að fylgja
gamalli klausturhefð. Svo fórum við
að leita að kirkju með heppilegum
hljómburði því okkur fannst við
þurfa að vinna þetta betur fyrir
hljóðritunina og á endanum varð
Hallgrímskirkja fyrir valinu,“ segir
Sverrir Guðjónsson einn af meðlim-
um Voces Thules og bætir því við að
líklega hefðu þeir ekki lagt út í þetta
verkefni ef þeir hefðu vitað að það
ætti eftir að taka tólf ár.
Í framhaldi af tónleikunum í
Skálholti verða Voces Thules með
tónleika á Hólahátíð 13. ágúst
klukkan 18.00 en dagsetning ann-
arra tónleika verður auglýst síðar. ■
VOCES THULES Voces Thules halda tónleika í Skálholtskirkju, Hóladómkirkju, Dómkirkj-
unni í Reykjavík, Kristskirkju í Landakoti og Hallgrímskirkju á næstu mánuðum þar sem
þeir flytja Þorlákstíðir. Fyrstu tónleikarnir verða í Skálholti klukkan 21 í kvöld.
Djasskvartett á
Kaffi Kúltúra
Djasskvartettinn Pálsson-Opsvik-
Jermyn-Qvick verður med tón-
leika á Kaffi Kúltúra, Hverfisgötu
í kvöld klukkan kl 21.00.
Kvartettinn er skipaður þeim
Jóel Pálssyni á saxófón, Simon
Jermyn á gítar, Erik Qvick og
Eivind Opsvick. Aðgangseyrir er
1.000 krónur. ■
JÓEL PÁLSSON Saxófónleikarinn leikur á
Kaffi Kúltúra í kvöld klukkan 21.00 ásamt
þeim Jermyn, Qvick og Opsvick.
58-59 (26-27) BÍÓ-HÚSIN 19.7.2005 19:00 Page 2